19.07.1915
Neðri deild: 10. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 1983 í B-deild Alþingistíðinda. (2651)

14. mál, stjórnarskráin

Skúli Thoroddsen:

Háttv. 2. þm. Rvk. (J. M.) fjellu orð í þá átt, að honum væri það ljúft, að færa núverandi ráðherra vorum þakkir sínar fyrir aðgjörðir hans í stjórnarskrármálinu, og skil jeg það svo, sem hann segi þá, í nafni »Heimastjórnar«-flokksins: »Sundrung Sjálfstæðisflokksins var oss öllum svo hjartfólgið málefni, að nýja ráðherrann, og »Þremenningana« getum vjer nú allir faðmað að oss!«

Hitt, að honum hafi verið það ljúft að þakka, er á málsúrslitin er lítið, skil jeg á hinn bóginn alls eigi.

Hvað var það, sem Alþingi 1914 vildi?

Þegar litið er á »fyrirvarann« svo nefnda, þá er það tvent, er þar blasir við manni, sem vilji Alþingis:

a.1) að konungsúrskurðinum, er út yrði gefinn, mætti æ breyta, ef vildi, sem hverjum öðrum alíslenskum konungsúrskurði, og

b. að málið — þ. e. um uppburð ísl. mála fyrir konunginum — væri viðurkent alíslenskt sjermál að vera. Þetta er öllum ljóst, eða ætti þó að minsta kosti að vera það, — ljóst, hvort sem á »fyrirvarann« sjálfan er litið, eða á framkomu fyrverandi ráðherra vors (S. E.), eða á »yfirlýsingu 24 þingmanna«, þar á meðal núverandi ráðherra vors (hr. E. A.) einn, — enda honum þá enn eigi ráðherra-vonimar vaknaðar.

En er því nú náð, er Alþingi 1914 vildi?

Ad. a. Er því þá náð, að konungsúrskurðurinn sje sama eðlis, sem hver annar ísl. konungsúrskurður?

Í þessu efni nægir, að benda á:

1. að konungsúrskurðurinn á vera al-óbreytilegur í tíð núverandi konungs vors.

Er svo um ísl. konungsúrskurði yfirleitt? Nei!

2. Nýja konungsúrskurðinn, eða rjettara sagt: Ríkisráðsfundargjörðirnar á að birta Dönum, — með samþykki ráðherra Íslands.

Það er ekki gjört nema í því skyni, að í því felist þá eitthvað, sem dönsku þjóðina þykir þó varða nokkru, — gjört henni til tryggingar.

Henni er — með öðrum orðum lofað því, að svona skuli það vera.

Það er samið svona við hana!

En er þá þetta það, sem altítt er um íslenska konungsúrskurði yfirleitt? Nei!

3. Þá er tilorðning konungsúrskurðarins að öðru leyti, eins og háttv. þm. Dal. (B. J.) benti mjög rækilega á.

Forsætisráðherra Dana semur, á ríkisráðsfundinum, við ráðherra Íslands, — kemur sjer saman við hann um það, hvers eðlis, og hvernig, nýi konungsúrskurðurinn skuli vera.

Er þá svo um aðra íslenska konungsúrskurði? Nei!

Auglýsinguna til Dana — sbr. kgl. auglýsinguna 20. okt. 1913 — má og enn gefa út, hvenær sem vill! Það er ekkert, sem hindrað geti það, þ. e. þyki sú árjetting þá eigi allsendis óþörf, sem komið er.

En hví vildu nú Danir fá þenna samning?

Þeir vildu vera alveg vissir, um það, að gjermál Íslands yrðu æ borin upp fyrir konunginum í ríkisráðinu áfram, sem verið hefir, vildu eiga það víst, að uppburður mála vorra fyrir konunginum væri skoðaður sem »sam-mál«, svo sem þeir telja vera.

Þeir vildu eiga það alveg víst, nema »eins góð trygging« kæmi í staðinn; — en um það dæma þeir sjálfir!

En var ráðherra Íslands þá svo grunnhygginn, að hann sæi eigi, að um samning við Dani var að ræða, — einmitt um alveg sams konar samning, sem hann sjálfur hamaðist mest á móti á undan kosningunum síðustu, og á aukaþinginu í fyrra?

Engan veginn!

Það sýndu og fyrstu orðin hans á flokksstjórnarfundi, er hann var nýkominn heim úr siglingunni.

Hann viðurkendi það þá skýrt, og einlæglega, að um fullnægingu »fyrirvarans« væri eigi að ræða, þar sem dönsku leynitilboðin væru annars vegar.

En hvað var það þá, sem hringsnúningnum olli?

Það eitt, að hann var — eini vegurinn upp í ráðherra sætið.

Ad b. En þá kem jeg að hinu: Fjekkst það þá, sem í »fyrirvaranum« var áskilið, að málið væri viðurkent íslenskt sjermál að vera?

Því fer mjög fjarri, og skal í því skyni að eins benda á þetta:

1. að forsætisráðherra Dana blandar sjer í málið á ríkisráðsfundinum, eins og um »sam-mál«, en eigi um al-íslenskt sjermál, væri að ræða.

Þetta gjörir hann, þrátt fyrir ákvæðin í 1. og 2. gr. stöðulaganna frá 2. jan. 1871, þar sem Danir viðurkenna þó »sjeratök landsrjettindi«, og »sjerstakleg málefni« vor, — gjörir það og, þrátt fyrir ákvæðin í 1. gr. stjórnarskrár vorrar frá 5. jan. 1874, þar sem segir: »hefir landið löggjöf sína, og stjórn, út af fyrir sig«, þ. e. í sjermálunum.

Sbr. og enn fremur: að ísl. löggjafararvaldið hefir sjálft sett »ríkisráðsákvæðið« í stjórnarskipunarlögin frá 3. okt. 1903, þ. e. slegið því þá og föstu, að það, hvar mál vor eru borin upp fyrir konunginum, væri íslenskt sjermál.

2. Ríkisráðsfundargjörðirnar 19. júní 1915 sýna þá og ljóslega, að svo fjarri fer því, að konungurinn viðurkenni, að málið sje sjermál, að hann tekur þvert á móti í strenginn með danska forsætisráðherranum, er heldur fram dönsku skoðuninni, að málið sje »sam mál«, og þessu samsinnir svo ráðherra Íslands, þ. e. tekur á sig ábyrgðina af tjeðri framkomu konungs, — fellst á, eða gjörir þann samning, að »sam-mál« skuli það talið.

3. Ráðherra Íslands mótmælir því og eigi á ríkisráðsfundinum 19. júní síðastl., er danski forsætisráðherrann blandaði sjer þar í málið, — viðurkennir því þar með, að það, hvar íslensk mál eru borin upp fyrir konunginum, »viðurkennir«, að það sje málefni, sem til danska forsætisráðherrans taki, enda þótt um málefni ræddi, sem konungur Íslands, á ábyrgð ráðherra Íslands, átti aleinn að útkljá.

Vita mátti og ráðherra Íslands, að eigi þurftum vjer í þessu efni — þótt minni máttar sjeum — að lúta vilja Dana.

Það er íslenski landsdómurinn, sem bær er, að dæma um það, hvor skoðunin er rjettari, — skoðun vor, eða danska skoðunin, er málið telur »sam-mál«.

En alt og sumt er, að eyða er í lögin — þ. e. lagaákvæði vantar — til að skera úr ágreiningi, er upp kynni að koma milli íslenska og almenna löggjafarvaldsins, þ. e. til að skera úr, hvort mál er ísl. sjermál, eða teljast ber til »sam-málanna«, er stöðulögin frá 2. jan. 1871 eigi telja íslenska löggjafarvaldið ná til.

Ráðherra Íslands hefir því, — svo sem nú hefir all-ítarlega sýnt verið — í báðum atriðunum, sem »fyrirvarinn 1914« vildi fá framgengt, gengið beint gegn »fyrirvaranum«, þ. e. hefir haft að engu ályktanir Alþingis 1914, og fyrri kenningar sjálfs sín.

Og niðurstaðan er þá og sú, að þrátt fyrir það, er gjörðist á ríkisráðsfundinum 19. júní 1915, þá er enn söm deilan milli Dana, og Íslendinga, sem fyrr, þ. e.: Danir telja málið »sam-mál«, en Íslendingar telja það sjermál, — viðurkennandi alls eigi ráðherra Íslands hafa haft umboð, til að semja svo við Dani, sem orðið er.

»Fyrirvari« Alþingis 1914 var »fullmaktin«, eða umboðið, sem Íslendingar gáfu ráðh. sínum, og Dönum var það kunnugt, þ. e.: þeir voru þess vitandi, að hann gat eigi, svo að gilt væri, farið út fyrir það, — gat því eigi bundið Alþingi, nje Ísland.

En einmitt hjer í felst þá og eina hjálpin, þó að svo fari, sem vitað er, að verður, að Alþingi láist nú, að mótmæla, sem skylt er.

Annars hefi jeg, á öðrum stað, lýst nokkuð aðförum núverandi ráðherra vors í máli þessu, og þarf því eigi, að fjölyrða hjer um það, — hefði jeg slept því, að sýna honum sjálfan hann frekar í spegli, en orðið er, hefði hann eigi eitthvað verið að ybbast við mig, í ræðu sinni.

Jeg hefði þá slept því, að minna enn á það, hvað peninga-ílöngunin, og metnaðargirndin, hefir leitt hann út í, og rifja því að eins stuttlega upp þetta:

1. Fyrst, þegar á »utanstefnurnar« var minst, þá var hann þeim algjörlega mótfallinn, sem vjer sjálfstæðisflokksmennirnir yfirleitt.

Á hinn bóginn langaði hann þó þegar, ósköpin öll, er kunnugt var orðið, að hann var einn þeirra, er fyrir valinu urðu.

En með því að oss, sem í flokksstjórninni vorum, duldist þá eigi, hvað — og hver — valinu á mönnunum hafði ráðið, þá var þeim bannað, að semja, — var eigi treyst til þess, af mjer, eða öðrum, enda þá og enn eigi gleymt orðið, hverjir verið höfðu »uppkastsmenn«, og »bræðingsmenn«, áður.

2. Heimkomnir, úr siglingunni, höfðu þeir »þremenningarnir« það og fyrst á vörunum: »Höfum engu lofað!«.

Á hinn bóginn spurðu þeir þó: »Geta menn gengið að nokkru, sem eigi fullnægir »fyrirvaranum?«.

3. Þá er og leyndin, sem höfð var, þ. e. ekkert mátti vitnast, um »leynitilboðin« dönsku, en makkað svo áfram, símskeyta-leiðina, við danska valdið, á bak við oss hina, sem í flokks-stjórninni vorum, þ. e. samningunum áfram haldið, að oss alveg óafvitandi.

En þegja áttum vjer áfram, — sífelt, að þegja, svo að ráðherra, og fjelagar hans, kæmu sjer þá þess betur við, að ginna menn úr Sjálfstæðisflokknum til fylgis sjer.

Aðal-yfirsjón vor: Að vjer þögðum þá og alt of lengi.

Annars get jeg eigi, í þessu sambandi, stilt mig um, að minnast á, að jeg heyrði núverandi ráðherra vorn segja í morgun, á lesstofu Alþingis, við annan þingmann: »Gamanið í efri deild á morgun, — í neðri deild í dag!«, þ. e. hann átti við, að þá yrðu umræðurnar um stjórnarskrármálið.

Jeg hefi getið þessa, þar sem það sýnir svo glögglega: al-tilfinningarleysið, — sýnir, að það, að gjöra það, sem rangt er, það er — sem tíðast — að eins gaman.

Sýnir þá og, að það er ráðherranum það engu síður, þótt að því snúist, er hverri þjóð æ á að vera dýrast, þ. e. rjettindi sjálfs landsins.

Það er gaman, — ekkert, nema gaman, þótt dýrt spaug ætti það reyndar að verða:

1. að ganga þvert á móti vilja Alþingis, — og eta alt ofan í sjálfan sig, að eins í því skyni, að geta orðið ráðherra.

2. að gjöra undirboð, þegar ráðherra Íslands, sem var, hafði fylgt fram vilja þingsins, gagnvart erlenda valdinu.

En þannig hefir þá Ísland, og íslenska löggjafarvaldið, verið gjört hlægilegt, bæði í augum Dana sjálfra, og annara.

Og hvaða afleiðingar getur það haft, og hlýtur jafnvel að hafa, í sjálfstæðismálum landsins, ef gjörð eru þannig undirboð?

Það sjá allir, hve afaróheppilegar þær geta orðið,

Ráðherra lætur, sem honum þyki það kynlegt, að jeg leggi nú áherslu á þetta, þar sem svo hafi þó eigi verið, seint á árinu 1913, er fyrst varð hjer kunnugt um framkomu þáverandi ráðherra (H. Hafstein's) í ríkisráðinu.

Það er satt, að flokksstjórn Sjálfstæðisflokksins, sem þá var, og sem jeg var einn í, var málefni þetta þá eigi ljóst, varð og að kveða upp úr nær þegar, hvort hún vildi, að snúist yrði gegn stjórnarskrárfrumvarpinu, eður því framfylgt.

Á hinn bóginn sannfærðumst vjer þó þegar, er núverandi ráðherra vor hafði, — rjett á undan kosningunum, og eftir fleiri mánaða algjörða þögn, af hans hálfu, sem og annara, — bent á hættuna, þ. e. á þrengingu íslenska sjermála-svæðisins, og það var oss sjálfsagt, þ. e. að láta þá sannfærast.

En það eru snúningar, sem alt annars eðlis eru, sem núverandi ráðherra vor hefir leyft sjer í málinu, eins og margsýnt hefir þegar verið.

Ráðherra vor var og t. d. Sjálfstæðisflokksmaður núna nýskeð, þ. e. sjálfan þingsetningardaginn, en orðinn síðan næsta daginn »heimastjórnar«-maður — kaus þá með þeim í nefndir. En síðan var hann í sjerflokki orðinn, og loks sótti hann, sem kunnugt er, um upptöku í, eða þó kosningasamband við »Bændaflokkinn« (!).

Þá ljet ráðherra og, sem hann furðaði mjög á því, að eigi væri harðar í sakir farið, gagnvart honum, en gjört er, í þingsályktunartillögunni, af oss Sjálfstæðisflokksmönnum.

En til þess er því að svara:

1° að vjer buðum ráðherra, að lýsa yfir því, að í þingsályktunartillögunni ætti ekkert vantraust til hans að felast, heldur væri hún að eins borin fram til öryggis, vegna rjettinda landsins.

Svo langt vildum vjer því ganga, til þess að fá því þó framgengt, sem oss var — alt.

En ráðherra veit, hvernig hann tók þessu, — tók því eigi ólíklega á fyrsta kvöldfundinum, er það bar á góma, enda »heimastjórnar«-menn þá og að mun hræddir orðnir, og vildi þá og það happið til, að ráðherra alsnerist þá yfir nóttina, þ. e. var orðinn allur annar daginn eftir.

2° að vjer sjálfstæðisflokksmennirnir, vildum þá og, ef unt væri, að hjá því yrði komist, að »heimastjórnar-mennirnir« fengju þann vilja sinn, að Sjálfstæðisflokkurinn al-sundraðist, — vildum, að samkomulag næðist, og alt kæmist í samt lag, sem fyrr, ef auðið væri.

3° að ráðherra hefir og sýnt sig mjög duglegan, að fá menn til fylgis við sig, — fá þá til þess, að lúta að eins hans eigin vilja, hvað sem skoðun þeirra sjálfra á málefninu liði.

Það er kunnugra, en frá því þurfi að segja, að sumir þingmenn hafa alls engan frið haft á sjer, — ráðherra verið síboðandi þá á einn fundinn eftir annan.

Menn hafa verið síþreyttir, og átt þá ýmist, að svara að vörmu spori, ýmist þessari, eða hinni, lögfræðislegu spurningunni frá ráðherra, — hvað þeir segðu um það, eða hvernig þeir litu á þetta, o. s. frv., og jankað þá ef til vill að lokum, eða sagt alls ekkert, þ. e. orðið fegnir að kaupa á sig friðinn.

Þetta höfum vjer Sjálfstæðisflokksmennirnir alt orðið að íhuga, og þar í felst þá og aðal-ástæðan til þess, að eigi var frekar í sakir farið, en gjört var.

Oss var það þá nóg, og varð að vera það nóg, gætum vjer þá fengið það fram, sem mestu skifti, þ. e. gætum vjer þá þó komið fram hóflegum mótmælum, öryggis landsins vegna.

En jafnvel þetta tekst oss nú ekki, þar sem meiri hluta þingmanna er það alt, að styggja eigi núverandi ráðherra á nokkurn hátt.

Á hinn bóginn ber þó bæði »rökstudda dagskráin«, sem borin er fram hjer í deildinni, sem og þingsályktunartillagan, sem borin er fram í efri deild, það ljóslega með sjer, að styðjendur ráðherra vilja þó eigi, að hnekt sje í nokkru rjettindum landsins, en er það eitt alt, að geta þó komið því svo fyrir, að þeir hjálpi núverandi ráðherra.

Þeir láta því svo — sbr. bæði »rökstuddu dagskrána«, og þingsályktunartillöguna í efri deild —, sem »Fyrirvara» Alþingis 1914 sje fullnægt, þ. e. láta, sem þeir skilji ekki annað.

En einmitt í þessu skilningsleysi þeirra — eða rjettara: uppgjörðar-skilningsleysi, hvað eigi fáa þeirra snertir — felst þá og björgin, því að jafnskjótt er þingið verður svo mönnum skipað — eða núverandi ráðherra vor er farinn að eldast svo í tigninni — að hjálpin við hann er eigi lengur orðin mönnum alt, þá segja menn, sem er, að á ríkisráðsfundinum 19. júní 1915 var »Fyrirvaranum» ekki fullnægt, en vilja Alþingis 1914 algjörlega traðkað.

Og þá, þegar svo er komið, þá koma og fram mótmælin, og þá í enn öflugri mynd, en nú var fyrirhugað, atvikanna vegna.

Sem ný mótmælandi, enn kjarnyrtari, þingsályktun, koma þau þá fram, þ. e. kjósi menn þá eigi, að fara þá leiðina, sem enn er þó öflugri, þ. e. láta Landsdóminn þá skera úr, hvað rjettast var.

1) Til glöggvunar hefi jeg, við leiðrjettingu ræðunnar, sett: a+b, og fleira, sem sýnir sundurliðunina. Sk. Th.