05.08.1915
Efri deild: 24. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 314 í B-deild Alþingistíðinda. (340)

77. mál, vatnsveita

Flutnm. (Kristinn Dan.):

Þetta frumv., er hjer liggur fyrir, er viðauki við vatnsveitulögin, og jeg flyt það eftir ósk og þörf kauptúns eins í kjördæmi mínu, þar sem eins stendur á og gjört er ráð fyrir í frumvarpinu, að ekki er hægt að veita þangað neysluvatni.

Eins og háttv. þingmönnum er kunnugt, heitir hjer suður með sjó Vatnsleysuströnd. Það er rjettnefni, en á ekki einungis við þá sveit, sem svo er kölluð, heldur einnig alla strandlengjuna í kring um Reykjanes; því að þar er, svo að segja, hvergi lind nje lækur. Af því stafa erfiðleikar með að ná í drykkjarvatn, og vatnið þar að auki víða illt, svo að auk erfiðleikanna eiga menn við þau óþægindi að búa, að hafa vont neysluvatn, svo að sumstaðar er varla hægt að fá góðan kaffisopa. Þetta er líka mjög varhugavert frá heilsufræðislegu sjónarmiði, og læknisfróða menn hefi jeg heyrt segja, að ýmsir kvillar, sem þar eru landlægir, muni geta stafað af vondu vatni.

Jeg á með frumvarpi mínu við einn stað á strandlengju þessari, og það er Keflavík. Þar var til skamms tíma einn brunnur með nokkurn veginn góðu vatni i, en útbúnaður allur við brunn þenna, var mjög ófullkominn. Þess vegna var gjörður annar brunnur, eftir samkomulagi við verslun eina þar, sem lagði fram kostnaðinn, og var það í samningum, að hús þau, er neyttu vatns úr brunninum, skyldu greiða henni vatnsskatt. Á eftir gekk þetta ekki eins vel og hugsað var, og varð úr því ágreiningur og vandræði. Hefir því hygnum mönnum fundist, að hið opinbera, sveitarstjórnin, ætti að taka að sjer kostnað við brunnana og gjöra þá úr garði, svo að þeir fullnægi þörfunum. Það er þörf á nokkrum meiri stofnkostnaði ; það þarf að dýpka að minsta kosti annan brunninn, kaupa góðar dælur og svo fram eftir götunum. Einhver kann nú að segja, að sveitarstjórnin geti, án nýrra laga ráðist í þetta, og jafnað niður kostnaðinum á hreppsbúa, með öðrum sveitarþörfum. En það er ekki hægt, því að hreppurinn er tvískiftur, nefnilega Keflavík- og Njarðvíkurhreppur. Njarðvík getur auðvitað ekki borið þenna kostnað, sem Keflavíkurkauptún eitt, nýtur góðs af. Nauðsynlegar framkvæmdir hljóta því auðvitað að verða á kostnað vatnsneytanda í Keflavík.

Jeg vil ekki þreyta háttv. deild með langri ræðu, og vona líka, að ekki þurfi að reifa málið meira að sinni; vona, að háttvirt deild vísi málinu til 2. umræðu, til þess að íhuga og bæta búning þann, er það hefir birst í hjer.

Það getur verið, að taka þurfi fleiri atriði til greina. Leyfi jeg mjer svo að stinga upp á þriggja manna nefnd, til að íhuga málið að þessari umræðu lokinni.