04.09.1915
Neðri deild: 51. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 1938 í B-deild Alþingistíðinda. (2641)

96. mál, kaup á Þorlákshöfn

Sigurður Eggerz:

Það er að eins stutt athugasemd.

Háttv. 1. þm. Árn. (S. S.) sagði, að stjórnin hefði sýnt verulegan áhuga í að úvega tilboð um jörðina. Jeg hefi margreynt að fá tilboð og ekki tekist, enda má sjá, hve örðugt það er, af því, hve nefndinni nú hefir gengið illa að fá svör frá eigendunum. En sannleikurinn er sá, að jörðin er í spekúlation, og háttv. 1. þm. Árn. (S. S.) er óafvitandi í spekúlationinni; þess vegna er svo ilt að eiga við málið, af því, hve margir eiga hagsmuni sína undir verðhækkun jarðarinnar og þeim spekulationum, sem lega jarðarinnar hefir vakið. Ekki svo að skilja, að hv. 1. þm. Árn. (S. S.) sje að spekúlera fyrir eiginn reikning; til þess er hann alt of heiðarlegur maður. En mjer finst kenna nokkurrar óaðgætni hjá honum, er hann vill gefa stjórninni ótakmarkað umboð til að kaupa. Það verður að fara gætilega í að veita slík ótakmörkuð umboð, hvaða stjórn sem á hlut að máli, og alveg eins þó jörðin lægi fyrir utan kjördæmi stjórnarinnar. Og leiðinlegt er, að háttv. 1. þm. Árn. (S. S.) skuli vera að hleypa pólitík inn í málið, með því að gefa í skyn, að dagskráin feli í sjer vantraust til stjórnarinnar. Jeg held, að stjórnin muni ekki fara frá, þótt þessi rökstudda dagskrá verði samþykt, og þótt margar slíkar rökstuddar dagskrár verði samþyktar. Hv. samþingismaður ráðherra (S. S.) getur sofið rólega fyrir því.