09.08.1915
Efri deild: 27. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 297 í B-deild Alþingistíðinda. (323)

12. mál, landhelgissjóður Íslands

Karl Einarsson:

Jeg sje ekki hvað það er á þgskj. 239, sem hefir getað gefið tilefni til ótta. Jeg skil ekki í öðru en að nóg sje til í landssjóði, til þess að borga þetta fje. Mjer þætti ekki undarlegt, þótt hann gæti borgað þessa upphæð með núlli aftan við. Hvers vegna hún hefir ekki verið útborguð að svo stöddu, er skiljanlegt; reikningarnir voru nýlega endurskoðaðir, og því alls ekki hægt að ákveða upphæðina fyrr en eftir að sú endurskoðun fór fram. Okkur hefði sæmt betur, að vera búnir að taka að okkur landhelgisvörnina fyrir löngu, en þetta er nú spor í áttina til þess. Og hjer er svo hóflega farið, að engin ástæða er til ótta. Þótt 20 þús. væru endurgoldnar árlega af því sektafje, sem runnið hefir í landssjóð, þá væri það ekki of mikið og ekki nærri vextir af því fje.

Mjer þykir gaman að sjá þá menn, sem greiða atkvæði á móti frumvarpinn. Jeg vil láta málið ganga sinn gang og lofa þeim að sýna sig, sem eru á móti því.

Jeg væri ekki á móti því, að málinu væri frestað, ef nokkur ástæða væri til þess, því að nefndir í svona máli, sem hafa talsverð útgjöld í för með sjer fyrir landssjóð, ættu að bera sig saman við fjárlaganefndirnar.