27.08.1915
Neðri deild: 44. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 1826 í B-deild Alþingistíðinda. (2534)
94. mál, vegalög
Guðmundur Hannesson:
Jeg vil að eins benda á það, að engar sannanir hafa komið fram í ræðu háttv. 1. Árn. (S. S.) um það, að jeg hafi haft rangt fyrir mjer áðan. Jeg hjelt því fram, að landssjóður ætti að leggja tiltölulega mest til veganna þar, sem strjálbygðast væri, ef nauðsynlegt er að leggja þar vegi. Að bændur leggi vegi yfir óbygðir t. d. Öxnadalsheiði, nær ekki neinni átt. Slíkir vegir, sem ekki liggja um bygðir og tengja sveitavegi saman, eru gjörðir vegna landsheildararinnar, og þá á landssjóður að kosta að öllu leyti. Alt öðru máli gegnir um þjettbýlar sveitir. Þar vaxa jarðir í verði við það, að vegir eru lagðir og fjöldi manna notar þá daglega; þar geta margar hendur unnið ljett verk, lagt vegi sína með nokkrum styrk, en því lengra sem verður á milli bæjanna, og því færri sem mennirnir eru, sem lagt geta til vegarins og hafa hans not, þess meiri styrk eiga þeir að fá, ef þeim á að vera kleif vegargjörðin, eða þeir eiga ekki að verða ósanngjarnlega hart úti. Jeg tala hjer að eins um nauðsynlega vegi, sem teknir væru í vegakerfi landsins. Nú kostar vegagjörð og viðhald eftir því í hvaða flokk vegurinn er; en þjóðvegurinn er oft þýðingarminni en sýslu- eða hreppsvegurinn, sem settur er miklu lægra. Þjóðvegurinn yfir Skagafjörð, frá Víðimýri til Miklabæjar, er þýðingarlítill í samanburði við alfaraveginn yfir ósa Hjeraðsvatnanna. Nei, þessi núverandi flokkur veganna, og fjárveitingar úr landssjóði, sem miðaðar eru við hana, eru hvorki bygðar á sanngirni nje skynsemi. Framvegis ætti að haga þessu á annan veg og fara meira en verið hefir eftir því, hvað hjeraðsbúar sjálfir vilja á sig leggja, til þess að fá vegina greiða. Hjá því ættu ekki fjölmennustu hjeruðin að sleppa, þó sitja verði við það, úr því sem komið er, að ljúka hinum lögskipuðu flutningabrautum.
Flest af því, sem hinn háttv. þingmaður (S. S.) sagði, var á engum rökum bygt.