23.08.1915
Efri deild: 40. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 355 í B-deild Alþingistíðinda. (464)
107. mál, skoðun á síld
Sigurður Stefánsson:
Sjávarútvegsnefndin hefir komið með breytingartillögu út af ummælum háttv. 4. kgk. þm. (B. Þ.), að á Austfjörðum gæti verið ástæða til að lögin gengi strax í gildi, miðað við það, að á Austfjörðum er síldin mest veidd í kastnætur, og þolir því lengri geymslu í salti, heldur en herpinótasíld. Vona jeg að háttv. deild samþykki þetta.