15.09.1915
Neðri deild: 63. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 2278 í B-deild Alþingistíðinda. (2784)

153. mál, fossar

Fyrirspyrjandi (Sveinn Björnsson):

Jeg þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið og get látið í ljósi ánægju mína yfir því, að landssjóður á enn óskerta hlutdeild þá, er hann átti í Sogsfossunum; vænti jeg, að svo verði einnig framvegis. Hitt verð jeg auðvitað að telja illa farið, að landið skuli hafa afsalað sjer rjettindunum til Gullfoss, en hjeðan af býst jeg ekki við, að neitt sje unt við það að gjöra, því að um það alt hafa víst verið gjörðir fullgildir samningar, þótt viðkunnanlegra hefði það vissulega verið, að Alþingi hefði verið spurt að áður en svo mikilvægum rjettindum var fargað.