09.08.1915
Efri deild: 27. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 291 í B-deild Alþingistíðinda. (314)
12. mál, landhelgissjóður Íslands
Framsm. (Sig. Stefánsson) :
Nefnd sú, sem kosin var til að athuga þetta mál, hefir gjört grein fyrir tillögum sínum um það. Það er sjálfsagt, að ef Norðurálfuófriðurinn hefði ekki komið; hefði ekki komið fram sú tillaga um breytingu á Landhelgissjóðnum, sem hjer er farið fram á. Það hefði þá mátt gjöra ráð fyrir, að þessi sjóður árlega hefði fengið mikið fje fyrir sektir fyrir ólöglegar veiðar í landhelgi, svo að ekki hefði verið ástæða til að auka hann með meira tillagi úr landssjóði. En nú er það komið í ljós, að tekjur sjóðsins fara mjög þverrandi, af því að svo lítið er hjer við land af útlendum fiskiskipum. En hins vegar dylst engum, að nauðsyn beri til, að þessi sjóður aukist sem fyrst, svo að hann geti komið sem fyrst landhelgisvörnunum að verulegu haldi. Nefndarálitinu fylgir brjef stjórnarráðsins, sem sýnir hversu miklar tekjur sjóðsins hafa verið síðasta ár; þær eru allmiklar, og hefðu þó orðið meiri, ef ófriðurinn hefði ekki skollið á. Í ár hafa tekjurnar verið svo sem engar og má búast við, að svo verði meðan ófriðurinn stendur.
Jeg skal játa, að varlega sje nú í það farandi, að setja mikið af fje landssjóðs fast, en neðri deild, sem á að ráða mestu um fjármálin, þótti samt rjett, að hækka þetta tillag. Það má segja, að þetta sje tillag úr landssjóði til eflingar fiskiveiðunum, en að vísu kemur það ekki strax að haldi, en það flýtir fyrir því, að við gætum sem fyrst tekið að okkur landhelgisvarnirnar, og það setti öllum að vera áhugamál.
Það er lauslega drepið á það síðast í nefndarálitinu, að þessi fúlga, sem landssjóði ber að greiða, er ekki innborguð í sjóðinn. Meðan það fje er ekki innborgað, liggur það vaxtalaust. Nefndin vill lýsa því yfir, að hún telur þetta illa farið, en vill þó ekki álasa landsstjórninni fyrir það. Hún álítur þó rjett að hreyfa því hjer á þinginu, að framvegis verði það fje, er Landhelgissjóðurinn fær, innborgað strax í hann. Það er mikið vaxtatap fyrir sjóðinn, ef fje hans liggur í landssjóði vaxtalaust tímum saman. Þetta vildi nefndin taka fram. Hún vonast að öðru leyti eftir því, að háttv. deild amist ekki við að láta frumvarpið ganga óbreytt gegnum deildina.