11.08.1915
Neðri deild: 30. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 2169 í B-deild Alþingistíðinda. (2702)
97. mál, slysfaramál
Guðmundur Eggerz:
Mig langar til að segja nokkur orð um þetta mál, áður en það verður afgreitt.
Hjer er ekki um neitt smámál að ræða. Það er að ræða um það, hvað við getum gjört, til þess að afstýra því, að fleiri farist nú hjer við land heldur en í nokkru öðru landi í veröldinni, að tiltölu við fólksfjölda. Það er enginn leikur fyrir sjómennina okkar, að verða að fara út í nærri hvaða veður sem er, til þess að afla sjer matar, og það er ekki nema sanngjarnt, að Alþingi reyni eftir mætti að vernda líf slíkra manna.
Hjer er komin fram brtt. við tillöguna á þgskj. 254. Jeg býst við, að hún sje fram komin mest af vanþekkingu flutningsmanna hennar á málinu. Þeir eru, eins og kunnugt er, báðir bændur uppi í sveit, og vita því manna síst, hvers með þarf, í máli, eins og þessu, en það er svo sem ekki ný bóla, að landbændur sjeu steinar í götu fyrir sjávarútvegsmálum hjer á þingi. Jeg skil það vel, að þeir, sem ekki kunna áralagið, hafi lítt vit á máli, eins og þessu, en jeg skil það ekki, að þeir skuli ekki finna það sjálfir.
Það er ákveðið í tillögunni, að milliþinganefndin skuli undirbúa frumv. um slysatryggingu sjómanna. Það hefir verið svo á síðustu þingum, að ekki hefir verið hægt að koma fram frumv. um þetta efni, af því að þingin hafa ekki álitið það nægilega undirbúið. Eina ráðið, til þess að fá málið nógu vel undirbúið, er að skipuð verði milliþinganefnd í því skyni. Það er ekki til neins að vísa málinu til stjórnarinnar. Hún hefir nóg að gjöra og auk þess engin skilyrði til að geta undirbúið slíkt mál af eigin ramleik. Það hefir verið bent á, að hún gæti fengið aðstoð annara í því efni. Það er rjett. En til þess vantar hana fje. Og yrði henni heimilað fje í þeim tilgangi, þá er ekki lengur til sú ástæða, sem hv. flutningsmenn breytingartillögunnar hafa borið fram, að kostnaðurinn yrði minni. Eða halda þeir, að stjórnin geti fengið menn til þess að vinna fyrir ekki neitt.
Jeg skal svo láta útrætt um þetta mál, en bæta því við, að jeg vona, að tillagan á þgskj. 254 verði samþ. óbreytt.