25.08.1915
Efri deild: 42. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 346 í B-deild Alþingistíðinda. (423)

41. mál, löggiltir vigtarmenn

Guðmundur Björnson:

Jeg hygg, að þess sje full þörf, að þetta mál verði athugað nánar. Það er. satt, sem hv. 6. kgk. þm. (J. Þ.) sagði, að það er ómynd, að vjer skulum ekki sjálfir annast löggilding vogar og mælis; og það er rjett, sem 6v. 1. kgk. þm. (E. B.) sagði, að það er ekki vandalaust verk að rannsaka lóð. Öll lóð geta slitnað af notkun, og skekkjur á tugavogum geta orðið mjög miklar. Það er ekki nóg, að lóðið segi rjett til, Vogin verður líka að vera svo viðkvæm, að hún þurfi ekki mikinn áæti til þess að hreyfast. Það mun ekki ósjaldan koma fyrir, að þegar salt er vegið á tugavog, þá sje vogin svo stirð, að hún finni ekki 10 £b mismun. Jeg vil skjóta því til nefndarinnar, hvort hún vilji ekki verða við þeirri málaleitun minni, að bera fram nú á þessu þingi tillögu til þingsályktunar um þetta tvent, 1. löggilding vogar og mælis hjer á landi, og 2. reglur um skoðun á lóðum og vogum