18.08.1915
Neðri deild: 36. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 1886 í B-deild Alþingistíðinda. (2570)

111. mál, yfirskoðunarmenn landsreikninganna

Ráðherra:

Mjer þykir háttv. þm. Dal. (B. J.) vera undarlega fáfróður um Búnaðarfjelag Íslands. Því eru ákveðin 54 þús. kr. í fjárlagafrumv., og það fje er borgað til stjórnar þess, og ræður hún alveg, hvernig hún úthlutar því, og hvaða menn hún hefir í sinni þjónustu. (Bjarni Jónsson: Þetta er nýr ráðherra). Að nokkru leyti er þetta rjett, því að þetta er ein, tiltölulega ný grein af framkvæmdarstjórn landsins. Annars gleður það mig, hve umhugað háttv. þm. (B. J.) er orðið um háttv. samþingismann minn (S. S.). Jeg hefi sjaldan sjeð hann brosa svo hýrt við honum. »Á þeim degi urðu þeir Heródes og Pílatus vinir«, og vildi jeg óska, að það stæði sem lengst.