25.08.1915
Efri deild: 42. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 345 í B-deild Alþingistíðinda. (420)
41. mál, löggiltir vigtarmenn
Steingrímur Jónsson:
Viðvíkjandi brtt. á þgskj. 516 vil jeg taka það fram, að jeg er henni samþykkur, og hygg jeg að hv. meðnefndarmenn mínir sjeu það líka. Við litum svo á, að 75 aurar væru undir flestum kringumstæðum fullhátt og sæmilegt kaup. En jeg neita því ekki, að það geti komið fyrir, að það sje of lágt. Jeg hygg að 75 aurar verði venjulegasta kaupið, en fari að eins fram úr því, er lögreglustjóri telur þess brýna þörf.
Nefndin hefir aldrei rætt það, sem hv. 5. kgh. þm. (G. B.) mintist á, enda kemur það þessu máli ekki beinlínis við. En nefndin gekk að því sem vísu, að vigtarmenn bæru ekki ábyrgð á því, að vogirnar væru rjettar. En það mun vera rjett vera, að of lítið eftirlit sje haft með því. Og hafi jeg verið beðinn að gæta þess, sem sjaldan hefir verið, þá hefi .jeg verið í vandræðum, því að jeg þekki ekki önnur lóð, sem hægt sje að fara eftir, en frá Veje- & Maalekompagniet í Khöfn.