25.08.1915
Efri deild: 42. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 336 í B-deild Alþingistíðinda. (401)
68. mál, útflutningur hrossa
Framsm. (Sigurður Stefánsson) :
Jeg tók það fram áðan, að nefndin sem kosin var í Nd. hefði helst kosið að útflutningsbannið hefði staðið fram í júnímánuð, en hjer verður að gæta þess, að ganga ekki svo langt, að það geti orðið mönnum að miklu efnalegu tjóni. Þangað til í fyrra hefir ekki verið venja, að flytja út hross, nema að sumarlagi. Jeg hefi ekkert á móti því, að tíminn sje lengdur eins og háttv. þm. Barð. (H. K.) fór fram á, en þó það verði ekki samþykt, þá er þó frv., eins og það er, mikil bót frá því sem nú er.
Þó sorglegt sje að segja frá því, þá verður þess ekki dulist, að hross falla hjer á landi, þó háttv. þm. þekki það ekki af Vestfjörðum. Álít jeg að betra sje þó, að lengja tímann til 1. maí.
Það, sem nefndin hafði fyrir augum, er hún tiltók þennan tíma, var hve misjafnt tíðarfar er hjer oft á vorin, og ástand hrossanna fer, sem kunnugt er, mikið eftir því. Reynslan hefir sýnt, að í vondum vetrum falla hross unnvörpum; en eins og gefur að skilja, eru þau færari um að þola hrakninga á haustin en vorin.
Hvað því við víkur, að frámunalegu eftirlitsleysi sje um að kenna, að hross falli, þá er líkt um þau og annan búpening, að öllu eftirliti með honum er mjög ábótavant. En þess ber að gæta, að þess örðugra er þetta með hrossin en aðrar skepnur, að í sumum hjeruðum landsins er hrossaeign svo mikil, að bændur eiga þar fleiri hross, heldur en vestfirskir bændur eiga sauðfje, og sumir bændur eiga þar jafnvel ekki hús yfir öll hross sín.
Mjer láðist að geta þess áðan, að 1. brtt. á þgskj. 493 hefir gengið í gegn í Nd. með rangri tilvitnun, sem sje 2. málsl. 2. gr., en á að vera 2. málsl. 1. gr. Nefndin hefir tekið eftir þessu og leiðrjett það.