18.08.1915
Efri deild: 36. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 353 í B-deild Alþingistíðinda. (459)

107. mál, skoðun á síld

Sigurður Stefánsson:

Af því að mál þetta er svo seint fram komið, að leita þarf samþykkis deildarinnar um það, vil jeg leyfa mjer að skýra nokkuð frá, hvað því hefir valdið. Jeg hefi rjett nýlega fengið beiðni manna úr kjördæmi mínu, um að skora á Alþingi að semja viðauka við síldarmatslögin, þess efnis, að yfirmatsmaður verði skipaður á Ísafirði fyrir næstu hjeruð.

Jeg skal ekki fara mikið út í einstök atriði en jeg vil þó skýra frá því, að í sumar veiðist fyrir vestan töluvert af síld í herpinætur og er aflinn þegar orðinn 4000 tunnur og útlit fyrir að hann verði miklu meiri. Útgjörðarmenn kvarta undan því, að mat fáist ekki á síldinni, en það getur haft mjög slæm áhrif, ef hún er ekki metin.

Jeg flyt þetta mál eftir óskum 13 manna að vestan. Áskorunin er sprottin af brýnni nauðsyn til að fá yfirsíldarmatsmann sem búsettur sje á Ísafirði. Ef það fæst ekki, er alls ekki full örugt, að viðunanlegt verð fáist fyrir síldina og ef hún ekki verður góð verslunarvara, þá kemur það útgjörðarmönnunum í koll.

Síldarmatslögin frá 11. júlí 1911 ná að eins yfir svæðið frá Langanesi að Hornbjargi. Á því svæði eiga að vera tveir yfirsíldarmatsmenn, og á lögunum verður ekki sjeð, að þeir geti skipað undirmatsmenn á öðru svæði. Það er því mjög áríðandi fyrir síldarútvegsmenn fyrir vestan, að fá yfirsíldarmatsmann. Laun hans þyrftu ekki að vera jafn há og hinna, sem mega álítast of há, þegar litið er á, hve starfstími þeirra er stuttur, að öðum jafnaði.

Að svo mæltu vona jeg að háttv. deild líti á þá nauðsyn, er hjer er um að ræða, og verði meðmælt frumvarpi þessu.