10.09.1915
Neðri deild: 56. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 2268 í B-deild Alþingistíðinda. (2772)
143. mál, útibú frá Landsbankanum á Austurlandi
Ráðherra:
Jeg vildi gjöra stutta athugasemd út af einu atriði í ræðu hv. fyrirspyrj. (J.J.). Hann sagði, að stjórnin hefði gjört minna í þessu máli en hennar var skylda. Jeg veit ekki, hvað hann hefir ætlast til, að stjórnin gjörði í þessu máli. En áður en því er slegið föstu, að stjórnin hafi gjört minna en henni bar að gjöra, held jeg að það sje rjett að athuga, hvað hún gat gjört, lögum samkvæmt.
9. grein laga 18. sept. 1885, um stofnun Landsbanka, hljóðar svo:
»Bankinn skal, með samþykki landshöfðingja, svo fljótt sem auðið er, setja á stofn aukabanka eða framkvæmdarstofur fyrir utan Reykjavík, einkum á Akureyri, Ísafirði og Seyðisfirði«.
En í lögum nr. 28, 22. okt. 1912, er í staðinn fyrir orðið »Seyðisfirði« sett: á Austfjörðum.
Eftir lögunum er það bankastjórnin, sem hlýtur að taka ákvörðun um það, hvort útibú skuli sett á stofn, en sú ákvörðun getur ekki gilt, nema með samþykki stjórnarinnar. Stjórnin ein getur ekki tekið ákvörðun um það. Hjer þarf atbeina tveggja aðilja. Landsstjórnin getur ekki sett á stofn útibú, nema bankastjórnin telji fært, að gjöra það. Annað mál er það, að ef bankastjórnin telur fært, að gjöra það, þá getur það verið skylda — ráðsmenskuskylda — stjórnarinnar, að hjálpa bankanum til að setja á stofn útibú.
Um afskifti mín af þessu máli er það skemst að segja, að jeg hefi engan tíma haft til þess, að snúast í því. Jeg fór utan skömu eftir að jeg tók við ráðherraembættinu, og þegar jeg kom heim var komið fram að þingi, og eins og allir vita kallar svo margt að um þingtímann, að enginn tími hefir verið til að koma slíkum ráðstöfunum sem þessum í framkvæmd.
Jeg verð því að telja, að stjórnin hafi gjört alt, sem henni bar í þessu máli. Jeg veit ekki hvaða skoðun fyrirrennari minn hefir í þessu máli, eða hvort hann hefir verið samdóma bankastjórninni. Hafi hann verið henni samdóma, þá er auðskilið, að hann hefir ekkert frekara gjört í þessu máli. En hafi hann ekki verið henni samdóma, þá gat hann reynt að telja um fyrir henni og og standa í brjefaskiftum við hana. En hvað hann hefir gjört veit jeg ekki.