15.09.1915
Neðri deild: 63. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 2276 í B-deild Alþingistíðinda. (2783)

153. mál, fossar

Ráðherra:

Jeg held, að jeg þurfi ekki að þreyta háttv. deild með löngu máli. Jeg hefi ekki haft mikinn tíma til að rannsaka þetta mál og býst því við, að svarið verði stutt. En hversu laggott það verður, veit jeg ekki.

Fyrsta spurningin í þessari fyrirspurn er um það, hve mikið landssjóður eigi í svonefndum Sogsfossum í Árnessýslu. Þar til er því að svara, að kirkjujörðinni Syðri-Brú í Grímsnesi tilheyrir ½ Kistufoss og ½ Írufoss.

Önnur spurningin er um það, hvort landsstjórnin hafi leigt, selt, eða á annan hátt afhent öðrum rjettindi yfir hlutdeild landssjóðs yfir fossum þessum, og skal því svarað neitandi. Að vísu hefir verið farið fram á slíkt af útlendingum. Var það erindi Cooper og Mendel, dagsett í mars 1913, en því er neitað með brjefi 19. apríl 1913, og hefir síðan ekki verið gjört neitt í því máli.

Þriðja spurningin er, hvort landasjóður hafi afsalað sjer rjettindum þeim, er hann átti yfir Gullfossi í Árnessýslu. Það mun vera satt, er hv. fyrirspyrjandi (S. B.) sagði, að landsstjórnin hafði leigurjett til Gullfoss í 5 ár, sem sje frá 1. sept. 1907 til l. sept. 1912 og hafði þá forrjett til leigu á fossinum, með sömu kjörum og aðrir, er rjett hafa til notkunar fossa, sbr. lög nr. 55, 22. nóv. 1907, kynnu að bjóða. En löngu áður en leigutíminn var úttrunninn, gjörðu eigendur leigusamning við aðra og hafði stjórnarráðið að vísu rjett til að ganga inn í þann samning, en vegna þess, að þá var eigi unt að sjá, að nein alvara væri hjá þeim mönnum, sem helst vildu fá Gullfoss, eða þeir hefðu fje til að byrja á neinu fyrirtæki, og vegna þess að leigan var stígandi upp í 1000 kr. árlega, þá lýsti stjórnarráðið því yfir með brjefi dags. 4. okt. 1912 til Sam. Johnson og Sturlu Jónssonar: »at det betragtede ethvert som helst Kontraktsforhold fra Landskassens Side, angaaende Leje af Gullfoss, til hvilken som helst, bortfaldet«. Samkvæmt þessu hefir þá landssjóður afsalað sjer öllum rjettindum yfir Gullfossi, þeim er það hafði eða kynni að hafa haft.

Fjórða spurningin er um það, hvort landsstjórnin hafi þá (þ. e. ef undanfarandi spurningu er svarað játandi) jafnframt áskilið landssjóði endurkaupsrjett á þessum rjettindum, eða á annan hátt trygt landinu umráð yfir fossunum. Þessu verður og að svara neitandi. Það hefir ekki verið gjört.

Þá hefi jeg svarað öllum fjórum liðum fyrirspurnarinnar og finn svo ekki ástæðu til að taka meira fram af minni hálfu.