05.08.1915
Neðri deild: 25. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 1787 í B-deild Alþingistíðinda. (2473)
78. mál, slysaábyrgðasjóður
Flutningsm. (Benedikt Sveinsson):
Jeg sje ekki ástæðu til að halda langa ræðu. Eins og menn sjá, er tilgangurinn með þessu frumv. sá, að eitthvað sje gjört til þess, að tryggja einhverjar hinar fátækustu stjettir landsins fyrir slysum, sem þeim er hættara við, vegna atvinnu sinnar, heldur en nokkrum öðrum stjettum í landinu. Hjer er enginn almennur sjóður til að hlaupa undir baggann. Þegar slys ber að höndum, er því ekki um annað að ræða fyrir þá, sem fyrir því verða, ef þeir eru ekki einfærir um að bjarga sjer sjálfir, en að leita til sveitarstjórnanna og tapa þannig rjetti sínum og komast á vonarvöl.
Með samtökum má mikið girða fyrir verstu afleiðingar slysanna. Virðist mjer hjálparhönd til þess, að koma þessu í framkvæmd. Á því er enginn vafi, að í þessu máli vantar einungis forgönguna. Er ekki sjáanlegt, að neitt verði gjört í því, nema hið opinbera stuðli að því, að hrinda því af stað. Hygg jeg, að það verði best gjört með því móti, sem lagt er til í frv.
Hjer í Reykjavík er raunar sjúkrasamlag, og er það vitanlega gott, það sem það nær. En bæði er það víðtækara en það fjelag, sem hjer er gjört ráð fyrir, og tryggir menn ekki eingöngu fyrir slysum, og einnig er svo dýrt að vera í því, að ekki er að búast við, að almenningur geti tekið þátt í því að svo stöddu, síst þeir, sem fátækastir eru. Sjúkrasamlagið útilokar því ekki nauðsynina á slíkum sjóði, sem hjer er verið að tala um.
Þetta fje, sem farið er fram á að veita, 5000 kr. hvort ár fjárhagstímabilsins, til þess að koma sjóðnum á laggirnar, er ekki tilfinnanlegt fyrir landssjóð, þar sem hjer eiga í hlut einhverjar fjölmennustu stjettir landsins, sem bera svo mikið af byrðum landssjóðs, en hafa hins vegar ekki hlotið nema mjög lítið af opinberu fje.
Að öðru leyti höfum við flutningsm. ekki samið neinar víðtækar reglur um sjóðinn, og þarf það nánar að athugast. Hygg jeg að það yrði best gjört í nefnd, og vildi jeg gjöra það að tillögu minni, að málinu væri vísað til sjávarútvegsnefndarinnar að umr. lokinni.