08.09.1915
Efri deild: 55. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 411 í B-deild Alþingistíðinda. (517)

58. mál, ritsíma og talsímakerfi Íslands

Framsögum. (Kristinn Daníelsson) :

Eins og sjest af nefndarálitinu á þgskj. 772 leggur nefndin til, að frv. verði samþ. óbreytt eins og það kom frá hv. Nd.; þar hafa að eins verið gerðar orðabreytingar á frumvarpsgreininni upphaflegu, en ekki efnisbreytingar. Aftur á móti hefir Nd. aukið við nýrri grein, sem ákveður, að heimilt sje að reisa loftskeytastöð í Reykjavík, þótt hún hafi ekki nægan kraft til sambands við útlönd, og fullnægi að því leyti ekki skilyrðum ritsímalaganna. Þetta kom líka til tals hjer í deildinni, er málið var rætt hjer, þótt sú yrði niðurstaðan, að taka ekki þetta ákvæði inn í frv. En nú hefir neðri deild sýnst það tiltækilegt, og vill nefndin ráða til, að hv. Ed. verði því ekki mótfallin. Það er mjög æskilegt að loftskeytastöð verði sett .hjer á stofn, og þó að hún hafi ekki nógan kraft til þess að ná til annara landa, þá getur hún þó komið að haldi einnig að því leyti, því að skip eru skyldug til að flytja skeyti áleiðis. Mjer er sagt, að stöð með slíkum krafti, sem þessi á að hafa, geti náð til skipa fyrir norðan Skotland, og verður þá auðið að koma skeytum milli landa. Þegar við nefndarmenn í upphafi töluðum um loftskeytastöð, gjörðum við ráð fyrir, kostnaðurinn yrði um 50 þús. kr. En nú er okkur tjáð að komast megi af með miklu minni kostnað, eða hjer um bil 20 þús. kr. Loftskeytaáhöld kosta 11 þús. kr., með því verði, sem nú er, og vel er hægt í byrjun að komast af með hús fyrir 4 þús. kr., — seinna má svo auka við það, — en stöngin þá eitthvað nálægt 5000 kr. Í hinni fyrri áætlun var gjört ráð fyrir, að húsið kostaði 25 þús., en stöngin 10 þús. kr. — Jeg skal svo ekki fara fleirum orðum un; þetta, en legg til að hv. deild fallist á tillögur nefndarinnar. Þess skal getið, að í frumvarpsgreininni eru prentvillur, og mun skrifstofan sjá um, að þær verði leiðrjettar. Helst er þessi: „Sandskörð“ fyrir Sandaskörð.