15.09.1915
Neðri deild: 63. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 1891 í B-deild Alþingistíðinda. (2580)

161. mál, ábyrgðarfélög

Flutnm. (Sv. Björnsson):

Eins og menn muna, var samþ. hjer í deildinni till. til þingsál. um að skora á stjórnina, að undirbúa og leggja fyrir næsta þing frumv. til laga um stofnun innlends lífsábyrgðar- og slysaábyrgðarfjelags, og stjórninni heimilað að verja 5000 krónum til þessa. Er til efri deildar kom, var tillagan afgreidd með rökstuddri dagskrá, sem skorar á stjórnina að rannsaka og undirbúa undir næsta þing stofnun innlends lífs-, sjó- og slysaábyrgðarfjelags, og ætlast til, að stjórnin mætti verja nauðsynlegu fje úr landssjóði til þessa.

Þessi tillaga, sem hjer er fram komin, fer fram á það, að Nd. taki undir með hv. Ed. í þessu máli. Jeg vona, að allir geti orðið mjer sammála um að samþ. þessa tillögu.