04.09.1915
Neðri deild: 51. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 1936 í B-deild Alþingistíðinda. (2639)

96. mál, kaup á Þorlákshöfn

Sigurður Sigurðsson:

Jeg stend upp, til þess að mæla á móti hinni rökstuddu dagskrá og sömuleiðis brtt. á þgskj. 625. Jeg gjöri að vísu ráð fyrir því, að andmæli mín hafi lítið að þýða, en jeg vil gjöra mitt til, og verð að álíta bæði dagskrána og brtt. spor aftur á bak í málinu.

Við fyrri umræðu þessa máls var sýnt fram á það, að það hefði sína kosti, en líka sína galla, að tiltaka nokkuð um verðið. Með því að tiltaka verðið, væri það víst, að eigendurnir mundu aldrei selja eignina fyrir neðan hina tilteknu upphæð. En ef verðið væri ekki tiltekið, mundi auðveldara en ella fyrir landsstjórnina að semja við eigendurna. Jeg skal ekki fara langt út í sannvirði eignarinnar. Jeg skal að eins minna á það, að þegar rætt var um þessa tillögu hjer áður í sumar, þá var þess getið samkvæmt skýrslum Jóns verkfræðings Ísleifssonar, að eignin renti sig eins og stæði að minsta kosti upp á 100 þús. krónur.

Þótt stjórnin hafi ekki fengið ákveðin tilboð um verð jarðarinnar, þá undrar mig það ekki, þar sem hún aldrei mun hafa leitað þeirra í verulegri alvöru. Það orð hefir leikið á, að jörðin mundi ekki föl fyrir 150 þús. kr., en nú er sagt, að hún sje boðin fyrir 120 þús. kr. Jeg get vel ímyndað mjer, eftir þessu, að hún verði komin niður í 100 þús. kr. eða jafnvel enn lægra verð á næsta ári eða árum. En verðið er þó í mínum augum ekki aðalatriðið. Aðalatriðið er, að landið festi kaup á eigninni, því það er skilyrði þess, að eitthvað verði þarna að hafst.

Annars er tillaga okkar á þgskj. 244 svo vaxin, að það er alveg óhætt að samþykkja hana óbreytta fyrir þá, sem bera traust til stjórnarinnar í þessu. máli.

Mjer þykir það skrítið, að háttv. meðflutningsmaður minn (M. Ó.) skuli nú verða til að flytja fram rökstudda dagskrá og þannig tefja málið, þar sem hann hefir áður til þessa sýnt lofsverðan áhuga á því og viljað framgang þess flestum öðrum fremur.