22.07.1915
Efri deild: 13. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 873 í B-deild Alþingistíðinda. (2919)

20. mál, stjórnarskrármálið

Björn Þorláksson :

Jeg stend upp af því, að jeg er einn af flutningsmönnum að tillögu þeirri, sem hjer liggur fyrir, til þess að gjöra grein fyrir skoðun minni á þessu máli, og gjöri jeg það því fremur, sem háttv. 2. þingm. Gullbringu- og Kjósarsýslu (K. D.) ljet það í ljós í ræðu sinni, að hann undraðist yfir, að 3 þingm., sem fylgt hafa sjálfstæðisflokknum, skyldu gjörast flutningsmenn að tillögu þessari, og virtist hann skoða það sem storkun við gamla samherja. En það er ekki af þeirri ástæðu, að við höfum komið fram með þessa tillögu, heldur af því, að við teljum fyrirvara Alþingis vera fullnægt. Jeg verð að segja það, að jeg hafi í dag undrast yfir mörgu, sem þessi þingmaður hefir borið fram, en jeg ætla ekki að hætta mjer út í það moldviðri, sem hann og ýmsir aðrir hafa þyrlað upp. Jeg hefi staðið upp að eins til þess, að skýra frá minni afstöðu til þessa máls, en jeg ætla mjer ekki þann dul að hafa áhrif á atkvæði nokkurs annars þingmanns, enda mun mega segja, að allar þær ræður, sem haldnar hafa verið í þessu máli nú á þinginu, hefðu menn getað sparað sjer og gengið þegar í stað til atkvæða, og niðurstaðan hefði þó orðið hin sama og raun mun á verða. Jeg vil taka það fram, að jeg var einn af þeim 23 sjálfstæðisþingmönnum, sem í vetur lýstu ánægju yfir framkomu fyrverandi ráðherra í ríksráði 30. nóv. 1914, sjerstaklega út af mótmælum hans gegn auglýsingunni dönsku. Með þessu tjáði jeg mig fylgismann fyrverandi ráðherra, eins og jeg hafði verið einn af stuðningsmönnum hans til ráðherratignar. Jeg sætti mig við það, þó stjórnarskráin fengist ekki staðfest, af því að ekki var hægt að fá hana staðfesta, nema á dönskum grundvelli, sem reið í bága við fyrirvara Alþingis. En þegar jeg fjekk vitneskju um, að konungur væri fáanlegur til að slaka á klónni og ekki væri örvænt um, að hann gengi inn á fyrirvarann, þá gladdist jeg, af því að jeg áleit að stjórnarskráin hefði svo margar rjettarbætur í för með sjer, að það væri mikill skaði, ef hún yrði ekki staðfest. Jeg heyrði reyndar marga láta í ljós óánægju yfir aðferðinni og kveða upp harða dóma yfir hinum nýja ráðherra fyrir það, að hann hafði tekið við ráðherrastöðunni, en þá hafði jeg þau orð um við suma, að best væri að bíða með dóm sinn þar til úrslitin yrði kunn. Og þegar svo úrslitin urðu kunn og umræðurnar í ríkisráðinu voru birtar, sannfærðist jeg um, að fyrirvaranum væri fullnægt, og því gjörðist jeg flutningsmaður að þessari tillögu. Jeg sá að konungur hafði slakað til, og jeg skal þegar taka það fram, að jeg hygg, að það hafi verið staðfestu og einurð hins fyrverandi ráðherra að þakka, að svo fór, að hægt var að fá stjórnarskrána staðfesta með þeim skilmálum, sem við getum verið ánægðir með, þannig að tilgangi fyrirvarans er náð. Þegar svona langt var komið, að stjórnarskráin var staðfest og fáninn fenginn, var jeg búinn gleyma aðferðinni. Það fór fyrir mjer eins og oft vill verða, að þegar endirinn var góður, að jeg var búinn að gleyma því misjafna, sem á undan var farið, og mjer veittist það því auðveldara, er jeg sá, að aðferð sú, sem höfð var, var nauðsynleg af því, hvernig ástatt var. Svo sem jeg þegar hefi sagt, var jeg mjög glaður yfir úrslitunum, yfir staðfestingu stjórnarskrárinnar, af því að fyrirvaranum var fullnægt.

Það hefir verið talað svo mikið um fyrirvarann og það, hvort honum hafi verið fullnægt eða ekki, að mjer verður að leyfast að fara nokkrum orðum um, hvers vegna jeg álít að honum hafi verið fullnægt. Aðalkjarninn í fyrirvaranum er sá, að mínu áliti, að konungsúrskurður, sem allir höfðu búist við að yrði á þá leið, að íslensk mál skyldu borin upp í ríkisráði Dana, yrði sem hver annar konungsúrskurður og mætti breyta, hvenær sem konungur og Íslands ráðherra kæmu sjer saman um það. Jeg hefi ekki getað fundið betur en að konungsúrskurður frá 19. fyrra mánaðar væri þannig lagaður. Konungur segir að vísu, að við megum ekki vænta þess, að hann breyti honum í sinni stjórnartíð, nema annað jafntrygt fyrirkomulag verði sett í staðinn. En má jeg spyrja, hver gat vænst þess, að hann mundi, er minst varði, breyta úrskurði sínum? Mundi ekki Pjetur og Páll láta vera að segja, er þeir hefðu kveðið upp einhvern úrskurð: Þessu skal jeg breyta á morgun? Er ekki flestum svo háttað, að þeir vilji halda fast við það, sem þeir einu sinni hafa ákveðið? Og má vænta þess, að konungur fari öðruvísi að en allir aðrir menn? Mjer er því ómögulegt að skoða umræddan konungsúrskurð öðruvísi en sem hvern annan konungsúrskurð. Það, sem hratt fyrirvaranum á stað, var meðal annars auglýsingin danska, og það, sem meðal annars einnig kom af stað yfirlýsingu hinn 24 þingmanna, var þessi sama auglýsing, eða mótmæli fyrverandi ráðherra gegn henni. Það hefir mikið verið talað um, hvort þessi auglýsing væri úr sögunni eða ekki. En jeg get ekki skoðað hana öðurvísi en sem alveg úr sögunni. Á hana er ekki minst einu orði á ríkisráðsfundinum 19. f. m. Og „Qvod non est in actis non est in judicio“, þ. e.: Það sem ekki er í málsskjölum, það kemst ekki að í dóminum. Hún er því alveg dauð, þessi margumrædda auglýsing.

Svo sem jeg þegar hefi sagt álit jeg fyrirvaranum fullkomlega fullnægt eftir bókstaf hans. En svo er eitt, sem jeg vil taka hjer fram. Það er að fæðing fyrirvarans var nokkuð erfið. Það gekk erfiðlega að finna það orðalag, sem allir 24 sjálfstæðisþingmenn gátu verið ánægðir með. Og það fór svo að 2–3 þeirra gengu úr leik; orðalagið fullnægði þeim ekki. En það, sem allir voru sammála um, var þetta, stjórnarskrárstaðfestinguna mætti ekki kaupa með neinu rjettindaafsali Þetta var og er grundvallarhugsun fyrir varans, sá rauði þráður, sem gengur í gegn um hann. Þetta og ekkert annað var andi hans. Menn geta þrætt, hafa þrætt og munu þræta um bókstafinn, en allar þær þrætur eru til einskis. Andi fyrirvarans er sá, að vjer bindum oss engum böndum, þegar stjórnarskráin yrði staðfest. Nú er það víst, að stjórnarskrárstaðfestingin var ekki keypt með neinu rjettindaafsali. Alt situr við sama, sem var um afstöðuna til ríkisráðsins. Enda hafði enginn maður vænst þess, að um það mál yrði þokað nokkru frá því, sem komið var. Fyrirvaranum var fullnægt með því, sem fram fór í ríkisráðinu 19. júní þ. á., fullnægt samkvæmt anda hans, og um það tel jeg mest vert. Og þetta er efnið í þingsályktun þeirri, sem jeg hefi komið fram með ásamt

Öðrum sjálfstæðismönnum hjer í deildinni. Vjer teljum oss það bæði ljúft og skylt, að votta þeirri stjórn, sem hefir borið giftu til að leiða þetta mál til farsælla lykta, þakklæti vort, einkum þar eð heyrst hafa háværar raddir hjer á þingi, og jafnvel á stöku stöðum utan þings, um það, að fyrirvaranum hafi ekki verið fullnægt með því, sem fram fór í ríkisráðinu 19. f. m. Ef ráðherrann hefði ekki gætt fyrirvarans, ef hann hefði tekið við staðfestingu stjórnarskrárinnar með öðru skilyrði en því, sem meiri hluti þingsins setti, álít jeg að hefði átt að gefa honum beina, en ekki grímuklædda, vantraustsyfirlýsingu, og að því búnu hefði þegar átt að stefna honum fyrir landsdóm. Með þessu hvoru tveggju skyldi jeg hafa gengið, ef jeg hefði álitið að fyrirvarans hefði ekki verið gætt eða að ráðherra hefði gengið út fyrir umboð og vilja þingsins. En þar sem mín skoðun er sú, að fyrirvarans hafi verið gætt, þá tók jeg þegar fyrir Alþingi þá afstöðu til núverandi stjórnar, að jeg skyldi styðja hana með mínu atkvæði. Jeg get ekki stilt mig um að taka það fram, að jeg álít það mjög óheppilegt fyrir störf þings og þjóðar, að vera sí og æ að skifta um stjórn. Og það á ekki að gjöra, nema, knýjandi ástæður sjeu fyrir hendi. Og það er jafnvel skaðlegt. Jeg hefi lifað það hjer á þingi, að vikum saman hafa sumir þingmenn verið að brjótast í því að koma þáverandi stjórn frá. Og á meðan hafa störf þingsins legið niðri. Jeg þykist þá hafa gjört grein fyrir, hvernig jeg lít á þetta mál og skýrt frá, hvers vegna jeg hafi gjörst flutningsmaður að þessari tillögu, og þarf jeg því ekki að fara fleiri orðum um þetta mál, sem búið er að ræða svo mikið.

Það hefir verið komið fram með tvær rökstuddar dagskrár. Um þá fyrri er það að segja, að ef hún á að fyrirbyggja að við missum einhvern rjett, þá álít eg hana óþarfa, af því jeg sje ekki að neinum rjetti hafi verið glatað. Um hina er það að segja, að hún kemur mjer kynlega fyrir, eftir ræðu hv. flm. (K.E.) Hann sagði, að fyrirvaranum hefði verið fullnægt og sýndist vera sömu skoðunar og við flutningsmenn þingsályktunartillögunnar. Ef hann er í hjarta sínu sannfærður um, að fyrirvaranum hafi verið fullnægt, þá sje jeg ekki hvað honum getur gengið til að greiða ekki atkvæði með þingsályktunartillögunni. Það er sá munur á þingsályktun og dagskrá, að þingsál. verður að skoðast miklu viðhafnarmeiri aðferð, til þess að ráða máli til lykta en dagskrártillaga. Og mjer finst hopað frá, að votta stjórninni traust, með því að samþykkja slíka dagskrártillögu heldur.

Jeg sá þessa dagskrá fyrir tveim dögum, og stóð þá í henni að deildin vottaði traust sitt á ráðherra, en nú er það fallið burtu. Þetta stendur að vísu ekki í þingsályktunartillögunni, en þó ber að skoða hann sem traustsyfirlýsingu. Ummæli dagskrárinnar eru svo loðin, að það er ekki hægt að sjá hver tilgangur hennar er. Enn er eitt, og það er að hún er svo illa orðuð, að jeg gæti varla verið með henni, þó mjer líkaði efni hennar. Mun jeg því greiða atkvæði á móti báðum dagskrártillögunum, og tel víst, að báðir meðflm. mínir muni gjöra það sama.