30.08.1915
Neðri deild: 46. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 1850 í B-deild Alþingistíðinda. (2549)
121. mál, þegnskylduvinna
Framsögum. minni hlutans (Matthías Ólafsson):
Jeg verð aftur að snúa mjer að nefndarálitinu.
Háttv. þm. Dal. (B. J.) sagðist í sínu áliti hrekja alt það, sem stæði í minni hluta nefndarálitinu. Jeg vil skjóta því undir dóm háttv. deildarmanna, hvort svo sje. Hann hefir engin rök fært fyrir sínu máli, og engar sannanir fyrir því, að minni hlutinn hafi rangt fyrir sjer. Hann hafði stór orð um þetta og kallaði það fjarstæðu, sem minni hl. heldur fram, en hann hefir þó ekki hrakið eitt einasta orð af því, sem í minni hluta álitinu stendur. Ef um herskyldu væri að ræða, býst jeg við, að hann myndi ekki síður kalla það fjarstæðu.
Jón Sigurðsson hjelt því fram, að það væri holt fyrir unga menn, að fara utan og inna af hendi herþjónustuskyldu, og leit svo á, að þeir myndu að því loknu koma heim sem betri og nýtari menn, til að vinna fósturjörðinni gagn. (Sigurður Eggerz: Það er ekki víst, að alt sje gott og rjett, þótt Jón Sigurðsson hafi haldið því fram). Hann var enginn skýjaglópur, og hann þorði að segja þjóðinni blátt áfram, hvað honum þótti að og hvað hann vildi láta gjöra.
Háttv. þm. Dal. (B. J.) þóttist hafa reynslu og þekkingu fram yfir mig, vegna þess, að hann hefir einhverntíma verið kennari. En það er nú svo gott að vita, að jeg hefi líka verið kennari, og jeg gjöri ráð fyrir, að jeg hafi staðið jafnlangt fyrir ofan mína nemendur eins og hann fyrir ofan sína.
Hann talaði um að Íslendingar væru hlýðnir. En jeg held, að því sje nokkuð ábóta vant, meðan það er alment, að verkamenn gjöra gys að verkstjórunum, og yfirleitt er virðingarleysi fyrir yfirboðurum og öllum aga á mjög háu stigi hjá þorra manna.
Annara er alt hans tal um þessa hluti tómur útúrsnúningur, eins og þegar hann sagði, að jeg vildi sá löstum, en uppskera dygðir. Ef hægt er að útrýma löstum, þá býst jeg við, að kostir komi í staðinn. Jeg veit reyndar ekki, hvernig ástand háttv. þm. Dal. (B. J.) sjálfs er, hvort í hann fara 7 andar í staðinn fyrir einn, sem út er rekinn. Það er vitaskuld, þegar maður kastar fram einhverri heimsku, þá uppsker maður stórheimsku, og að því hefir hv. þm. Dal. (B. J.) orðið, að af því að hann hjelt fram heimskulegum útúrsnúningum í áliti sínu, hefir hann orðið að halda áfram í sömu átt, af því að hann hefir eigi skap til að kannast við, að hann hafi haft rangt fyrir sjer, og því farið með lokleysuvaðal um þetta mál. Það er svo oft, þegar maður kastar fram einhverri fjarstæðu, að hún ber engan ávöxt. Jeg vona, að það fari svo með það, sem háttv. þm. Dal. (B. J.) hefir sagt í þessu máli.