01.09.1915
Neðri deild: 48. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 1869 í B-deild Alþingistíðinda. (2559)

121. mál, þegnskylduvinna

Guðmundur Hannesson:

Jeg neyðist til þess, að gjöra grein fyrir atkvæði mínu í þessu máli. Jeg ætla ekki að fara út í orðadeilur þær, sem orðnar eru á milli meiri og minni hlutans. Jeg verð í þessu máli nokkurn veginn mitt á milli þeirra beggja.

Háttv. þm. V.-Sk. (S. E.) hefir lýst því í allítarlegri og góðri ræðu, hve erfitt og kostnaðarsamt það yrði, að sjá fyrir nógum og góðum verkstjórum. Það er alveg rjett hjá honum. Til þess að þetta komi að notum, þá yrði þetta að vera nokkurs konar skóli, og kennarar við slíka skóla eru ekki gripnir upp úr grjótinu.

Fyrir mjer stendur þetta mál svo, að yrðu nú greidd atkvæði um það, þá er jeg nærri því viss um, að meiri hluti þjóðarinnar yrði á móti því. En væri nú ekki hugsanleg önnur leið í þessu máli? Væri ekki hugsanlegt, að semja heimildarlög og lofa svo sýslunum hverri fyrir sig að gjöra ákvæði um, hvort þau skyldu koma til framkvæmda eða ekki? Jeg býst við því, að það yrði hvort sem er haft þannig, að menn úr hverri sýslu yrðu látnir vinna innan hennar, oftast að þeim verkum, sem þeir þektu og væru vanir við.

Þá hefir mjer komið til hugar, að bygging steynsteypuhúsa væri vel fallin til þess, að vinna að í þegnskylduvinnu. Hjer bíða nú 5–6 þúsund sveitabæir, sem þarf að byggja upp sem fyrst. Ekki væri það ólíklegt, að þessu miðaði fyrr áleiðis, ef þegnskylduvinna kæmist á. Jeg hygg, að það væri nytsöm fræðsla fyrir flesta sveitamenn, að læra að steypa góðan vegg og vel af hendi leystan. Þeir gætu þá síðar steypt hlöður og ýms útihús sjálfir. Væri slík vinna alstaðar á landinu, þá væri hægt að steypa upp 140 bæi á ári. Jeg bygg, að það væri nauðsynlegra, að kenna mönnum að búa til vandaða steinsteypu en margt annað, sem kent er nú á tímum. Jeg sje hins vegar, að taka mætti fleira en þetta til að kenna; get þó ekki fallist að öllu leyti á álit minni hlutans, en er, eins og jeg hefi þegar sagt, mitt á milli þessara miklu óvina. En jeg mun greiða atkvæði með því, að þjóðin fái að segja álit sitt um málið.