04.09.1915
Efri deild: 52. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 99 í B-deild Alþingistíðinda. (31)

108. mál, fjárlög 1916 og 1917

Jón Þorkelsson :

Jeg þarf ekki að tala margt nú; sjálfur á jeg fáar brtt., og ætla mjer ekki að flangsa í annara manna tillögur ófyrirsynju.

Brtt. háttv. þm. Barð. (H. K.) um skjalasafnið mun hvorki gjöra frá nje til. Hann vill láta borga afskriftir fyrir safnið eftir reikningum. Þetta er einmit sama sem nú tíðkast. Sá sem afritar, gjörir það í safni því, er afskriftarskjölin geymir, og fær svo vottorð hjá safnverði um, hve langur tími hafi gengið til afskriftarinnar; eftir því er hún svo borguð.

Jeg gleymdi að koma með brtt. um úthlutun styrksins til skálda og listamanna; jeg hafði einsett mjer að koma burtu þessari vitlausu klausu um úthlutunarnefndina, sem háttv. Nd. smelti inn. Það er ekki smálítið hlægilegt, að skipa fyrir um nefndarkvaðning til að úthluta það, sem ekki er til.

Jeg mun vera með því, að styrkurinn sje hækkaður til Sighvats Grímssonar, og að Finnur Jónsson á Kjörseyri fái styrk þann, sem hjer er lagt til. Þessir menn eru báðir gamlir fræðimenn og góðs maklegir. Finnur hefir safnað mörgum hjeraðasögum úr þeim sveitum, sem lítið hefir verið að slíku gjört, af Ströndum og úr vestanverðu Húnavatnsþingi.

Jeg hefi lagt til að hraðritunarstyrkurinn væri hækkaður; því það hlýtur að líða að því, að hraðritarar verði ráðnir til þingsins. Þetta skjalafals getur ekki gengið til lengdar. Það liggur við að betra væri að gefa engin þingtíðindi út, en að gefa þau út jafn skökk og skæld, sem nú. Ræðurnar allar umhverfðar, frá því sem þær voru haldnar. Háttv. fjárlaganefndvill veita Helga Tómassyni styrk til að gefa út hraðritunarkenslubók. Jeg vil gjöra meira; jeg vil líka veita styrk til hraðritunarnáms. Einn piltur hefir sótt um slíkan styrk, og veit jeg að hann er duglegur og áreiðanlegur. Aðra brtt. hefi jeg komið með, og er hún svo vaxin, að húntalar ærið fyrir sjer sjálf. Jeg legg það til, að feldur sje niður 1000 kr. styrkurinn til Stórstúkunnar. Mjer er spurn: Hvað á Stórstúkan að gjöra með þennan styrk, nú eftir að landið á að vera alveg þurt, engin lögg framar til í því? Jeg sje á nefndaráliti fjárlaganefndar í Nd. að hún. hugsaði sjer að fá 2000 kr. á ári, til þessað styðja að því, að bannlögin sjeu haldin og fyrirbyrgja að þau verði afnumin, von. andi þó með öllu heiðarlegu móti. Ekki er nú til mikils mælst. Það er hvorki. meira nje minna en hún vill fá pólitímyndugleika hjer í landi, og magt til að gjöra þinginu örðugt fyrir að afnema vínbannslögin, þótt það vitkaðist svo, að það vildi fá þau af numin.

Þau afskifti, sem Stórstúkan mundi helsthafa af vínbannsmálinu, mundi verða njósnar og uppljóstursstarfsemi, alveg sama starfsemin, sem upphaflega var ætlast til að löghelguð yrði; en ákvæðið um það datt góðu: heilli úr frv. við meðferð þess í Nd.1909.

Það er ekki líklegt, að háttv. deild fari nú; að samþ. þennan styrk til Stórstúkunnar eftir að hún í dag feldi tillöguna um 5000 kr. fjárveiting til aukins tolleftirlits og lögreglueftirlits vegna bannlaganna, enda væri það skrítið, ef fylgja þyrfti hverjum lögum fjárveiting, til þess að sjá um að þeim sje fram fylgt.

Jeg sje það, að enn er einurðin góð hjá: Stórstúkunni, eins og fyrri daginn. Þingið 1913 ætlaðist auðsjáanlega til að upp úr þessu legðust niður allar fjarveitingar til bindindisstarfa, enda eru stúkurnar nú sem óðast að leggjast niður, sem betur fer, og hafa því ekkert með fje að gjöra; fjáraustur í þær á því ekki að eiga sje stað. Stúkuvafstrið gjörir ekki annað en tefja menn frá því, sem þarfara er, og jeg sje ekki ástæðu til að verðlauna slíkar stofnanir. Þingið 1913 veitti goodtemplurum fje að eins fyrra árið, en eigi hið síðara, og sýndi með því, að það ætlaðist til að öllum fjárveitingum til þeirra væri lokið, og hefir sjálfsagt vonað að nú væri fjárkvabb þeirra allt. En þar brást því bogalistin. Það er enn farið á stúfana og sótt um fje til uppljósturs, svo geðslegt verk sem það er.

Allir vita hvernig goodtemplarareglan eða óreglan, fór að ráði sínu 1908–1909. Henni hafði verið veittur allríflegur fjárstyrkur til eflingar bindindi. Og hvað gjörði hún með það fje? Hún sendi kögursveina sína út um alt land fyrir það, og ljet þá agitera fyrir aðflutningsbanni. Men þessu atferli tókst henni að skella vínbanninu yfir landsmenn, að þeim óvörum.

Það væri jafngott, að fram kæmi;tillaga, áður en þingi lykur, um að bera málið af nýju undir þjóðaratkvæði, og sjá hvernig nú færi. Það er ekki lítið fje, sem mokað hefir verið í þessa blessaða goodtemplarareglu. Fyrst mun henni hafa verið veitt landsfje 1894, og árlega síðan fram að þessu ári. Oftast mun það hafa verið veitt með góðu geði, alt fram að 1909. En síðan hefir sú breyting á orðið, að „reglan“ er hötuð og fyrirlitin af öllum, sem hafa einhvern snefil af rjettlætistilfinningu. Jeg þykist svo ekki þurfa að tala meira um þetta mál, enda mintist jeg lítillega á það fyrr í dag. En biðja mun jeg um nafnakall, þegar gengið verður til atkv. um brtt. mína. Það má ekki láta ósagt hjer á þingi, að goodtemplarreglan hefir farið óforsvaranlega að ráði sínu, og það hefði verið margfalt betra, að hún hefði öll farið á túr fyrir fjeð, sem henni var veitt 1908–1909, en að verja því eins og hún gjörði.

Þá skal jeg minnast lítið eitt á kolin. Ýmsir telja það óhyggilegt, að fje sje veitt til að rannsaka, hvort nýtileg kol megi fá á Vesturlandi eða eigi. Jeg lít svo á, að þótt engin nýtileg kol fyndust þar, þá væri eigi síður sjálfsagt að láta rannsókn fara fram, til þess að vissa fengist. Reyndar veit jeg að þar fást kol sem nota má, hvort sem menn nú vilja nefna þau brúnkol eða gefa þeim annað nafn; þau brenna allvel og eru töluvert notuð á Vesturlandi. Hingað til hafa eigi verið tekin önnur kol en þau, sem efst liggja eða yst, en nú er það margra trú, að það muni batna eftir því sem innar dregur. Þetta þarf að rannsaka til hlítar.

Um brimbrjótinn í Bolungarvík er það að segja, að eftir því sem jeg hefi sannast spurt, mun það vera frágangssök að taka við fjárveitingunni til hans með þeim skilyrðum, sem háttv. Nd. hefir sett. Á síðasta þingi var fjárveiting til brimbrjótsins bundin því skilyrði, að hjeraðsbúar legðu fram helming móts við hana: urðu þeir að taka lán til þessa þá, og má því vænta þess, að nú geti þeir lítið lagt af mörkum.

Nú vita allir að þarna hefir verið veiðistöð frá aldaöðli, en hafnaleysi einnig og hættuleg lending. Það er því nauðsynlegt að fá gjört við því. Margt fleira gæti jeg talað um, en nenni því þó ekki um sinn. Þó skal þess getið um hana Hólmfríði kenslukonu, að hún er víst mesta merkiskvendi. Jeg sje að þingið hefir veitt henni fje til náms,. og er því óhætt að láta hana hafa þessa fjárveiting til kvöldskólahalds fyrir yngismeyjar.

Það hefir verið minst á styrkinn til Ágústs Bjarnasonar, að fella hann niður. Jeg tek undir með þeim, sem á móti því hafa verið. Því að mjer finst undarlegt, að hætta í miðju kafi, áður en hann er búinn að ljúka þessum ritbálki sínum, og greiði því atkvæði móti því.

Þá er það ungur maður, Jakob Jóhannesson, sem hefir farið fram á, að fá styrk til þess að semja setningafræði eða „syntaxis“, og er það nauðsynlegt. Jeg hefi sjeð beiðni hans, og er það fallega stílað brjef. Jeg verð því honum meðmæltur.