14.07.1915
Neðri deild: 6. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 1893 í B-deild Alþingistíðinda. (2589)

2. mál, skipun sjávarútvegsnefndar

Flutningsm. (Guðm. Eggerz):

Slík nefnd sem sú, er hjer ræðir um, var skipuð á þinginu 1913, og voru þá allir sammála um, að sú nefndarskipun væri sjálfsögð. Eins og menn vita, er sjávarútvegurinn annar aðalatvinnuvegur þessa lands, og nefndin var skipuð í því skyni, að sjá málum sjómannastjettarinnar sem best borgið. Það eru allir sammála um nauðsyn þessarar nefndar, svo að jeg sje ekki ástæðu til að tala sjerstaklega fyrir tillögunni. Hún talar best fyrir sjer sjálf.