08.09.1915
Efri deild: 55. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 413 í B-deild Alþingistíðinda. (519)

58. mál, ritsíma og talsímakerfi Íslands

Ráðherra:

Mjer kemur dálítið kynlega fyrir, hvernig hv. þm. Vestm. (K. E.) lítur á þetta mál. Vill hann heldur alls enga stöð, heldur en að hún geti að eins skift við skip. Getur verið að þetta orsakist af hinni sjerlegu sjómannsþekkingu hans. Mál þetta hefir verið rætt í Nd. og eftir að fyrirspurnum. því viðvíkjandi hafði verið svarað, var allur þorri þingmanna á því máli, að ekki væri tiltækilegt að byggja öðruvísi stöð en hjer er rætt um.

Hjer koma 4 stærðir af stöðvum til mála, sem sje stöð, er nái til Ameríku, með uppundir 250 kílóvolta styrkleika, og mundi hún kosta frá 750 þús. til 1 milj. kr. Því næst er stöð, er næði til Bergen, og mundi hún kosta frá 130–150 þús. kr., en þar kemur ekki að eins byggingarkostnaður til greina, heldur líka hvort landsstjórnin getur rekið hana án skaða. En gegn þessu koma ákvæði þau, sem tekin eru fram í leyfisskrá þeirri; er Stóra Norræna fjekk 28. júní 1906, og birt var í A.-deild stjórnartíðindanna sama ár, og jeg skal lesa, með leyfi hæstv. forseta 6. gr. skrárinnar hljóðar svo: „Meðan leyfi þetta stendur skal ekki mega veita neinum öðrum rjett til símalagningar eða annara til almenningsnota ætlaðra rafmagnssambanda milli Íslands og Færeyja eða milli Íslands eða Færeyja og annara hluta Norðurálfu. Aftur á móti skal leyfisskrá þessi ekki vera því til fyrirstöðu, að reistar sjeu, á Íslandi eða í Færeyjum, stöðvar fyrir þráðlausa firðritun til hraðskeytasambands við skip á sjó úti. Heimilt er og stjórn Íslands, áður leyfi þetta er á enda, að stofna þráðlaust firðritunarsamband milli Færeyja og einhvers staðar í nánd við Reykjavík, ef stjórninni þykir það æskilegt, með því skilyrði, að fjelagið fái sömu borgun fyrir hraðskeyti, send með loftritunartækjunum, eins og fyrir sæsímaskeyti frá eða til eða gegn um Ísland. Meðan slíkt þráðlaust samband er reglulega notað, færist tillag það frá landssjóði, sem nefnt er í 2. gr., niður um 13 þús. kr. á ári“.

Meðan leyfi þetta stendur, höfum við því alls ekki leyfi til að byggja stöðvar, sem eru stærri en svo, að þær nái til Færeyja. Ritsímafjelagið gæti gjört rjett sínu gildandi með dómi, og jafnframt er áskilið að endurnýjun fáist á leyfinu að 20 árunum loknum, en það ákvæði fjell að vísu burt með ritsímaláninu 1913, er svo var um samið, að þegar það lán væri fullborgað; þá fjelli burt skerðingin á leyfi til að byggja loftskeytastöð, en þó ekki fyrri en að leyfistímanum loknum. Eftir 20 ár er því fult leyfi til að byggja stöð, sem nær til Bergen, án leyfis Stóra Norræna, ef lánið er þá greitt. Danir voru áður að hugsa um stöð í Færeyjum, en munu nú hættir við það, að minsta kosti í bráðina. En þýðingarlaust fyrir okkur að hugsa um samband við Færeyjar, meðan þar er eigi reist loftskeytastöð.

Loftskeytastöð, sem gæti náð til skipa, mundi kosta um 28 þús. kr., og er þar með reiknuð 10% verðhækkun. Get jeg ekki sjeð nema um tvent sje að velja, annaðhvort að hyggja enga stöð, eða þá að hún sje svo úr garði gjörð, að hún nái til skipa. En þá er auðvitað spurningin, hvort gagnið að henni sje svo mikið, að hún nái tilgangi sínum. Háttv. þm. Vestm. (K. E.) heldur það ekki, en mjer er kunnugt um að ýmsir álíta hið gagnstæða. Jeg hefi sjálfur ekki vit á þessu máli, eins og ætti að vera, en fer þar eftir áliti annara skynbærra manna, og jeg get ekki sjeð, að neinn skaði sje skeður, þó 2. gr. á þgskj. 770 sje samþykt, því að þó stöðin verði ekki reist, þá skaðar þó ekki að heimildin standi. Gott er líka að hafa heimildina, því lögin frá 1912 verða varla skilin öðruvísi en að stöðin megi ekki ná skemra en til „útlanda“. Ritsímalögin segja svo í 6. gr., og hjer verður að gæta gjörðra samninga. Í Nd. var greinin samþykt með miklum atkvæðamun.