20.08.1915
Efri deild: 38. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 354 í B-deild Alþingistíðinda. (461)

107. mál, skoðun á síld

Björn Þorláksson:

Jeg hefi leyft mjer að bera fram breytingartillögu á þingskjali 441, og fer hún fram á að bæta skuli við tveimur yfirmatsmönnum í staðinn fyrir einn, eins og frumvarpið gjörir ráð fyrir, og skuli annar þeirra hafa aðsetur á Seyðisfirði. Eins og mönnum mun kunnugt, var um eitt skeið mikil síldveiði á Austfjörðum, þótt hennar hafi litið gætt nú hin síðari árin. En í fyrra, og sjerstaklega þó í sumar hefir talsvert aflast í kastnætur, þrátt fyrir það, að tilfæringar allar hafa verið mjög ljelegar. En nú kvarta menn þar eystra yfir því, að ekki sje mögulegt að selja síldina, vegna þess, að eigi sje hægt að fá hana metna. Lög þau, sem nú eru í gildi, mæla svo fyrir, að yfirmatsmenn skuli og meta þá síld, sem veidd er í herpinætur og enn fremur hafa menn rjett til þess, að fá þá síld metna, sem legið hefir hæfilega fengi í salti. Hjer er um slíka síld að ræða, en til þess að frumvarpið geti komið að fullum notum í ár, þyrfti að koma fram með brtt. við 3 umr., um að lögin skyldu þegar ganga í gildi, því að þá má vænta, að Austfirðingar geti selt síld sína fyrir nýár. Jeg vona að háttv. Ed: taki þessari brtt. vel, því að ef skipa á yfirmatsmann á Vestfjörðum þá sýnist ekki ástæða til að láta Austfirði sitja á hakanum. Eins og jeg þegar hefi tekið fram, hefir síldveiðin aukist þar hin síðustu ár, og má vera að fólkinu hafi orðið að þeirri trú sinni, að síldin mundi aukast, ef hætt væri að drepa hvalina. — Um árslaun yfirmatsmannsins skal jeg geta þess, að mjer er ekki fast í hendi með þessar 600 kr., ef til vill mætti ákveða nokkru lægri upphæð, ef mönnum svo sýnist.