07.08.1915
Neðri deild: 27. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 2255 í B-deild Alþingistíðinda. (2761)

22. mál, loftskeytastöð í Reykjavík

Bjarni Jónsson:

Jeg get ekki almennilega tekið þátt í þessum umræðum, vegna þess, að jeg hefi ekki fylgst með þeim frá upphafi. En jeg kom þó nógu snemma, til þess að heyra, að hæstv. ráðherra drap á nefndarálit símanefndarinnar í fyrra. Okkur, sem undir þetta skrifuðum, var fullkomin alvara með að við vildum heldur enga stöð en stöð, er skemra dragi en til Skotlands og Noregs. Okkur þótti sem stöð á Færeyjum væri einskis virði, og vildum ekki leyfa, að gjörðar yrðu ráðstafanir, er að því lytu.

Hvað snertir samning þann, sem gjöra þyrfti við Stóra Norræna, þá hafði nefndin ekki tíma til þess, að athuga það spursmál til fullnustu, en ætlaði stjórninni að sjá fyrir því, ef samnings þyrfti með. Skoðun nefndarinnar var sú, að betri væri engin stöð en stöð, er dragi ekki 1400 stikuþúsundir, og áætlað var víst, að kosta myndi 150,000 krónur.