01.09.1915
Efri deild: 48. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 348 í B-deild Alþingistíðinda. (431)

104. mál, útflutningsgjald

Framsögumaður (Kristinn Daníelsson):

Jeg stend ekki upp af því, að mjer þyki þurfa að tala með frumvarpinu, því að jeg vona að háttv. deild samþykki það eins og það nú liggur fyrir, nefnilega það, að helmingurinn af útflutningsgjaldi fyrir síld gangi til landhelgisvarna fyrir norðan.

Jeg vildi aðallega vekja athygli á því, sem stendur í niðurlagi nefndarálitsins, að nefndin vill henda háttv. fjárlaganefnd á það, að þetta getur leitt til þess, að nauðsynlegt yrði að hækka fjárveitinguna til landhelgisvarna. Um leið og jeg mæli með því, að frumvarpið verði samþykt, vil jeg skjóta því til hv. formanns fjárlaganefndar, hvort hún vilji hafa þetta mál til athugunar.