02.09.1915
Neðri deild: 49. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 1933 í B-deild Alþingistíðinda. (2635)

96. mál, kaup á Þorlákshöfn

Ráðherra:

Eftir þeim upplýsingum, sem háttv. þm. N.-Þing. (B. S.) hefir gefið, er það að sjálfsögðu rjettast, að taka málið út af dagskrá. Jeg veit auðvitað ekki, hvort þessar upplýsingar eru rjettar eða rangar, en býst þó heldur við, að þær sjeu rjettar, úr því að hann staðhæfir þetta svo fastlega. Nefndin þarf þá að leita sjer upplýsinga, fyrst og fremst með því að útvega sjer veðbókarvottorð um, hvað mikið hvílir á jörðinni.