17.08.1915
Neðri deild: 35. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 1924 í B-deild Alþingistíðinda. (2626)

96. mál, kaup á Þorlákshöfn

Ráðherra:

Jeg skal ekki lengja mikið umræðurnar, því að tekið hefir verið margt fram með og móti. Í fyrra var lagt hjer fyrir Nd. frumv., er fór í líka átt og þingsályktunartillaga sú, er hjer er um að ræða, en var vísað aftur til stjórnarinnar til undirbúnings, af því að málið þótti ekki þá undirbúið nægilega. Sama er að segja um tvö önnur mál, er voru nokkuð svipuð, en verkfræðilega rannsókn á þeim vantaði, að þá var ekkert um þau ákveðið.

Háttv. þm. V.-Sk. (S. E.) hefir skýrt frá því, er gjört hefir verið í þessu máli í hans stjórnartíð. En jeg skal bæta því við, að fullnaðaruppdráttur af höfninni kom ekki til stjórnarráðsins fyrr en 10. eða 11. maí í vor. Var því ekki hægt að taka þetta mál upp í fjárlögin, enda vafasamt, hvort það að öðru leyti hefði verið unt, þar sem málið var ekki heldur undirbúið á annan hátt.

Jeg er ekki hissa á því, þó að ekki hafi komið fram tilboð um kaup á Þorlákshöfn frá eigendunum. Jeg hefi átt tal við einn eigendanna, og vilja þeir fyrst, áður en þeir hafa látið nokkuð uppi um verð það, er jörðin kynni að fást fyrir, að þingið gjöri tilboð í hana.

Jeg skal út frá þessu taka það fram, að þar sem sú athugasemd hefir verið gjörð, að óheppilegt sje, að ekki er tiltekið í tillögunni hámark verðs á jörðunni, að um það getur verið álitamál. Það, sem mælir með því, að hámark verðs sje tilgreint, er það, að þá færi stjórnin ekki hærra, ef samninga yrði leitað, og að því leyti væri það varlegra fyrir þingið. En á hinn bóginn er það óheppilegra, að ákveða nokkuð um þetta, því að væri það gjört, þá myndi seljandi halda sjer við það hámark, sem tilgreint væri, og ekki láta jörðina fyrir minna, þar sem þá líka stjórninni væri heimilað að semja á þeim grundvelli. Jeg vil benda á þetta, til þess að þessar tvær hliðar á málinu verði athugaðar, ef það yrði sett í nefnd.

Það, sem segja má, að stjórnin hafi ekki gjört, er það, að hún hefir ekki lagt fram frumv. til laga um heimild til eignarnáms á jörðinni, enda mætti lengi um það deila, hvort slíkt hefði verið tímabært eða rjett, þar sem málinu var vísað til stjórnarinnar í fyrra, en ef til vill á mismunandi grundvelli, að því er sum atriði málsins snertir.

Um nauðsyn þessa máls þarf ekki að endurtaka það, sem sagt hefir verið, því að engin veruleg mótmæli hafa komið fram í umræðunum um það. Háttv. 1. þm. Húnv. (G. H.) hefir ekki beint talað móti því, að nauðsyn bæri til þessa, en hitt, sem háttv. þm. S.-Þing. (P. J.) sagði, að ekki dygði að einblína á einn stað, heldur þyrfti að rannsaka, hvar bráðust þörf væri á hafnargjörðum, það er vitanlega alveg rjett; enda hefir nýlega verið samþykt þingsályktunartillaga hjer í deildinni um það, að stjórnin skuli láta rannsaka, hvar tiltækilegast og mest þörf sje á, að hafnir verði gjörðar og lendingar bættar. Og þar sem hv. 1. þm. Árn. (S. S.) hjelt því fram, að tillaga sín bryti ekki bág við áður nefnda tillögu, nje heldur við skoðun háttv. þm. S.-Þing. (P. J.) á því, að fengið yrði heildaryfirlit yfir allar hafnir og lendingarstaði, þá sje jeg ekki ástæðu til að óttast það, að höfn verði gjörð í Þorlákshöfn á undan öðrum stöðum, er nauðsyn bæri til hafnar. Till. fer því að eins fram á það, að tryggja landinu eign á jörðinni, ásamt því sjávargagni, er hún hefir til að bera.

Nefnd sú, er í fyrra fjallaði um málið, áleit nauðsynlegt, að tryggja landinu eignarrjett á jörðinni, meðal annars af því, að nefndin leit svo á, að óheppilegt væri, að lagt yrði fram fje úr landssjóði til umbóta á jörðinni, án þess að stjórn og þing gæti haft hönd í bagga með, hvernig með væri farið, að jörðin kæmist ekki í hendur útlendinga og braskara. Enda mætti, ef þarna yrði gjörð höfn, leggja á hæfileg uppsátursgjöld, en íþyngja þó ekki um of útvegsmönnum í Þorlákshöfn.

Það mun hafa verið aðallega þetta, er vakti fyrir nefndinni í fyrra. Og hafi þetta verið rjett þá, fæ jeg ekki sjeð, að nein breyting hafi á því orðið síðan.