21.07.1915
Neðri deild: 12. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 2149 í B-deild Alþingistíðinda. (2680)
21. mál, landhelgisvarnirnar
Flutnm. (Skúli Thoroddsen):
Jeg ætla ekki að ræða langt mál um þessa tillögu, enda mælir hún með sjer sjálf.
Eins og kunnugt er, hafa víða komið fram umkvartanir yfir því, að strandgæsluskipið gæti ekki komist yfir að annast landhelgisvörnina svo rækilega, sem þörf er á, eins og vel er skiljanlegt, er á víðáttu landhelgissvæðisins er litið, og þar sem fjöldi erlendra fiskiskipa dvelur hjer við land.
Að mínu áliti, og margra annara, væri það því miklu heppilegra, að strandvarnirnar væru faldar fáeinum bátum, á stærð við botnvörpungana sjálfa, er ekki þyrftu að kosta meira, en 150–200 þús. kr., hver þeirra, eða þá þar um.
Jeg skil og ekki, að það ætti að gjöra Dönum mikið til, þó að þeir höguðu því þannig, að láta »Íslands Falk« ganga inn í flotann, en ljetu í hans stað smíða nokkra fallbyssubáta, til að sjá um strandvarnirnar.
Eins og kunnugt er, heldur Danastjórn því fram, að Danir eigi að sjá um landhelgisvarnirnar hjer við land. En fengjust þeir til að samþ., að vjer Íslendingar tækjum að oss strandvarnirnar, þá væri það vitanl. ákjósanlegast, og ætti oss þá síst að verða skotaskuld úr því, að geta leyst þær engu verr af hendi, en Danir gjöra.
Vjer eigum vísi til landhelgissjóðs, sem vjer getum látið taka lán, til þess að smíða t. d. 1–2 fallbyssubáta, til byrjunar. Sjóðnum mundi ekki vera það ofvaxið, að borga rentur og afborgun af því láni, ekki síst ef frv. þeirra háttv. 2. þm. N.-Múl. (J. J.) og háttv. þm. A.-Sk. (Þ. J.), um aukið landssjóðstillag til sjóðsins næði fram að ganga, og þó allra helst, ef það væri þá haft nokkuð hærra, en þeir hafa farið fram á.
Nú hafði jeg og hugsað sem svo, að ef þingið samþykti þessa till., og ef Danir vildu ekki verða við þeim tilmælum, að haga landhelgisvörninni, eins og hún fer fram á, þá gæti Danastjórn því síður haft á móti því, að vjer tækjum sjálfir að oss strandgæsluna.
Sýnist mönnum á hinn bóginn rjettara, að vjer Íslendingar tökum þegar að oss strandgæsluna, þá álít jeg og rjett, að bíða ekki, en samþykkja þegar á þessu þingi lög, sem heimila landhelgissjóðnum lántöku, til þess að láta smíða fallbyssubát til þessa starfa.
Hitt hlyti á hinn bóginn að taka eigi allfá ár — þrátt fyrir það, þótt frv., sem jeg gat um áðan, nái fram að ganga — að sjóðurinn verði þess megnugur að kosta strandvarnirnar, án lántöku.
En hjer veltur mikið á því, hvort hæstv. ráðherra telur þetta hyggilegt. Álítur hann, ef vjer samþykkjum slík lög, er nú gat jeg um, að Danastjórn sætti sig við það, og rísi ekki upp á móti því? Ef hæstv. ráðherra lítur svo á, sem frá Dönum sje ekki von neinnar mótspyrnu, þá er sjálfsagt, að hika ekki við að fara þessa leið.
Mörgum hefir oft fundist, að Íslendingum væri ekki fær vegur til fullkomins sjálfstæðis, vegna þess, að þeir gætu ekki varið strendur landsins; en jeg hefi
nú sýnt fram á, að ekki þarf það að vera oss steinn í götu.
Ef hæstv. ráðherra heldur á hinn bóginn, að Danir vilji hafa strandvarnirnar sjálfir á hendi, þá er sjálfsagt, að ýta svo við þeim, að þeir framkvæmi þær þá þannig, að þær verði oss að verulegu gagni.
Því er og ekki svo varið, að Danir hafi strandgæsluna á hendi fyrir oss Íslendinga eina, heldur hafa þeir hana og á hendi fyrir sjálfa sig og Færeyinga, alla þá tíð, sem vjer leyfum, að þeir njóti jafnrjettis við oss á landhelgissvæðinu, að því er til fiskveiðanna hjer við land kemur.
Jeg skal svo ekki fjölyrða frekar um málið að sinni. Jeg vil að eins stinga upp á, að því verði vísað til nefndarinnar sem skipuð var í frv. um landhelgissjóðinn.