27.08.1915
Neðri deild: 44. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 1828 í B-deild Alþingistíðinda. (2536)

94. mál, vegalög

Eggert Pálsson:

Jeg skal ekki fara mörgum orðum um þessar tillögur, enda get jeg fallist á alt, sem nefndin leggur til, að bætt verði við. En þar sem háttv. 1. þm. Húnv. (G. H.) kom fram með þá skoðun, að landssjóður legði sem mest fje til vegabóta þar, sem fáment væri, en minst þar sem fjölment væri, þá álít jeg ástæðu til að setja þetta vel á sig, því að þar kemur til greina mjög sterkur og ákveðinn stefnumunur, sem getur náð til fleira en þess eina atriðis, sem hjer liggur fyrir. Við vitum að landssjóður er ekki sterk stofnun, og verður því að skamta smátt. Ef við værum fjesterkir og þyldum vel útgjöldin, þá væri ekki nema sjálfsagt, að gjöra öllum landshlutum sem jafnast undir höfði í öllum fjárútlátum landssjóðs. En getan er svo takmörkuð, að ekki verður sint nema því, sem mest kallar að, og þá er auðvitað sjálfsagt, að leggja mest fje fram þar, sem mest er von um að það borgi sig sem fljótast, og það er vitanlega þar sem fjölmennast er. Jeg held því fyrir mitt leyti, að skoðun háttv. þingmanns sje ekki rjett, og mjög svo ópraktisk.

Þegar um t. d. vegi er að ræða, þá er fyrst og fremst nauðsynlegt, að þeir sjeu góðir þar, sem fjölmennið er mest. Hitt skiftir minna fyrir heildina, hvernig þeir eru þar, sem færri eiga leið um, þótt það væri auðvitað gagnlegt og gleðilegt, að þeir voru góðir þar líka. Þeir staðirnir verða að sitja í fyrirrúmi, bæði í þessum efnum og hverjum öðrum, þar sem ríkust er vonin um að fyrirtækin verði arðberandi. Það er það eina skynsamlega.