04.09.1915
Efri deild: 52. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 8 í B-deild Alþingistíðinda. (3)
108. mál, fjárlög 1916 og 1917
Framsögum. (Magnús Pjetursson):
Jeg vil byrja á því að benda háttv. deild á, að það er prentvilla í nefndarálitinu, og vona jeg að háttv. þm. afsaki að svo hefir tekist til. Annars ætla jeg ekki að halda langa ræðu, því þegar jeg skrifaði nefndarálitið reyndi jeg að skýra sem best frá öllu, svo að háttv. þm. gætu sjálfir lesið það, en framsöguræðan gæti orðið þess styttri. Vona jeg að mönnum hafi gefist tími til þess, enda þótt nefndarálitið kæmi nokkuð seint.
Eins og nefndarálitið ber með sjer, var nefndin sammála um að reyna að minka tekjuhallann; en þó þetta væri aðalstefnan þá fanst henni hins vegar óhjákvæmilegt að leggja til nokkrar talsvert stórar út gjaldahækkanir. Nefndin hefir því ekki komist lengra en að minka tekjuhallann um ca. 80 þús. og skilyrðisbinda 40 þús. kr. í viðbót við það, sem áður var skilyrðisbundið. Með þessu móti fæst þó ekki betri árangur en svo, að enn er ofurlítill tekjuhalli, þó öllum þeim nauðsynlegu framkvæmdum, sem lagt er til að frestað verði, ef á þarf að halda, yrði frestað. Háttv. deildarmönnum verður því að vera það ljóst, að þessi litli halli er ekki að marki hafandi, þannig, að vegna þess, hve lítill hann er, sje óhætt að auka útgjöldin. Það verður að vera öllum ljóst, að allar þessar aths. um frestun nauðsynlegra mannvirkja í landinu eru að eins — jeg vil ekki segja dýrtíðarráðstöfun, en það eru ófriðarráðstafanir. Enn fremur vil jeg benda á það, að þó hallinn sje ekki meiri í frv., þá eru enn þá ekki komin þar öll kurl til grafar, ýms lög eru nú á ferðinni, sem hljóta að hafa útgjöld í för með sjer. Nú liggur t. d. fyrir frv. um að höfninni í Vestmannaeyjum verði veittar 90 þús., eða 28 þús. fram yfir það, sem áður var áætlað, og mikil líkindi eru til, að það verði samþykt. (Stgr. Jónsson: Það er ekki víst að það verði alt borgað út). Það er rjett hjá háttv. 2. kgk., að það er ekki víst, en jeg vil þó benda á þetta, því það kemur þá síðar til. Enn fremur má geta þess, að hjer fyrir þessari háttv. deild liggja frumv., sem hafa í för með sjer 300 þús. kr. tekjumissi, ef þau yrðu samþ. Enn þá er ekkert komið fram á móti þessu, en fyrir háttv. Nd. liggja 2 frumv., og fer annað í þá átt, að hækka tekjur landssjóðs, en hitt hækkar gjöldin, en meiri líkar má telja til þess, að það frumv. verði samþykt, sem fer í útgjaldaáttina. Það má ef til vill segja, að þetta komi ekki fjárlögunum við, en jeg vildi benda á þetta, til þess að menn einskorðuðu sig ekki um of við þau, heldur líti á fleiri lög, og ef landssjóði verða ekki
fundnar nýjar tekjur, þá verður að reyna að spara eftir mætti, til þess að verjast því, að gjöldin fari um of fram úr tekjunum. Það er að vísu nokkur bót í máli, að gjört er ráð fyrir að peningaforði landssjóðs verði nokkuð hár, líklega um 800 þús. kr. en þar á móti má aftur segja að komi ýmsar dýrtíðarráðstafanir.
Í nefndarálitinu er sýnt hvernig fjárlagafrumv. liti út, ef allar brtt. nefndarinnar yrðu samþ. En nú hafa komið fram brtt. frá ýmsum þingm. hjer í deildinni, og ef þær yrðu allar samþyktar, þá færi nú að hallast á. Þessar breytingar frá ýmsum utan nefndarinnar fara fram á 124 þúsund kr. hækkun, en aftur munu gjöldin minka um 12 þús. kr. Ef þær yrðu því samþ., þá mundu gjöldin aukast um 112 þús. kr., en sumt af því eru að vísu skilyrðisbundnar fjárveitingar. Jeg sný mjer þá strax að einstökum brtt. nefndarinnar, en fer ekki nákvæmlega út í hverja einstaka að þessu sinni, fyr en ef ráðist verður á þær.
Um breytingartillögurnar allt aftur í 12. gr., þarf eg engu að bæta við, umfram það, sem í nefndarálitinu stendur, en sný mjer fyrst að 6. brtt. á þingskjali 687 við 12. gr., af því að hún er svo stórvægileg, Brtt. þessi fer fram á 22 þús. kr. gjaldahækkun, til þess að setja miðstöðvarhitun í Laugarnesspítala. Það getur vel verið, að mönnum blæði upphæðin í augum, en hjer er um mál að ræða, sem hefir, og á að hafa samúð allra. Þegar holdsveikraspítalinn var byrjaður vildi svo óheppilega til, að í hann voru settir ofnar, en ekki miðstöðvarhitun, sökum þess, að sagt var að hjer á landi væri þá enginn, sem kynni að gjöra við hana, ef bilaði. Í húsinu eru því um 50 ofnar, og eins og gefur að skilja orsaka þeir mikla vinnu, auk óþrifa, ösku- og kolaryks og meiri eldhættu. Slíkt er hvergi gott og allra síst í sjúkrahúsum. En alt þetta eru þó smáræðisgallar hjá reyknum. Ef ofnar eru á annað borð kyntir, þá rýkur vanalega úr einhverjum ofnum, og fer það eftir vindstöðu, hvar í húsinu rýkur. Eru stundum svo mikil brögð að honum, að taka verður eldinn úr ofnunum, því sjúklingarnir kjósa þá heldur að þola kulda en reyk, og það sem lakast er, er það, að þetta kemur mest niður á þeim sumingjum, sem veikastir eru. Verða þeir að sitja í reyknum eða kuldanum, eða hvorutveggju, en hinir, sem rólfærir eru, geta þó flutt sig þangað, sem betra er. Er það næstum því undarlegt, að ekki skuli hafa verið bætt úr þessu fyrir löngu, heldur látið ganga svona í 17 ár, en allar aðgjörðir hafa verið reyndar, en árangurslaust. En nú má til að bæta úr því, ekki sist þegar litið er til þess, að hjer eiga í hlut menn, sem dæmdir eru til að vera þarna allan sinn aldur, og því enn meiri skylda fyrir þjóðfjelagið að leggja ekki á þá óþarfa plágur. Áætlunin er kr. 22085, en aftur má gjöra ráð fyrir að ofnarnir seljist fyrir nál. 1700 kr. Nefndin þorði ekki að áætla kostnaðinn lægri, en þá ætti að vera nokkur trygging fyrir að verkið yrði leyst vel at hendi. Enda telur nefndin sjálfsagt að stjórnin sjái um að undirbúningur og framkvæmd verksins verði falin á hendur vel hæfum mönnum.
Þá er næsta brtt. við 12. gr., sem sje Vífilsstaðafjósið. Eins og margir höfðu búist við, kom brátt í ljós við nánari athugun að 5 þús. kr. nægðu ekki til fjóss yfir 15 kýr ásamt tilheyrandi byggingum, ef vel átti að vera, en á hinn bóginn grunaði fáa, að kostnaðurinn mundi nema alt að 10 þús. Hjer liggur að vísu ekki nein ábyggileg áætlun fyrir hendi, en þetta er álit Rögnvalds húsameistara Ólafssonar, og mönnum mun fullkunnugt að hann byggir sjaldan orð sín í lausu lofti. Nefndinni virtist að ekki mætti hætta við þetta fyrirtæki, því það mundi minka reksturskostnað hælisins, og er því í sjálfu sjer gróðafyrirtæki, úr því landið tekur að sjer rekstur hælisins. Raddir hafa heyrst um það, hvort svara mundi kostnaði að setja upp minna bú en svo, að það fullnægði mjólkurþörf hælisins, en svo stórt vill nefndin ekki byrja, en telur á hinn bóginn sjálfsagt að þessu verði þannig fyrir komið, að að hægt sje að bæta og byggja við, ef síðar skyldi þurfa.
Af því jeg er ekki viss um að háttv. þm. viti hvað við er átt í 15. lið 12. gr. i, skal jeg taka fram, að þar ræðir um fábjána, sem lagt er til að sendur verði utan, á stofnun fyrir slíka menn, og styrktur af landssjóði, en slíkt getur nefndin ekki fallist á.
Um brtt. við 13. gr. A. þarf ekki að fjölyrða, en vegna eins háttv. þm., sem átt hefir tal við mig, skal jeg taka fram að svo óheppilega vildi til, að eitt af skjölunum frá póstmeistara týndist, en fanst loks niðri í einum af skápum Nd., og mun það að sjálfsögðu tekið til athugunar fyrir 3. umr.
Þá kemur að vegabótunum í 13. gr. B., og gjörum við ráð fyrir að sumum þyki þar allmikill usli gjörður. Það getur satt verið að svo sje. Úr því að byrjað var á að hafa í fjárlögunum skilyrðisbundnar fjárveitingar, þá lá næst að binda þar við þau fyrirtæki, þar sem efniskostnaður er yfirgnæfandi, því þótt nægilegt fje sje fyrir hendi, þá getur verið rjett að fresta þeim, sökum dýrleika á efni, og mætti það gjarna vera í skilyrðunum. Þetta á vitanlega helst við þær verklegu framkvæmdir, sem þegar eru skilyrðisbundnar, nfl. vitana og símana. Ef nú ætti að skilyrðisbinda fleiri fjárveitingar, þá eru það næst brýrnar, sem eins stendur á með. Ef spara átti meira á þessu ári, þá er það augljóst, að fyrst gat komið til mála, annaðhvort að leyfa að fresta þeim, eða strika þær út, og því leggur nefndin til að önnur stærsta brúin sé strikuð út, en heimilað að fresta hinni. Skal jeg benda á, að landsverkfræðingnum finst athugavert að hafa margar brýr undir á næsta fjárhagstímabili. Járn er lítt fáanlegt, nema þá mikið dýrara en venjulega, t. d. sænskt járn 270 kr. tonnið, en hingað til hefir mest verið brúkað þýskt járn, sem aðeins hefir kostað 110 kr. tonnið, en nú má telja vafalaust að það fáist alls ekki. Þess vegna er mjög varhugavert að hafa margar brýr á prjónunum, og vil jeg þá einnig fyrir nefndarinnar hönd taka það fram, að sjálfsagt sje að stjórninni heimilist að flytja til á milli ára framkvæmdir í þessu efni. Er þetta samkv. tillögum verkfræðingsins. Af þessum ástæðum, sem jeg áður nefndi, tökum við það ráð að binda fjárveitinguna til Húnvetningabrautarinnar skilyrði, vegna þess, að gjört er ráð fyrir brú yfir Vatnsdalsá fyrra árið, svo best væri að vegurinn að og frá brúnni yrði henni sem mest samferða.
Skal jeg svo ekki fara frekar út í einstaka liði vegabótakaflans, vegna þess að jeg sje að hjer eru fram komnar nokkrar brtt. frá öðrum hv. deildarmönnum og mun jeg því hvort sem er síðar þurfa að ræða betur um hann.
Í 13. gr. D. II. er lagt til að gjörð verði ofurlítil orðabreyting, sem ekki er gjörð grein fyrir í nefndarálitinu. Nefndin leitaði álits landsímastjórans um hana, og hafði hann ekkert á móti henni.
Fer jeg nú fljótt yfir sögu. Í 14. gr. hefir nefndin, eða rjettara sagt meiri hluti hennar, lagt til að tekin sje upp stefnubreyting, að því er snertir undirbúningsskólana undir embættisnámið, og vill láta hætta að veita námsstyrk við þá skóla. Sama hugsunin vakti bæði fyrir Ed. og Nd., en Nd. vildi ekki láta þetta nýmæli koma til framkvæmda strax, heldur að eins skjóta því til stjórnarinnar til íhugunar. Meiri hluti nefndarinnar var á þeirri skoðun, að rjett væri að taka skólagjald af nemendum, en verja því svo aftur til styrktar fátækum og efnilegum mönnum. Nefndin áleit rjett að byrja á þessu nú þegar, og lækka styrkinn smátt og smátt, þó hitt fyrirkomulagið með skólagjöld geti ekki komist á jafnframt.
Þá er einnig stefnubreyting hjá nefndinni með bændaskólana., að þar fanst henni rjett að styrkja fremur sumarnámið en bóklega námið á vetrum, og skal jeg að eins skírskota í því efni til þess, sem sagt er í nefndarálitinu.
Þá er ofurlítil athugasemd aftan við 14. gr. B. VII, sem er til. orðin vegna þess, að sumir litu svo á, að skilja ætti lögin svo, að styrk þann, sem veittur er til kvöldskólahalds á Ísafirði, Akureyri og Seyðisfirði eigi að eins að veita, ef nemendur eru iðnnemar, en nefndin leit svo á, að skólar þessir væru jafn þarfir og jafnt styrks verðir, þó almennar námsgreinir sjeu kendar þar, og vill því að það sé beint tekið fram í fjárlögunum, að svo megi vera, svo þetta orki ekki tvímælis.
Þá kem jeg að matreiðslukenslunni.
Jeg skal geta þess út af brtt. nefndarinnar, B. IX. 2, um að fella burt húsmæðrakenslu á Akureyri, frú Jónínu Líndal, að síðan brtt. voru prentaðar hefir borist skeyti, þar sem þess er getið, að hún hafi þegar ráðist í að auglýsa skólann fyrir næsta vetur, og hafi 10 nemendur þegar sótt um skólavistina, og auk þess hafi hún ráðið sjer aðstoðarkenslu. Hafði hún treyst því, að vel yrði tekið undir styrkbeiðni hennar hjer í deildinni, af því að svo hafði verið gjört í hv. Nd. Þó nefndin játi, að því fari fjarri, að þetta hafi verið rjett að farið hjá frúnni — og í alla staði óviðeigandi að líta svo smáum augum á efri deild, að hún engu rjeði um þetta, þó það væri samþykt í Nd., þá hefir þó þessi upplýsing og ýmislegt fleira valdið því, að nefndin hefir. orðið ásátt um að taka brtt. aftur og mun hún greiða atkv. með brtt. háttv. 2. kgk. þingmanns á þgskj. 754 um að krefjast styrks á móti annarstaðar frá.
Þá hefir nefndin og í einu hljóði lagt til að hækka styrkinn til matreiðsluskólans á Ísafirði. Þessi skóli hefir starfað vel og lengi, og fanst okkur enn frekari ástæða til að styrkja hann sæmilega, er þess er gætt, hversu mikið tillag er lagt fram annarstaðar að en úr landssjóði, sem sje nær 1200 kr. frá Vestur-Ísfirðingum, Ísafjarðarkaupstað, kvenfjelaginu Ósk á Ísafirði og Norður-Ísfirðingum. Okkur hafa borist til eyrna raddir um það, að húsaleiga fyrir þennan skóla væri hneykslanlega há, og hefir okkur að vísu blætt í augum hversu há hún er, en þess ber þó að gæta, að þetta er heimavistarskóli, sem þarf mikið húsnæði, og auk þess er afar erfitt að fá viðunanlegt húsnæði á Ísafirði, nema fyrir mjög hátt verð og líklega alsendis ómögulegt að fá það fyrir minna.
Jeg held að það sje nú ekki fleira, sem jeg þarf að taka fram um 14. gr. að sinni og æla því að snúa mjer að 15. gr. Þar ætla jeg að byrja með því að taka aftur 47. brtl. við 15, 1. b., að minsta kosti til 3. umr.
Nefndinni fanst ekki rjett að fella burtu styrkinn til vígjörða á Þingvöllum. Það er langt síðan að fornmenjavörðurinn vakti athygli stjórnarinnar á því, að þeir lægju undir skemdum af völdum náttúrunnar, og mætti ekki dragast að veita fje, ef vernda ætti þennan fornhelga stað. Þó að vísu sje þröngt í búi hjá okkur núna, þá lítur nefndin svo á, að ekki verði hjá því komist að veita þetta fje. Það er ekki til nein áætlun um hvað verkið muni kosta, eða bein lýsing á fyrirkomulagi þessara aðgjörða, en nefndin hyggur að fornmenjavörðurinn fari þar nærri sanni um áætlunina. Og þó nú þurfi að spara fje, þá ber þess að gæta í þessu efni, að telja má vafalítið, að það er sparnaður að láta aðgjörðina ekki bíða lengur, því hún myndi annars kunna að verða dýrari seinna, ef áfram halda skemdirnar.
Það er ekki gjörð nein grein fyrir næstu brtt. í nefndarálitinu. Brtt. fer í þá átt, að veittar verði 500 kr. til bókasafnsins á Seyðisfirði. Safnið er ungt og fátækt og hefir ekki sjeð sjer fært að kaupa eldri íslenskar bækur, sem þörf þykir á að eiga. En safnið kvað að öðru leyti vera mjög gott og mikið notað. Þykir nefndinni því rjett að því verði rjett hjálparhönd í þetta skifti.
Þá ætla jeg að hlaupa aftur í 16. gr. og nema staðar við kolin. Mikið hefir verið rætt og ritað um þessi svokölluðu íslenzku kol, hvort vera mundi „humbug“ eða ekki. Landsstjórninni hefir verið legið á hálsi fyrir það, að hafa ekki látið athuga málið gaumgæflega – eða hefjast eitthvað handa. Nefndinni fanst að ekki mætti svo búið lengur standa; væri það mjög mikilsvert, að gengið yrði úr skugga um, hvort þarna væri um auðsuppsprettu að ræða fyrir landið eða ekki. Ekki verður heldur á móti því borið, að ef glæsivonir þeirra manna rætast, sem besta hafa trú á þessu, þá sje til mikils að vinna. Þess vegna vill nefndin veita fje til rannsókna, svo stjórnin geti fengið námaverkfræðing sjer til aðstoðar, sem hún svo ljeti framkvæma ransóknina þannig, að þá fengist full vissa fyrir að sjerþekking hefði um þetta dæmt, en ekki getgátur og órökstuddir sleggjudómar manna, sem litla þekkingu hafa á málinu.
Við 18. gr. hefir nefndin gjört fáar brtt. og lítt merkar. Sú er helst, að leyft verði að reikna eftirlaun Bjarna Jenssonar frá því, er hann fékk lausn frá embætti og að eftirlaun Björns Blöndal verði reiknuð eftir þeim tíma, er hann hefir gegnt læknisstörfum. Nefndinni finst rjett, fyrst eftirlaun eru veitt, þá eigi það líka að vera gjört með allri sanngirni. Um Björn Blöndal er svo ástatt, að hann hefir nú slitið sjer út í þjónustu landsins í 25. ár sem aukalæknir og hjeraðslæknir, en vitanlega unnið að sama starfi á meðan hann nefndist aukalæknir, eins og eftir að hann kallaðist hjeraðslæknir. Nú hefir hv. neðri deild ekki viljað ganga lengra en reikna eftirlaun hans frá þeim tíma, sem hann varð hjeraðslæknir. En efrideildarnefndin vill að reiknuð sjeu honum eftirlaun fyrir allan þann tíma, sem hann hefir verið læknir. Því oss blandast ekki hugur um, og jeg býst við að fáum gjöri það, að maður þessi muni engu síður hafa unnið landinu gagn meðan hann var í fullu fjöri og blóma lífsins, þó hann gengi undir aukalæknisnafninu, heldur en síðar á æfinni.
Þá er brtt. við 19. gr. Hún er fyrir það fram komin, að nefndinni var kunnugt um að sumir lögreglustjórar eru í vafa um, hvort þeir megi nokkru til kosta til þess að halda uppi lögreglueftirliti með fiskveiðum í landhelgi, svo sem taka skip eða ná í númer þeirra, o. s. frv. Nefndinni þótti því rjettast að gefa mönnum bending um, að óhætt væri að kosta einhverju til slíks, en nefndinni fanst rjett að setja það undir óvissu útgjöldin, því fjeð, sem veitt er til landhelgiseftirlits, er svo lítið, að það má ekki skerða. Auðvitað hefði það ef til vill eins mátt standa í 11. gr. A. 4. en það hefir sjálfsagt enga þýðingu hvar það stendur, því þetta er að eins bending, en engin ný fjárveiting.
Um 21. gr. er það að segja, að nefndinni fanst allar þessar mörgu lánsheimildir vera næsta hjákátlegar nú á þessum tímum, en þó vildi hún ekki vera að amast við þessum litlu lánsheimildum, en leggur aftur á móti til að stóru lánsheimildirnar verði feldar burtu. Stjórninni hlýtur líka að vera gjört mjög þægt verk með slíku, því henni yrði altaf láð það, ef hún lánaði ekki það fje, sem heimilað er í fjárlögunum, og það enda þótt hún ætti ómögulegt með það. Það mun ganga svo til. Og vjer hyggjum að stjórnin muni hafa nóg annað við landsfjeð að gjöra, þó hún sje laus við þessar stóru lánsheimildir.
Margar brtt. eru komnar frá einstökum þingmönnum, en um þær ætla jeg ekki að tala að, sinni, heldur lofa mönnum að komast að, til að mæla með þeim og fylgja þeim fram, en mun að því loknu segja álit nefndarinnar á þeim helstu.
Jeg hefi gleymt að taka það fram, að nefndin tekur aftur 65. brtt. við 16. gr. 8. b. um gerlarannsókn og enn fremur 57. brtt. við 15, gr. 32. Að endingu skal jeg geta þess um 76, og 77. brtt., að þar er prentvilla, þar, sem talað er um 200 kr. fyrra árið, en þetta eru eftirlaun og eru þess vegna vitanlega goldin bæði árin.