28.08.1915
Neðri deild: 45. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 523 í B-deild Alþingistíðinda. (2928)

108. mál, fjárlög 1916 og 1917

Sigurður Eggerz:

Jeg hefi ekki átt margar breytingatillögur við fjárlögin. Það er að eins ein einasta brtt., sem jeg hefi flutt og nú kemur aftur.

Jeg og háttv. 1. þm. Rang. (E. J.) flytjum breytingartillögu á þgskj. 889, um brúargjörð á Jökulsá á Sólheimasandi. Eins og kunnugt er, samþykti þessi hv. deild að veita 78 þús. krónur til þessarar brúargjörðar. Jeg hygg, að talin hafi verið með því 17 atkvæði. Í hv. efri deild hlaut brúin 4 atkvæði, en þó að hún hlyti ekki fleiri atkvæði þar, mátti heyra það á umræðunum í deildinni, að fleiri voru henni meðmæltir. Háttv. 6. kgk. (J. Þ.) lýsti yfir því, að brúargjörðin væri mjög þörf og kjördæmið ætti skilið að fá hana, enda var líka við því að búast, því að hann barðist drengilega fyrir því 1911, að lög yrðu sett um byggingu brúar á Jökulsá. Fyrir það er jeg honum þakklátur, og jeg veit, að hlutaðeigandi hreppsbúar þar eystra eru honum þakklátir líka. Það er því vitanlega mjög leiðinlegt, að þessi háttv. þingmaður skyldi lýsa því yfir í efri deild, að sökum þess, að jeg væri flytjandi tillögunnar á þingi, þá yrði hann að vera á móti brúarmálinu í þetta skifti. Þrátt fyrir það tel jeg hann meðmæltan fjárveitingunni, og má þá telja 5 atkvæði í efri deild, þó að það slysaðist svo, að háttv. þingmaður gæti ekki verið með fjárveitingunni af pólitískum ástæðum. Jeg skal engan dóm leggja á þessa framkomu; það munu aðrir gjöra á sínum tíma. Það var síðasti konungkjörni þingmaðurinn, sem lýsti því yfir á Alþingi, að hann gæti ekki verið með máli, sem var borið fram af pólitískum mótstöðumanni hans.

Einu sinni var sú skoðun uppi á þingi, og henni haldið fast fram af háttv. framsögum. (P. J.), að það ætti að vera sjálfsagt »princip« að brúa einhverja stórá á hverju fjárhagstímabili. Þetta »princip« eigum við að halda fast við.

En þegar þessi brú kom til sögunnar, þá dóu þessi fallegu »princip«. Þá var það nóg að taka einhverjar smásprænur, en láta þau vatnsföll, er mannskæðust hafa verið, óbrúuð. Þetta »princip« er lítið lofsvert og athugavert, ef þingið heldur langt í þessa »princip« átt.

Jeg skal ekki að þessu sinni eyða mörgum orðum í það, að sanna nauðsynina á þessari brúargjörð. Það var gjört við 2. umr. og háttv. þm. Rangv. (E. J. og E. P.) hafa sýnt rækilega fram á þörfina. Þó get jeg ekki stilt mig um að minna á það, sem venjulega er tekið til greina hjer á þingi. Á þessi hefir nú. tekið 40 mannslíf, svo að menn viti um. Sje mannslífið reiknað lágt, 25 þús. kr., þá er áin búin að taka 1 miljón kr. frá landinu. Og menn mega ekki halda, að hún skili því aftur; hún skilar því aldrei, sem hún hefir einu sinni tekið. Hún heimtar fleiri líf og heldur áfram að breiða meiri sorg yfir hjeruð þau, er hún rennur um. Alþingi getur ekki lengur skotið sjer undan því, að það þekki þörfina. Þingið 1911 skildi hana. Jeg skal ekki neita því, að það voru mjer mikil vonbrigði, hvernig háttv. Ed. tók í þetta mál, og mjer er óhætt að fullyrða, að marga mun hafa furðað á því, hvernig háttv. Ed. skildi við fjárlögin. Jeg hygg, að það sje óviturleg pólitík, að spara fje til vega- og brúagjörða, en setja í þess stað óverulegar veitingar, er litlu máli skifta. Jeg sje ekki ástæðu til þess, að orðlengja þetta. Jeg vænti þess, að háttv. Nd., er tók málinu svo vel seinast, taki því vel aftur og sýni háttv. Ed., að hún getur ekki drepið úr frv. þá drætti, er gjöra það svipmeira og fastara en annars.

Hæstv. ráðherra hefir komið fram með brtt. á þgskj. 843, viðvíkjandi úthlutun styrksins til listamanna. Háttv. 1. þm. Árn. (S. S.) mintist á það, áður en hann settist, að athugasemd mín, er samþykt var við 2. umr. og líka í Ed., væri óheppileg; það væri rangt að vera að dreifa ábyrgðinni.

Jeg get ekki aðhylst þessa skoðun hv. þingmanns. Jeg tel það sjálfsagt, að Alþingi leggi sem minst af fjárveitingarvaldi sínu til stjórnarinnar, hverju nafni sem hún nefnist. Það er »princip«, sem talsvert er farið að stinga sjer niður upp á síðkastið, og jeg verð að telja það mjög óheppilegt. Menn mega engan veginn skilja orð mín svo, að þetta sje stílað til núverandi stjórnar. Yfirleitt tel jeg það óheppilegt fyrir stjórnina sjálfa, að hafa þetta vald, því að það má alt af segja, að hún noti það til þess að útvega fylgismönnum sínum eða hjeruðum, sem henni eru hlynt, pólitíska bitlinga. Og auk þess geta stjórnirnar vitanlega misbeitt þessu valdi.

Hæstv. ráðherra sagði, að athugavert væri að samþykkja svona athugasemd, vegna þess, að löggjafarvaldið gæti ekki neytt Stúdentafjelagið eða Bókmentafjelagið til þess að tilnefna þessa menn. Að vísu er þetta satt, en jeg er viss um það, að neitun af hálfu þessara fjelaga er ekki að óttast. Þau munu þvert á móti telja sjer það ánægju og sóma, að verða við þessu. Sje það ekki annað, sem hæstv. ráðherra hefir á móti þessu en þetta, þá held jeg, að óhætt sje að fella brtt. hans.

Jeg vænti þess, að háttv. Nd. haldi fast við fyrri samþykt sína og Ed, í þessu, og felli þessa brtt.