18.08.1915
Neðri deild: 36. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 1888 í B-deild Alþingistíðinda. (2572)
111. mál, yfirskoðunarmenn landsreikninganna
Ráðherra:
Jeg held, að háttv. þm. Ak. (M. K.) hafi misskilið mig. Jeg nefndi kostnaðinn við Alþingi, og það var ekki meiningin með því, að fást um það, hvað mikið menn töluðu. Það stendur ekki í neins manns valdi, að afstýra málæði því, sem við gengst hjer á þinginu. En hjer er á margs konar annan kostnað að líta, t. d. við útgáfu Þingtíðindanna og skrifstofuna. Í fyrra var bent á það, að hann væri ofmikill, og hefir hann nú verið minkaður með betri ráðsmensku hæstvirtra forseta og skrifstofustjóra.
Háttv. þm. (M. K.) má ekki skilja mig svo, sem jeg sje að telja eftir mönnum þingfararkaup, en hitt stend jeg við, að þeir verða ekki verr úti en aðrir, sem ferðakostnað hafa frá hinu opinbera.
Jeg veit ekki nema það væri heppilegra, að Búnaðarfjelag Íslands stæði undir stjórninni, að því er reikningsfærslu snertir, þótt svo sje ekki nú, enda hafa áður heyrst raddir hjer á þingi í þá átt.