20.07.1915
Neðri deild: 11. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 2145 í B-deild Alþingistíðinda. (2674)
14. mál, stjórnarskráin
Ráðherra:
Jeg vildi að eins gjöra örstutta athugasemd út af orðum háttv. þm. N.-Ísf. (Sk. Th.). Hann syndgaði á því sama, sem háttv. flutnm. (S. E.). Hann vjek að þriðja manni, sem ekki er hjer staddur.
Hann sagði, að málað hefði verið yfir flöggin á »Gullfossi« að tilhlutun okkar þrímenninganna, en við svo látið framkvæmdarstjóra Eimskipafjelags Íslands, herra E. Nielsen, bera skellinn. Það er nú alkunnugt, þótt þessi háttv. þm. (Sk. Th.) viti það ef til vill ekki, að þetta eru ósannindi. Jeg, og við allir þrír, áttum engan hlut að því, að málað var yfir flöggin, og jeg hefi ekki heldur fengið herra Nielsen til þess, að taka á sig ábyrgðina fyrir það. Jeg vissi ekkert um, að hann hefði gjört það, fyrr en hann hafði ritað grein sína í »Nationaltidende«. Og maður, sem talar af jafnmikilli andagift um sannsögli og gott framferði, eins og háttv. þm. N.-Ísf. (Sk. Th.), ætti ekki að bera annað eins og þetta á borð fyrir háttv. deild.
Þetta vængjaða orð hans um »prakkarann« ætla jeg ekki að fara að eltast við, en það, ásamt fleiru í ræðu hans, sýnir fullvel menningarstig hans. Hann ber það af sjer, að sig hefði langað í ráðherradóm, og skal jeg ekki heldur þrátta um það við hann. Um það má hann best vita sjálfur.
Út af því, sem hann talaði um stjórnarfrumvörpin, skal jeg fyrst og fremst svara því, að hvorki jeg nje háttv. fyrrv. ráðherra hafði góðan tíma til undirbúnings þeirra. En hins vegar kemur mjer það nokkuð kynlega fyrir sjónir, að þessi háttv. þm. (Sk. Th.) skuli hafa mikið á móti því af stjórnarfrumvörpunum, sem fer fram á fjölgun ráðherra, því að hann hefir áður barist fyrir því í sínu góða blaði, að ráðherrar skuli eigi vera færri en þrír, og ritað vel um það, svo sem hans var von og vísa. Loks hefir hann samþykt það í stjórnarskrárfrumvarpi þingsins 1911, að fleiri skyldu vera ráðherrar en einn, og svo látið kjósa sig 1911 upp á að samþykkja það aftur.
Jeg sje ekki ástæðu til þess, að fara mikið út í það, sem háttv. flutnm. (S. E.) sagði síðast. Hann getur ekki vitað um það, hvaða greinar eru innblásnar af stjórninni, jafnvel þótt í stjórnarblaði sje, en hitt veit hann, að stjórnin ber ekki ábyrgð á því, sem þar stendur. Í því tilfelli, er hjer um ræðir, gat jeg eigi hafa innblásið neitt blað á Íslandi, því jeg var sjálfur utanlands þá, og hjer átti maður í hlut, sem ekki gat borið hönd fyrir höfuð sjer. (Sigurður Eggerz: Hann getur skammað mig fyrir þetta í Ísafold og gjörir það vonandi strax á morgun). Það er alveg sama. Háttv. flutningsm. (S. E.) veit, að orðin, sem reyndar voru hlægileg, voru töluð hjer í þinghelginni. (Bjarni Jónsson: Ætlar nú ráðherra að fara að verða heilagur aftur?). (Sigurður Eggerz: Jeg skal tala orðin á morgun utan þings, ef hann vill). Já, því getur háttv. þingmaður lofað, en illa þekki jeg hann, ef hann hefir þá kjark í sjer til þess. Jeg segi ekki, að orðin hafi verið þannig, að þau hefðu bakað honum lagalega ábyrgð, en lítt voru þau þó sæmandi, og það er nú einu sinni talið rjett princip hjer á þingi, að halda óviðkomandi mönnum (þriðja manni) fyrir utan umræðurnar.