20.07.1915
Neðri deild: 11. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 2123 í B-deild Alþingistíðinda. (2665)
14. mál, stjórnarskráin
Flutningsm. (Sigurður Eggerz):
Tempora mutantur nosque mutamur in illis, segir í latínsku kvæði, þ. e. tímarnir breytast og mennirnir með. Mjer varð á að detta þetta spakmæli í hug, þegar jeg heyrði hæstv. ráðherra skora á oss sjálfstæðismenn, að lýsa yfir því, hvað vjer hugsuðum okkur að gjöra í sjálfstæðismálum vorum. Þetta er alveg sama spurningin, sem heimastjórnarmenn hafa stöðugt verið að stagast á. Sama spurningin kom fram á fundi, þar sem bæði jeg og hæstv. ráðherra vorum staddir. Þá svöruðum við báðir á sömu lund. Hæstv. ráðherra svaraði á þá leið, að sjer dytti ekki í hug að svara, nema í samráði við flokksmenn sína. Þá vorum við sammála, hæstv. ráðherra og jeg. Okkur þótti báðum hyggilegast, að farið væri varlega í jafnmiklu ágreiningsmáli, og ekki látið til skarar skriða, nema öruggur þingmeirihluti væri að baki.
Hæstv. ráðherra var með einhverjar smáhnippingar til mín í einni ræðu, sem hann hjelt. Hann sagði, að jeg hefði ekki komið nokkuru máli fram. Þessu mótmæli jeg. Aðalmál mitt var stjórnarskrármálið; því kom jeg fram á þinginu og fylgdi því á þeim grundvelli, sem jeg taldi rjettan.
Hæstv. ráðherra vildi gjöra sjer mat úr því sama, sem andstæðingar mínir hafa láð mjer, sem sje að jeg hafi sent símskeyti til miðstjórnar sjálfstæðisflokksins og óskað að heyra undirtektir hennar, Jeg sje nú ekki betur en að það væri sjálfsagt í jafnmikilvægu máli, og í öllum þingræðislöndum munu ráðherrar bera sig saman við flokk sinn, þótt um ómerkari mál sje að ræða. Jeg skýrði frá því í símskeytinu, hvaða lausn jeg gæti ímyndað mjer að fá mætti, en tók fram, að jeg hefði ekki boðið hana og hún ekki verið boðin mjer. Og jafnframt tók jeg fram í símskeytinu, að jeg væri hættur öllum samningum. Er jeg svo fjekk skeyti frá flokksbræðrum mínum um, að þeir fjellust ekki á þessa lausn, þá sendi jeg þeim símskeyti um hæl og þakkaði þeim fyrir, að þeir væru í samræmi við mig. Hjer var því að eins af minni hálfu að ræða um varúð gegn flokki mínum, og það, sem nú er að ske, sýnir, hvort ekki hefir verið þörf á varúðinni.
Hæstv. ráðherra átaldi mig fyrir grein í Ingólfi, þar sem jeg mótmælti því, að frumvarpið væri staðfest á öðrum grundvelli en Alþingis, með tilvísun til yfirlýsingar þingmeirihlutans.
Jeg hefði litið svo á, sem jeg hefði brugðist trausti þings og þjóðar, hefði jeg farið að stýra undan og stíga í aðra átt en jeg gjörði 30. nóv. í ríkisráðinu. Hv. 1. þm. Rvík. (S. B.) sagði, að jeg hefði seinni partinn í vetur og í vor haldið öðru fram en jeg gjörði í ríkisráðinu; þetta eru rakalaus ósannindi; jeg hefi ekki á nokkurn hátt haldið öðru fram síðan en jeg gjörði þá, og jeg hefi meira að segja ætíð valið sömu orðin í umræðum mínum um stjórnarskrármálið, eins og jeg notaði í ríkisráðinu 30. nóv. Jeg skil því ekki, að háttv. þm. (S. B.) geti haldið þessu fram í alvöru og vona, hans vegna, að hann gjöri það ekki.
Það hneykslaði hæstv. ráðherra mikið, að greinin, sem jeg skrifaði í Ingólf, þar sem jeg krafðist þess, að stjórnarskráin yrði ekki staðfest, nema fyrirvara Alþingis væri fullnægt, kom ekki út, fyrr en daginn eftir að staðfestingin hafði farið fram. Það er auðvelt að sýna hæstv. ráðherra fram á, að til þess liggja auðskildar ástæður. Þegar jeg ritaði greinina, hafði jeg fyrir mjer ótvíræð loforð, sem þeir hæstv. ráðherra og hv. 1. þm. Rvk. (S. B.) höfðu gefið um það, að ekkert skyldi verða gjört í málinu fyrr en fulltrúar þjóðarinnar hefðu átt kost á að kynna sjer það. Auk þessa hafði stjórnarblaðið »Ísafold« hvað eftir annað lýst yfir hinu sama. Jeg gat því ekki búist við því, að neitt yrði gjört, fyrr en þing kæmi saman. Jeg lít nefnilega svo á, að þau loforð, sem gefin eru þjóðinni sjeu ekki óhelgari en önnur loforð. Jeg heyri, að hæstv. ráðherra hlær; en jeg verð að segja, að það undrar mig stórlega, að hann skuli nú hlægja að því, að loforð sjeu rofin, jafn hátt eins og hann hefir talað undanfarið um loforðasvik í sambandi við birtingu leyniskjalanna.
Hæstv. ráðherra hefir í ræðum sínum lagt ríka áherslu á að fá að vita með vissu, hver afstaða mín hafi verið til birtingarinnar á skjölunum. Og það eru fleiri en hann, sem virðast vera forvitnir um það mál. Þó finst mjer afstaða stjórnarblaðsins »Ísafoldar« einna einkennilegust. Fyrst er því lýst yfir með miklum fjálgleik og, að því er virðist, hreinni gleði, að jeg sje algjörlega laus við þessa birtingu, og að mjer sje ekki að neinu leyti um hana að kenna. Skömmu síðar er það svo tekið fram í blaðinu, að jeg sje einn af eiðrofunum. Þá kemur í næsta blaði smágrein, sem ber þetta til baka, en litlu síðar er Sigurður Eggerz enn á ný talinn meðal þeirra, sem »Ísafold« kallar drengskaparheitrofa! Jeg tel það alveg víst, að ef háttv. deildarmenn gætu gægst inn í huga hæstv. ráðh. og háttv. 1. þm. Rvk., þá myndu þeir ekki geta stilt sig um að brosa, er þeir heyra alvöruþungann, sem þeir tala um birtingu leyniskjalanna með. (Sveinn Björnsson: Af hverju myndu menn þá brosa?). Af því að þeim myndi ekki finnast ytri sakleysissvipur þessara sálhreinu manna svara til ástandsins inni fyrir í sálinni.
Jeg get ósköp vel sagt frá, hvernig á því stendur, að jeg hefi ekki kveðið upp með það, hvort jeg fjellist á birtinguna eða eigi. Ástæðan til þess var sú, að jeg vissi, að svo framarlega, sem það tækist, að blanda mjer inn í málið, þá yrði alt gjört, sem hægt væri, til þess að draga athyglina frá sjálfum málstaðnum og að birtingunni, sem alt af hlaut að verða aukaatriði. Þetta vildi jeg reyna að forðast, og því hefi jeg ekki sjeð, og sje ekki enn, ástæðu til að gefa aðra yfirlýsingu um þetta mál en jeg hefi getið, nefnilega þá, að jeg hefi hvorki birt og ekki heldur látið birta leyniskjölin. Fyrir mjer var sjálfur málstaðurinn, íslenski málstaðurinn, alt. Og það gefur að skilja, að enginn á í öðru eins stríði, eins og jeg hefi nú átt, að gamni sínu. Mjer hefir jafnan verið kærast að lifa í friði við alla menn, en sú ábyrgð, sem jeg fann hvíla á mjer við að flytja mál Íslendinga við konung, gjörði það að verkum, að jeg fann, að nú yrði jeg að gjöra það, sem jeg gæti, og vegna þessa hefi jeg þolað mótmælalaust allan þann saur, sem á mig hefir verið kastað í þessu síðasta pólitíska illviðrahreti. Sjálfur hefi jeg reynt að láta rökin tala, en brátt mun það sýna sig, hvort það nægir í landi voru. En þeir, sem mest hafa hlaðið fúkyrðum að mjer nú, eru einmitt þeir menn, sem luku mestum lofsyrðum á framkomu mína í ríkisráðinu 30. nóv. síðastl. Árásirnar byrjuðu undir eins og þeir voru komnir heim, þrímenningarnir, sem boðaðir voru á konungsfund. (Sveinn Björnsson: Er þessum ofsóknarummælum beint til mín?). Þeim er meðal annars beint til blaðanna — blaða núverandi stjórnar, þeirra, sem áður töldu sig meðal sjálfstæðisblaðanna. Jeg hefi aftur á móti enga ástæðu til að víta framkomu heimastjórnarblaðsins »Lögrjettu«, því hún hefir aldrei ráðist á mig persónulega nje mína »administration«, pólitískar skoðanir mínar og þess blaðs hafa auðvitað verið þverólíkar í sjálfstæðismálinu.
Hæstv. ráðherra sagði í ræðu sinni, að hann teldi það óheppilegt, að við, sem erum andstæðir honum í þessu máli, hefðum ritað og rætt opinberlega um málið, því að síðar myndi verða vísað í þær umræður vorar. Jeg get ekki með besta vilja sjeð, á hvern hátt okkur hefði verið mögulegt að sannfæra menn um að okkar málstaður væri rjettur, ef við máttum ekki rita um hann og ræða málið opinberlega, og frá sjónarmiði okkar, sem álitum staðfestingarskilyrðin óholl fyrir landið, get jeg ekki sjeð, að launungin bæti neitt. (Ráðherra: Það var hægt að ræða málið á þinginu). Það höfum við líka gjört. Við höfum átt fundi um málið með þeim 24 þingmönnum, sem töldust til þingmeirihlutans í fyrra og höfum gjört alt, sem við gátum, til þess að reyna að stilla til friðar í þessu máli.
Háttv. 1. þm. Rvk. (S. B.) sagði, að í boði hefði verið tillaga, sem hefði átt að geta sameinað alla. Sú tillaga var þannig vaxin, að í henni falst traustsyfirlýsing til ráðherrans. Jeg álít, að hún hafi ekki verið einhlít til að bjarga málinu. Jeg heyri að háttv. 1. þm. Árn. (S. S.) hlær; honum finst hann víst öruggur nú í skjóli ráðherrans og þingmeirihlutans. Það hefir verið tekið fram af þeim, hv. ráðherra og háttv. 1. þm. Rvk. (S. B.), að óviðkunnanlegt væri, að vera að eyða fje landsins í þessar umræður hjer á þinginu. Mig furðar það stórlega að heyra slík orð af þeirra munni nú, en í fyrra þegar mestur hluti þingsins fór til að ræða um fyrirvarann og stjórnarkrármálið, þá heyrðist ekki eitt einasta orð frá þeim í líka átt.
Annað, sem jeg furða mig á, af því, sem komið hefir fram við þessar umr., er »kritikin« á tillögunni, sem við berum fram. Stundum er það talinn galli á henni, að hún sje of meinlaus, og stundum er henni fundið það til foráttu, að í henni felist vantraust til ráðherrans. Mjer finst það vera aðalatriðið, að hún komi að gagni, verði hún samþykt, og það er jeg sannfærður um að hún gjörir.
Það er eitt, sem græðst hefir á þessum umræðum. Jeg skildi svo ummæli hæstv. ráðherra, sem hann teldi það nauðsynlegt skilyrði þess, að fyrirvaranum væri fullnægt, að konungur tæki hann til greina og viðurkendi hann með þögninni. Svo langt er þá hæstv. ráðherra kominn nú, að hann játar, að þagnarviðurkenning konungsins á fyrirvararanum hafi verið nauðsynleg. En hvar er sú þagnarviðurkenning? Hana vantar, eins og jeg hefi rækilega bent á áður. Annars þykir mjer rjett að minna aftur á ummæli ráðherra í Ísafold 31. des. 1914. Þau voru þannig:
»En það, sem vjer vildum fá skýrt fram, var það, hvort konungur hefði skoðað málið sjermál eða eigi. En þá yfirlýsingu höfum vjer enn eigi fengið«.
Sú yfirlýsing er ekki fram komin; það sjá allir, og þegjandi samþykki er svo langt frá að sje til staðar, sbr. allar umræðurnar 19. júní síðastl.
Jeg skal taka það fram, áður en jeg sest niður, að jeg hefi ekki fengið svör hjá hæstv. ráðherra, nema við örfáum af þeim athugasemdum, sem jeg kom með í fyrstu ræðu minni. Jeg hlýt að virða þetta svo, að háttv. andmælendur mínir treystist ekki til, að hrekja það, sem jeg hefi sagt, og jeg slæ því föstu, að hæstv. ráðherra hafi ekki haft neina heimild til að lýsa því yfir í ríkisráðinu, að spurningin um ríkisráðssetuna væri »af formel theoretisk Art«. Það er og verður »praktiskt« spursmál.
Háttv. 1. þm. Rvk. (S. B.) (Sveinn Björnsson: »De mortuis nil nisi bene«!). Jeg skal ekki fara neitt illa með hann, af því hann er dauður. Hann sagði, að það væri ekki rjett hjá mjer, að Hans hátign konungurinn fjellist á orð forsætisráðherrans. Jeg skal benda hv. þm. (S. B.) á það, að þótt Hans hátign konungurinn viðhafi ekki alveg sömu orðin, sem forsætisráðherrann, þá er efnismunurinn enginn á því, sem þeir segja. Forsætisráðherrann talar og heldur fram dönsku skoðuninni, síðan talar Íslandsráðherrann og mótmælir forsætisráðherranum. Þá stendur konungur upp og felst á orð forsætisráðherrans og síðan er stjórnarskráin undirskrifuð og staðfest.
Það hefir ekkert komið fram, hvorki við umræðurnar í ríkisráðinu, nje heldur við umræðurnar hjer í þingsalnum, sem sýni það, að »opna brjefið« sje ekki enn í gildi. Háttv. andmælendur mínir halda því fram, að svo sje ekki, en þeir eiga eftir að sanna mál sitt í því efni, og jeg er hræddur um að þeim veitist það allerfitt.
Jeg sje ekki ástæðu til að fjölyrða frekar um þetta mál. Jeg ætla einungis, af því að hæstv. ráðherra virtist halda, að jeg teldi mig þjóðarhetju, vegna framkomu minnar í þessu máli, og að hann taldi mikil líkindi til að jeg endaði á fjósbásnum, — þá ætla jeg einu sinni enn að lýsa yfir því, að jeg tel mig ekki hafa unnið neitt þrekvirki; jeg hefi ekki gjört neitt annað en haldið fram málum Íslands eftir því, sem jeg áleit sannast og rjettast, og það er ekki neitt þrekvirki, þótt jeg segði konungi vilja Alþingis í þessu máli. Um hitt atriðið, hvort örlagaþræðir mínir muni liggja, vil jeg ekki deila við hæstv. ráðherra.