08.09.1915
Efri deild: 55. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 420 í B-deild Alþingistíðinda. (528)

58. mál, ritsíma og talsímakerfi Íslands

Ráðherra:

Háttv. þm. Skagf. (J. B.) kvaðst hafa talað við útgjörðarmann hjer í Reykjavík, sem ekki hefði kært sig um loftskeytastöð. Það er mjög líklegt, að sumir útgjörðarmenn sjeu þeirrar skoðunar, því eins og kunnugt er, þá fylgjast menn misjafnlega vel með tímanum, og sumir hata jafnan allar nýjungar, en þykjast vera sjer fullnógir sjálfir. Þessi útgjörðarmaður viðurkendi þó, að mannbjörg gæti orðið með hjálp stöðvarinnar, sem ella væri ókleif, og virðist það þegar vera höfuðkostur.

Það er vitanlega alveg rjett hjá háttv.þm. Skagf., að sjálfsagt er að bíða og sjá hvernig þessi stöð reynist, áður en tekið er að reisa fleiri stöðvar.

Hvað því við víkur, að gjöra stærri stöð úr minni, þá blandast víst engum sjerfróðum manni hugur um það, að slíkt er vel hægt. Jeg vildi í því sambandi benda á ummæli landsímastjórans í brjefi hans til ritsímanefndarinnar á þingi 1914. Brjef þetta er prentað í þingtíðindunum 1914 A, fylgiskjal II við þingskjal 396, og vildi jeg leyfa mjer að lesa upp nokkrar línur úr því, með leyfi hæstv. forseta. Þar segir svo: „Landsímastjórninni er það ljóst, að nú er, kominn tími til að setja upp þráðlausa stöð, til viðskifta við skip á sjó, og mun hún hið fyrsta stinga upp á við landsstjórnina, að hvort sem Færeyjastöðin verður bygð um leið eða ekki, þá verði á árinu 1915 sett upp þráðlausa stöð nálægt Rvík, sem annaðhvort dregur jafnlangt á daginn og áður er talað um, eða styttra, að eins ætluð til að afgreiða skip í hafi.

Ákvörðun um stað stöðvarinnar er, ef ekki verður öðru vísi ákveðið af þingi eða landsstjórn, komin undir lagningskostnaði stöðvarinnar, samanborið við aukakostnað við væntanlega stækkun stöðvarinnar seinna. Áætlanir yfir þetta eru ekki tengnar enn þá“.

Af þessu er það ljóst, að landssímastjórnin efast ekki um, að hægt sje að reisa litla stöð með það fyrir augum, að stækka hana síðar. Jeg átti enn fremur tal um þetta efni við sjerfræðing í þessari grein í Kaupmannahöfn, er jeg síðast var erlendis, og var hann á sömu skoðun um þetta atriði. En vitanlega er sjálfsagt að rannsaka þetta alt, áður en stöðin verður reist, því jeg hygg, að næg reynsla sje fyrir þessu annarsstaðar, þó ekki sje hún enn fengin hjer á landi.