23.07.1915
Neðri deild: 14. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 1798 í B-deild Alþingistíðinda. (2494)
35. mál, verkamannamálið
Flutnm. (Skúli Thóroddsen):
Jeg sje ekki ástæðu til, að fara mörgum orðum um tillögu þessa, því jeg býst ekki við, að deildin þori fremur að skora á stjórnina, að koma á næsta þingi fram með frumvarp, er að húsmannamálinu lýtur, eða treysti henni betur en raun varð á, að því er verkmannamálið snertir.
Tillagan sjálf sýnir og svo glögglega, hvað fyrir mjer vakir, að óþarft er, að fara hjer út í efni hennar, — nægir og, að vísa til hennar sjálfrar.
Jeg vil og ekki mælast til, að tillagan verði samþykt orðalaust nú þegar, en leyfi mjer, að óska þess, að henni verði vísað til landbúnaðarnefndarinnar, — til bestu fyrirgreiðslu. —