31.08.1915
Neðri deild: 47. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 1784 í B-deild Alþingistíðinda. (2467)
130. mál, dýrtíðarhjálp
Sveinn Björnsson:
Jeg gjöri ráð fyrir, eftir þeim samtökum, sem gjörð hafa verið hjer í deildinni, að þessu frumv. sje ætlað að fara sömu leið og hinu, um útflutningsgjald af kjöti o. fl. Og með því að jeg skil deildina svo, að hún ætlist til þess, að Velferðarnefndin eigi ekki að skifta sjer af þessum dýrtíðarmálum, þá tek jeg þetta frumvarp aftur.