21.07.1915
Neðri deild: 12. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 2152 í B-deild Alþingistíðinda. (2682)

21. mál, landhelgisvarnirnar

Bjarni Jónsson:

Jeg skal ekki vera myrkur í máli, en lýsa því þegar yfir, að jeg er ósamþykkur till. þeirri, er hjer liggur fyrir. Jeg vil ekki skora á Dani, að auka skipastól sinn hjer við land. Jeg vildi miklu fremur skora á þá, að taka heim til sín þenna dall, sem hefir verið að skrölta hjer undanfarin ár, okkur til lítillar þurftar. Hann hefir alt af verið talinn eftir af Dana hálfu; þeir hafa kallað það hjálp til Íslendinga, að hann hefir skrölt hjer á milli hafna, Reykjavíkur og Hafnarfjarðar, og Danir hafa jafnvel sagt, að þeir væru að framkvæma einhvern ímyndaðan herradóm hjer á sjónum með honum. Hefir það komið fram hjá sumum stjórnmálamönnum þarlendum, eins og t. d. fyrrverandi forsætisráðherra Neergaard í ræðu, sem hann hjelt einu sinni út af ákæru, sem kom fram á íslenska viðskiftaráðunautinn. Það væri æskilegt, að þessi eini vottur þessa herradóms hyrfi hjeðan sem fyrst. Ef háttv. flutnm. (Sk. Th.) þykir það betra, þá skal jeg ekkert hafa á móti því, að málið fari í nefnd, en mjer þykir ólíklegt, að sú nefnd geti gengið að því.

Jeg sje, að hæstv. ráðherra er horfinn — jeg þurfti að spyrja hann að dálitlu. Jeg gegndi fram í ræðu hans áðan, ekki af því, að jeg ætlaði að halda yfir honum neinn rannsóknarrjett, heldur til þess, að komast hjá því að halda ræðu. Jeg vildi vita það, hvort hæstv. ráðh. telur, að það gæti komið til mála, að Danir færu að skifta sjer af því, þótt Íslendingar gjörðu út skip til strandgætslu á eigin kostnað. Slík afskiftasemi ætti engan rjett á sjer og væri hin stakasta óhæverska, ef danskir valdhafar reyndu að koma í veg fyrir þetta eða láta það líta svo út, sem þeir hefðu nokkurn rjett eða vald til slíkra afskifta. Jeg vildi heyra, hvort hæstv. ráðherra væri ekki á sama máli og jeg um þetta.

Jeg vil enda ræðu mína á því, að mjer fjell vel í geð hin óprentaða uppástunga háttv. þm. N.-Ísf. (Sk. Th.) um að auka þennan sjóð, til þess að hægt væri að koma því í framkvæmd, að við tækjum að okkur varnirnar. Þá væri það bara tímaspursmál, að taka lán upp á hinn vaxandi sjóð. Því ætti að flýta sem mest, og hygg jeg, að þess yrði þá ekki langt að bíða, að við fengjum jafngóðar varnir og við höfum nú, þar sem ekki er nema eitt skip, og það hefir jafnvel fyrirskipun um, að eyða ekki nema ákveðnu tonnatali af kolum á skrölti sínu milli hafna.