03.09.1915
Efri deild: 51. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 374 í B-deild Alþingistíðinda. (491)
138. mál, verkfall opinberra starfsmanna
Flutningsmaður (Jósef Björnsson) :
Háttv. 5. kgk. (G. B.) nefndi vinnuhjúalögin leifar af gamalli þælkunarlöggjöf. En með því hefir hann og játað, að hjer sje ekki um nýmæli að ræða, heldur hafi svipuð lagsfyrirmæli sem í frumv. lengi verið til.
Mjer finst háttv. 5. kgk. (G. B.) eigi taka nægilegt tillit til þess, að vanalegir verkfallsmenn, sem hætta vinnu til að fá kaup sitt hækkað, eru ekki sambærilegir við þá menn, sem frv. ræðir um. Frv. þetta er enginn þröskuldur í vegi fyrir því, að almennir verkamenn geti endurnýjað samninga sína eða látið af starfinu með hæfilegum fyrirvara, ef þeim líka ekki launakjörin. Það snertir þessa menn ekkert. Enga hindrun leggur frv. heldur í veg einstakra embættismanna eða annara starfsmanna landsjóðs, að segja starfi sínu lausu með fyrirvarð. En ef heill hópur manna, sem hefir á hendi störf fyrir landsjóð, legði niður störf sín fyrirvaralítið eða fyrirvaralaust, og heimtaði hærri laun, þá hlýtur að reka að því, sem hæstv. ráðh. benti á, að stjórnin lenti í hreinustu vandræðum, ef hún neyddist til að borga út hærri laun en lögheimiluð eru. Það ríður á að fyrirbyggja, að þetta geti átt sjer stað, og því virðast sektarákvæðin ekki of ströng, þegar þess er gætt, að þau eiga að koma í veg fyrir það, að mikilvæg störf fyrir þjóðfjelagið sjeu lögð niður fyrirvaralaust og má ske á óhentugasta tíma. Hins vegar kann það að vera rjett, að búa svo um, að lækka megi sektirnar fram úr því, sem frumv. tekur til, ef alveg sjerstakar málsbætur eru fyrir hendi.