08.09.1915
Efri deild: 55. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 417 í B-deild Alþingistíðinda. (524)
58. mál, ritsíma og talsímakerfi Íslands
Hákon Kristófersson:
Þó jeg sje á því, að æskilegt væri að byggja stöð, sem næði til útlanda, þá mun jeg samt greiða frv. þessu atkvæði. Gjöri jeg það, vegna tals, er jeg átti við landsímatjórann, og þótti honum líklegt að þvílíkar smástöðvar væru hentugar á stöðum, sem lítil líkindi eru til að komist bráðlega í símasamband. Var jeg þá sjerstaklega að hugsa um Flatey á Breiðafirði. Er það sem kunnugt er, allfjölmennur staður, en lítil líkindi til, að þangað komi sími fyrst um sinn, en lítil loftskeytastöð yrði þar að góðu gagni. Auk þess mætti nefna marga aðra staði, sem mundu koma á eftir.
Get jeg að öllu leyti fallist á skýringar hæstv. ráðherra á þessu máli, að á næstu árum getum við ekki fengið stöð, nema með nýjum samningum, og eins að bæta megi síðar við væntanlega stöð hjer án verulegs kostnaðarauka. Get jeg því ekkert sjeð á móti því, að frv. nái fram að ganga, og mun greiða því atkvæði mitt