01.09.1915
Neðri deild: 48. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 1830 í B-deild Alþingistíðinda. (2541)

126. mál, strandferðir

Framsm. (Sigurður Eggerz):

Hjer gjörist ekki þörf á langri framsögu, þótt hjer sje um eitt af veigamestu málunum að ræða, sem komið hafa fyrir þingið, því við 3. umr. fjárlaganna tók jeg fram þau atriði, sem mestu skifta.

Með þingsályktunartillögunni er stjórninni falið að semja við Eimskipafjelagið á þeim grundvelli, sem tekinn er fram í áliti strandferðanefndarinnar. Jeg býst við, að hv. deild hafi kynt sjer nefndarálitið. Úr landssjóði greiðist hvort árið 75 þús. til strandferðanna. En fyrirkomulag þeirra er með líku móti og gjört var ráð fyrir 1914, þannig, að ferðaáætlun B. frá því ári var lögð til grundvallar, en að eins slept síðustu ferðinni, og að öðru leyti gjörðar nokkrar smábreytingar á áætluninni, sem engu skifta.

Nefndin hefir viljað halda sjer við það, að skipin sjeu af sömu stærð og gjörð og gjört var ráð fyrir 1914, en vegna erfiðleika, er af stríðinu stafa, leit nefndin svo á, að við það yrði að una, þó þau yrðu heldur lakari, en hins vegar hefir nefndin óskað þess, að skipin jafngiltu að gæðum »Austra« og »Vestra«.

Að öðru leyti skal jeg taka það fram, að ef þessar 75 þúsundir króna, er hefir orðið að samkomulagi milli strandferðanefndarinnar og Eimskipafjelagsins, að landssjóður greiði, hrökkva ekki fyrir halla þeim, sem á strandferðunum kann að verða, þá greiðist sá halli, að svo miklu leyti, sem hann stafar af breyttum kringumstæðum, vegna ófriðarins, eða af aukavátryggingu, úr landssjóði.

Eftir ítarlega yfirvegun komst strandferðanefndin að þeirri niðurstöðu, að eðlilegt væri, að landssjóður tæki ófriðaráhættuna á herðar sjer, enda gæti hún orðið svo mikil, að Eimskipafjelaginu yrði hún um megn.

Annars verður landssjóður og Eimskipafjelagið að bera traust hvort til annars. Alþingi verður að treysta því, að fjelagið gæti sem mestrar hagsýni við ferðir þessar, svo komist verði hjá halla á þeim, eða hann verði sem minstur. Takist fjelaginu þetta, þá mun samúð sú, er það nú hefir áunnið sjer hjá þjóðinni, aukast.

Jeg vil geta þess, að Alþingi hefir ekki, eins og nú standa sakir, til annara að leita en Eimskipafjelagsins um strandferðir. Því þótt það hefði viljað semja við Björgvinjarfjelagið, þá er ekki víst, að það vilji taka strandferðirnar að sjer, og auk þess hafa ferðir þessar gefist illa í höndum fjelagsins.

Eina leiðin er að snúa sjer til Eimskipafjelagsins, eins og gjört hefir verið. Það er líka eðlilegasta leiðin, enda er það von vor allra, að fjelagið beri giftu til að takast þessar ferðir á hendur, bæði nú og í framtíðinni, svo að báðum, fjelaginu og landinu, megi verða til happa.

Með tilvísun til þess, sem hjer hefir verið tekið fram og til ummæla minna við 3. umr. um fjárl.frv., leyfi jeg mjer að mæla með því, að þingsályktunartill. verði samþykt.