13.09.1915
Neðri deild: 59. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 2237 í B-deild Alþingistíðinda. (2747)
147. mál, rannsókn á kolanámum á Íslandi
Sveinn Björnsson:
Háttv. þm. Dal. (B. J.) gat þess, að jarðfræðingar væru sammála um, að hjer fyndust ekki steinkol. Þetta mun vera rjett hjá hv. þingmanni, að vísindamenn hafa látið uppi þetta álit sitt, og bygt það aðallega á kenningum sínum um aldur landsins, sem þá greinir þó á um suma. En hvað sem því líður, þá er öllum það vitanlegt, að hjer eru til brúnkol eða surtarbrandskol, og nýlega hafa verið sýnd hjer sjerstaklega góð sýnishorn, sem reynst hafa vel til eldsneytis, þótt ekki væru steinkol. Þess vegna væri gott að rannsaka, hvort hjer er um heila námu að ræða, því að ef svo væri, þá væri mikið unnið, þótt að eins nægði til eldsneytis á heimilum.
Enn fremur má benda á það, að leirblandinn surtarbrandur hefir fundist víðar í heiminum, t. d. í Svíþjóð, og var þar fyrst reynt að vinna hann til eldsneytis, en ekki gafst það vel. Aftur á móti komust menn upp á aðferð til þess að brenna úr leirinn með sjálfum kolunum, sem í eru, og hafa með því náð að framleiða afar ódýran tígulstein.
Þetta er mál, sem út af fyrir sig en mjög merkilegt, eins og ef steinkol fyndust. Jeg skal engan dóm leggja á það, hvort steinkol geta fundist hjer á landi, en þau kol, sem þegar hafa fundist, eru góð brúnkol, og sömu kol og fundist hafa í Svíþjóð. Jeg tel þetta mál svo mikilsvert, að jeg vil láta landið rannsaka það, hvernig hægt sje að notfæra sjer þau. En sjálfsagt er að halda málinu vakandi.
Háttv. neðri deild vildi ekki fallast á till. mína í málinu, en efri deild samþykti hana. Jeg játa það fúslega, að mikið er búið að hlaða á stjórnina af rökstuddum dagskrám, en þingið hefir lítinn undirbúningstíma og veitist örðugt að koma öllum áhugamálum sínum í framkvæmd. Það neyðist því til að beina sumum þeirra til stjórnarinnar í því trausti, að hún gjöri sitt besta til að greiða götu þeirra.
Um þetta mál er það að segja, að ekki er ætlast til að stjórnin gjöri mikið í því. Ekki er um annað að ræða en að stjórnin leiti sjer upplýsinga um, hve mikið mundi kosta, að hafa námuverkfræðing lítinn tíma, og hversu mikið mundu kosta þau verkfæri, er þarf til námugraftar. Þó ekki sje tillagan stór, þá miðar hún þó í rjetta átt.