09.08.1915
Efri deild: 27. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 390 í B-deild Alþingistíðinda. (506)
58. mál, ritsíma og talsímakerfi Íslands
Framsögumaður (Kristinn Daníelsson):
Þótt nefndarálitið í þessu máli sje stutt, þá hygg jeg að nægilegt sje að skírskota til þess. Mál þetta hefir komið fram að tilhlutun landsímastjórans. Orsökin til þess, að nú þegar þarf að gjöra breytingu á símalögunum, er sú, að þegar þau voru sett, vantaði mikið á, að búið væri að rannsaka fullkomlega, hvar hentugast væri að leggja símalínurnar, og var því lega þeirra sumstaðar í lögunum ákveðin nokkuð af handahófi, líkt og um vegi í áframhaldi væri að ræða. En það getur komið fyrir um síma, að hentugra sje að slíta þá í sundur og leggja svo sjerstaka símaspotta, og þannig er það hjer. Í þessu frv. er farið fram á tvær breytingar á símalögunum, önnur þeirra er á Austfjörðum, hin á Reykjanesskaga. Fyrir austan stóð svo á; að það átti að leggja símann frá Hjaltastað á Unaós og svo þaðan til Borgarfjarðar. En það þykir ekki þörf að fá síma á Unaós, og hjer er því farið fram á að Unaós sje slept, en síminn lagður beina leið frá Hjaltastað til Borgarfjarðar. Er það ein lína í þríhyrning í staðinn fyrir tvær ella, og verður línan við það talsvert styttri, því eins og allir vita er ein lína í þríhyrningi styttri en hinar tvær línurnar. Við þetta sparast 5800 kr. Á móti þessu kemur það, að nauðsynlegt þykir að leggja síma frá Seyðisfirði til Loðmundarfjarðar. Sá sími mun kosta um 7000 kr. Hjer virðist því vera um 1200 kr. kostnaðarauka að ræða, en það þarf varla að álíta að svo sje, því að sá sími mundi verða lagður hvort sem er innan skams, svo að það má segja að þær 5000 kr., sem jeg gat um áðan, sjeu alveg sparaðar.
Hin breytingin er fólgin í því, að í staðinn fyrir að halda áfram línunni, sem komin er frá Hafnarfirði suður í Garð suður með sjó til Grindavíkur, er nú ætlast til að línan til Grindavíkur sje lögð á staurana, sem nú eru suður með sjó til Vogastapa og þaðan beint til Grindavíkur, með fram hinum nýja vegi. Með þessu er tvent unnið, að síminn liggur meðfram vegi, og þykir það kostur, og að hægt er að nota veginn við stauraflutninginn. Hinn spottinn frá Keflavík suður í Hafnir verður lagður inn í Njarðvík á eldri staura, og þaðan á nýja staura stystu leið suður í Hafnir. Þessar tvær línur verða mun styttri en lína í kring um Reykjanes, og kostnaður við þær því talsvert minni.