12.08.1915
Efri deild: 30. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 430 í B-deild Alþingistíðinda. (539)

64. mál, aðflutningsbann á áfengi

Framsögumaður (Björn Þorláksson):

Jeg verð að leyfa mjer, áður en jeg fer að tala um frumvarpið sjálft og breytingartillögur nefndarinnar, að fara nokkrum orðum um málið í heild sinni og koma með nokkrar athugasemdir því viðvíkjandi.

Jeg vil þá fyrst taka það fram, að það eru að eins 7 mánuðir síðan bannlögin gengu að fullu í gildi. Á árunum 1912–15 var eins konar millibilsástand. Á þeim árum var að vísu óleyfilegt að flytja vín til landsins, en það var hins vegar leyfilegt að selja vín til ársloka 1914. Það gat því ekki hjá því farið, að í skjóli þessarar vínsölu ætti sjer stað nokkur ólöglegur innflutningur á víni, enda lágu ýmsar aðrar orsakir til þess, sem jeg hirði ekki að tala um. En þrátt fyrir þetta og hinn stutta tíma, sem lögin hafa að fullu verið í gildi, sje jeg ekki betur en að blessun og áhrif laganna hafið þegar komið áþreifanlega í ljós.

Jeg talaði ekki mikið um frumvarpið við 1. umr., en jeg gat þess þá, að sveitirnar væru nú að mestu orðnar þurrar og að það væri að eins í kaupstöðunum og við sjó, að nokkuð af víni væri eftir. Bleytan af víninu er því að mestu horfin af þessu landi. En áður var landið alt einn votur völlur, eins og ein sveit hjer á landi hefir verið kölluð Votuvellir. Menn geta sannfærst um þessa breytingu þegar menn ferðast um landið. Nú sjest varla drukkinn maður, nema örsjaldan. Þegar menn mæta lest úr kaupstað eða koma á almenna mannfundi geta menn sannfært sig um þetta, er menn bera það saman við það, sem áður var.

Þetta er breytingin í sveitunum, og í kaupstöðunum er breytingin hin sama. Áður var vínveitingahús í flestum kaupstöðum og fleiri en eitt í mörgum þeirra, og þá var það ekki sjaldgæft að sjá menn ósjálfbjarga á strætum úti. Nú sjást ölvaðir menn örsjaldan. Jeg hefi verið hjer í Reykjavík nú í sumar og undanfarin ár og hefi sannfærst um þá miklu breytingu, sem orðið hefir í þessu efni á síðustu árum. Nú er það sjaldgæft að sjá ölvaðan mann, ekki af því, að það komi ekki fyrir að menn verði ölvaðir, það veit jeg vel, heldur af því, að menn eru farnir að blygðast sín fyrir að láta sjá sig ölvaða. Þingmenn og þingskrifarar sanna þetta. Jeg hefi nú verið á 5 þingum, þetta er það 6., og get borið vitni um það, að áður var það ekki svo sjaldgæft, að maður sæi þingmenn ölvaða á þingfundum, og þingskrifarar voru stundum svo drukknir, að þeir gátu ekki gætt starfa síns. Jeg vil nú ekki segja að þetta sje alveg horfið, því t. d. var einn þingskrifarinn úr neðri deild að ráfa hjer um gangana í þinghúsinu í gær talsvert drukkinn. En yfir höfuð eru þingmenn og þingskrifarar nú mestu reglu- og snyrtimenn.

Jeg gæti nefnt fleira því til sönnunar, hvað vínnautnin hefir minkað, en það er óþarfi að telja fleira að sinni. En hverju er þessi stórkostlega breyting að þakka? Fyrst og fremst bindindisstarfseminni, sem hjer er búin að standa í 30 ár, og þar næst hinum mörgu og góðu lögum, sem bindindisfjelögin hafa komið til leiðar og nú síðast aðflutningsbannslögunum.

Jeg nefndi bindindisstarfsemina. Þeir hafa verið misjafnir, dómarnir um hana. Jeg man að jeg kom hingað til Reykjavíkur á fyrstu árum eftir að Goodtemplarareglan kom hingað til lands. Bindindismennirnir voru þá lýttir og illa um þá talað af háum jafnt sem lágum. En nú kveður við annan tón bæði hjá bannmönnum og andbanningum. Nú lofa jafnvel andbanningar bindindisstarfsemina á hvert reipi. Nú segja andbanningar: „Bannnlögin eru afskræmi en bindindisstarfsemin er ágæt, en bannlögin hafa eyðilagt hana.“ En þeir menn, sem svona tala, eru einmitt menn með sama hugsunarhætti og þeir, sem áður löstuðu bindindið. Þeir eru á eftir tímanum um 30 ár. 1885 þegar bindindisstarfsemin hófst gátu þeir ekki skilið nytsemi hennar. Árið 1915 þykjast þeir skilja bindindið, en þeir skilja ekki nytsemi bannlaganna. Árið 1945 býst jeg við að þeir skilji þau, því að þeir eru á eftir tímanum um 30 ár, en ekki meira.

Andbanningar finna bannlögunum það til foráttu, að þau sjeu brot á persónulegu frelsi. Þetta kveður við alstaðar, og maður skyldi ætla að það væri einhver sannleikur í þessu, fyrst svo margir virðast sammála um það. En má jeg spyrja. Hvaða lög eru ekki takmörkun á persónulegu frelsi?

Lögin eru einmitt til vegna þess, að mennirnir eru ekki nógu fullkomnir. Það þyrfti engin lög nje takmarkanir á persónulegu frelsi, ef mennirnir væru nógu góðir, en það erum við ekki, og þess vegna þarf lög. Þau eru ekki handa góðu og upplýstu mönnunum, heldur handa þeim vondu og fáfróðu.

Andbanningar og áfengisvinir hneykslast á aðflutningsbannslögunum eins og þau væru einu bannlögin. Það er óþarft að sýna fram á að til sjeu fleiri bannlög, en þó má geta þess, að á öllum síðustu þingum höfum við verið að samþykkja fjölda bannlaga, svo sem friðunarlög fyrir fugla, hreindýr o. fl., og enginn hefir haft neitt á móti þeim lögum, en á móti þessum lögum hamast andbanningar eins og á móti mestu þrælalögum, og þeir gefa þeim nafnið þrælalög.

Maður getur ekki neitað því, að andbanningar eru dálítið fyndnir með þessu, þó að fyndnin komi niður á þeim sjálfum. Mjer hefir ekki þótt eins vænt um neitt nafn eins og þetta nafn, þrælalög, því að það tekur einmitt fram tilgang laganna. Ófriðurinn milli suður- og norðurríkjanna í Bandaríkjunum hefir verið kallaður þrælastríðið, af því að hann var meðal annars háður, til þess að leysa þrælana úr ánauð: Aðflutningsbannslögin mega vel kallast þrælalög, af því að tilgangur þeirra er sá, að leysa menn undan þrældómi Bakkusar. Bindindismennirnir þurfa þessara laga ekki fyrir sitt leyti; þau eru ekki til vegna þeirra. Þau eru til orðin vegna ofdrykkjumannanna og til þess að varna því; að að menn venjist á að drekka og verði þannig þrælar drykkjuskaparins og Bakkusar.

Andbanningar segja: „Íslendingar eru eina þjóðin, sem heldur fast við bannlagaheimskuna“, sem þeir svo kalla. En það er ekki rjett, að við sjeum eina þjóðin, sem heldur fast við þá fögru hugsjón mannúðar, frelsis og bróðurkærleika, er felst í áfengisbannslögunum. Eins og menn vita eru um 80 fyki í Bandaríkjunum, sem hafa líkt áfengisbann, þótt nokkur munur sje á, svo sem eðlilegt er; vegna mismunandi staðhátta. Í þessum ríkjum eru um 27–30 miljónir manna. Þar er algengt sölu og aðflutningsbann. Og mörg önnur ríki eru orðin þar fyrir sveita- og hjeraða samþyktir. Margar miljónir manns berjast þar fyrir alríkisbanni, og búast þeir við að það fáist eftir fá ár, eða upp úr 1920. — Í Noregi og Svíþjóð er búist við að algjört bann komist á innan skamms tíma og jafnvel í landinu, sem við höfum fengið okkar áfengi frá, Danmörku, er farið að nefna árið 1930 sem það ár, er slík lög muni komast þar á. Styrjöldin mikla hefir betur en alt annað sýnt, hvert heimurinn stefnir í þessu efni. Rússakeisari hefir bannað sterkasta áfengið í sínu mikla og víðlenda ríki. Í Frakklandi, vínlandinu mikla, sem varnaði því fyrir nokkrum ár með mótmælum sínum, að bannlög kæmust á í Finnlandi og Noregi, hafa nú verið gefin lög um bann gegn tilbúningi, sölu og útflutningi áfengis þess, er absint heitir og jafnvel einhverra sterkari áfengra drykkja. Í Þýskalandi er stefnt að líku marki. Englandskonungur hefir afnumið alla vínnautn við sína hirð.

Menn kunna nú að segja að þetta stafi einungis af styrjöldinni og muni falla niður, þegar henni er lokið. En það hygg jeg þó ekki verði. Hvað er talið mesta bölið í heiminum? Fyrst er talið áfengisbölið og hernaðarbölið þar næst. Ófriðarbölið hefir aldrei komið fram í eins stórkostlegri mynd og nú, og áfengisbölið ekki heldur náð jafn voðalegum tökum á mannkyninu sem nú. En þegar bæði þessi böl ætla að sliga þjóðirnar, er eðlilegt að þær reyni að varpa af sjer öðru bölinu, til þess að geta betur risið undir hinu. En þegar styrjöldinni er lokið munu þjóðirnar verða orðnar svo skynsamar að halda áfram bardaganum á móti áfengisbölinu, og skipa fyrir um það með löðum eins og við höfum gjört.

Við höfum ekkert að segja af styrjöldinni, nema þá óbeinlínis að því leyti, sem hún hefir áhrif á vöruverð og viðskifti, en við höfum mörg önnur böl að berjast við. Við höfum ís, og harðindi, sem stafa af ísnum: Það er því sjálfsagt, að við vörpum af okkur þeim byrðum, sem okkur eru sjálfráðar, til þess að við getum betur staðið á móti hinum, sem okkur eru ósjálfráðar. Við getum ráðið við áfengisbölið, en við getum ekki ráðið við ísinn og ekki til fulls við harðindin.

Jeg sýndi fram á þá breytingu, sem orðið hefir hjer á landi á seinni árum. Sveitirnar eru orðnar þurrar, en við sjóinn og í kaupstöðunum er enn þá rakt. Jeg held að það vanti ekki nema herslumuninn til þess, að við losnum að fullu við áfengisbölið. Og til þess þurfum við að bæta úr helstu göllunum á bannlögunum, því að eðlilega hefir það komið í ljós, að nokkrir gallar eru á þeim. Þetta verðum við að lagfæra einkum vegna þess, að málefnið er alheimsmál, en ekki einungis íslenskt. Ekkert, sem hin íslenska þjóð hefir gjört, hefir vakið á oss eins mikla athygli út um heiminn, eins og þessi lög. Ekki af því, að þau hafi sett á okkur skrælingjamerki, eins og andbanningar sögðu að þau mundu gjöra, heldur er það hin háleita hugsjón, hin mikla, siðbætandi, mannfjelagsbætandi hugsjón, er felst í bannlögunum, sem því hefir valdið.

Og svo þetta, að minsta og fámennasta þjóðin hafði hjer í miklu og göfugu máli riðið fyrst á vaðið, gjört fyrstu tilraunina, hvort þessi hugsjón væri framkvæmanleg. Það var svo göfugmannlegt, frægilegt og stórkostlegt. Jeg man það, að 1909 lögðu andbanningar mikla áherslu á það, að við, sem værum svo fáir, fátækir, smáir, ættum ekki að gjöra fyrstu tilraunina, ættum ekki að vera að „experimentera“ með þetta mál. Þessi orð voru skökk. Eins og einstaklingarnir hafa skyldur, og því ber enginn á móti, og eins og stóru þjóðirnar hafa skyldur, þannig hafa einnig smáþjóðirnar skyldur, þegar tækifærið kemur. Tækiðfærið kom hjer 1909; þá ákvað Alþingi að gjöra tilraun til að útrýma áfengi og áfengisböli úr landinu með lögum. Þau lög voru þá ekki svo vel úr garði gjörð sem skyldi; til þess lágu mörg atvik, sem ekki verða rakin hjer. Nú, þegar lögin eru komin í framkvæmd, koma gallarnir í ljós. Þá þarf að laga, ekki vegna þess, að lögunum sje bein hætta búin fyrir þá sök, heldur skiftir það miklu máli, að lögin sjeu sem best úr garði gjörð, til þess að sem best reynsla fáist í þessu máli og fáist sem fyrst. Umheimurinn horfir með eftirvæntingu til Íslands og spyr: „Hvernig reynast bannlögin á Íslandi? Það er skylda vor Íslendinga, að gjöra alt, sem í voru valdi stendur, til þess að árangurinn verði sem bestur, og það sem fyrst. Við því liggur sæmd vor og heiður. Oss er sæmdarauki að lögunum. Sæmd vor verður meiri, þegar aðrar þjóðir geta sagt: „Þar, úti í ysta reginhafi, er fengin áreiðanleg reynsla í því, hvernig losast má og losast á við mestu meinsemd mannfjelagsins á þessum tímum“.

Jeg skal svo snúa mjer að einstökum greinum frumvarpsins og breytingartillögum þeim, er nefndin hefir gjört. En jeg vil áður vekja athygli háttv. deildar á prentvillu, sem slæðst hefir inn í þgskj. 262, 4. gr. Þar stendur í „5. málsgr., sem verður 4“, . . á að vera 6. málsgr., sem verður 5.

Aðalmunurinn á 1. gr. á þgskj. 136 og samsvarandi 5. gr. bannlaganna er sá, að frumvarpið gjörir ráð fyrir, að alt áfengi verði innsiglað á fyrstu höfn, þegar skip kemur frá útlöndum, og það geymt innsiglað, þangað til skipið fer frá síðustu höfn á landinu. Aftur stendur í 5. gr. bannlaganna, að áfengi, sem ætlað er til skipsforða, skuli undanþegið innsiglan. Reynslan hefir nú sýnt, að gildandi ákvæði er ekki heppilegt og lítt framkvæmanlegt. Skipsforðinn er stöðugt óinnsiglaður, og. með því fyrirkomulagi hefir reynslan sýnt, að þótt ekki sje gripið til þess inni á höfn, þá er þó tekið til þess strax fyrir utan landhelgislínuna. Af þessu hefir oft leitt, að menn taka sjer far stutta leið með þessum skipum, sem eru fljótandi vínsöluhús, til þess eins að ná í áfengi. Slíkt gæti ekki komið fyrir, ef áfengi alt væri innsiglað á fyrstu höfn. Sú óregla, sem stafar af gildandi lögum, gæti ekki átt sjer stað, ef 1. gr. frumvarpsins yrði að lögum. Auk óreglunnar, sem leiðir af gildandi lögum, er hætt við, að óhlutvandir skipverjar selji landsmönnum áfengi.

Á sumum skipum gjöra þetta næstum allir.

Það er ómögulegt fyrir lögreglustjóra, hve duglegur sem hann er, að hafa nægilegt eftirlit með þessu; það er ókleift, því að skipsforðinn er vanalega fremur ríflegur; og látinn óinnsiglaður. Aftur á móti yrðu lögin framkvæmanlegri og ljettara eftirlitið, ef alt áfengi væri innsiglað á fyrstu höfn. Skipstjóri ber þá líka ábyrgð á, að engu sje skotið undan og ekkert innsigli rofið, fyrr en skipið er alfarið.

Eftirlitið verður ljett, ef innsiglað er á fyrstu höfn og skoðað á síðustu. Ef innsigli er rofið eða áfengi skotið undan, hlýtur það að komast upp og skipstjóri sætir þá hegningu. Sami skipstjóri mun þá varla oftar en einu sinni gjöra sig sekan í því. Lögin yrðu þá haldin af þeim skipum, sem oftast eru hjer við land. Og eftirlit lögreglustjóra yrði þá litið í samanburði við það, sem nú er.

Það má gjöra ráð fyrir, að einhver kunni að hreyfa þeim mótbárum gegn innsiglun alls áfengis, að sumir skipverjar kynnu að hafa, samkvæmt lögum sinnar þjóðar, rjett til ákveðins skamts af áfengi. Mjer er ókunnugt um, hvernig því er varið, en jeg veit þó, að skipverjar sumra þjóða hafa alls engan rjett til þess. Jeg hygg, að þó svo væri, að skipverjar væru þannig ráðnir, að, þeir ættu að hafa daglegan áfengisskamt, þá ættu þeir að sætta sig við, að fá ekkert áfengi, meðan þeir eru hjer við land; þeir eru þá komnir undir landsins lög, og verða að hlýða þeim. Jeg get ekki sjeð, að nokkur óþægindi mundu leiða af þessu. Að eins lítil ónot fyrir skipstjóra, sem kæmu hingað í fyrsta skifti og væri ókunnugt um lagaákvæðin.

Eimskipafjelag Íslands hefir tekið upp þá reglu, að hafa ekkert áfengi á skipum sínum, meðan þau eru hjer við land. Það er bæði fallegt og gott, en alt annað væri svívirða og stórhneyksli. Hvernig mundu útlendingar líta á það, ef áfengi væri haft á þeim skipum, sem landssjóður og landsmenn eiga? Jeg hefi heyrt marga kalla Eimskipafjelag Íslands óskabarn Íslands, og það er það líka. Það gæti orðið fyrir óhag, ef óinnsiglað væri alt áfengi á öllum öðrum skipum; það getur beðið óhag við það, ef frumvarp þetta verður ekki að lögum. Jeg tel víst, að framvegis verði ekkert áfengi á skipum Eimskipafjelags Íslands, og jeg er líka viss um, að hluthafarnir gjöra stranga kröfu til þess. En ef útlendum skipum leyfist að sigla með áfengi með ströndum fram, getur það freistað andbanninga og áfengisvina, til þess að taka þau fram yfir skip Eimskipafjelags Íslands, og taka sjer fremur far með þeim. Það getur því beðið fjárhagslegan óhag af því.

Breytingartillögurnar við 1. gr., það er að segja 2. og 3. gr. á þgskj. 262, standa í nánu sambandi innbyrðis. Ábyrgð í 4. málsgr. á að færast inn í 2. gr.; 4. málsgr. verður því óþörf og fellur burt. Jeg vona að mönnum skiljist, af hverju 4. gr. stafar. Nefndinni þótti óeðlilegt að láta skipstjóra bera ábyrgð á öllum brotum, ómögulegt fyrir hann að ábyrgjast farþega, að þeir hefðu ekki áfengi. Henni þótti því nægja að hann bæri ábyrgð á brotum skipverja.

5. breytingartillagan hljóðar um það, að síðasta málsgr. 1. gr. falli burtu. Í frumvarpinu stóð, að lögreglustjóri skyldi hafa heimild til að sleppa rannsókn í útlendum fiskiskipum, sem koma snöggvast að landi. Nefndin áleit, að það gæti verið athugavert að veita þetta, og ákvað því að sleppa henni. Eftir það skýrði ráðherra frá, að það gæti valdið óþægindum, því að á frakkneskum fiskiskipum væru hásetar ráðnir upp á vissan áfengisskamt á dag. Nefndin tekur því þessa breytingartillögu aftur.

Þá kemur 2. gr. frumvarpsins, og sjest það í nefndarálitinu, að nefndin áleit, að ekki væri þar um neitt nýtt að ræða. Í lögreglusamþyktum bæjanna er veitt heimild til að taka ölvaða menn fasta, ef þeir á almannafæri raska ró og friði, eða eru ósjálfbjarga. Enginn lögreglustjóri mundi beita þessu ákvæði, meðan maðurinn væri sjálfbjarga og hagaði sjer vel.

Þegar þessi ákvæði eru komin inn í almenn lög, er hægt að beita þeim víðar en í kaupstöðum. Það er þá einnig hægt í verslunarstöðum og sjávarþorpum. Í sveitum þarf þeirra varla með.

Aftur á móti er það nýmæli í greininni, að geti ölvaður maður ekki sannað, að hann hafi fengið vín á leyfilegan hátt, skuli hann talinn brotlegur gegn 1. gr. bannlaganna. Þetta nýmæli var tekið upp, af því að verið getur, að ölvaður maður við rannsókn neiti að skýra frá, hvernig eða hjá hverjum hann hefir fengið vín. Af því að hegningarákvæði vantar, ef maður neitar að skýra frá þessu, þótti nefndinni nauðsynlegt að eitthvert refsiákvæði væri sett, og þótti nóg að binda hegningarákvæðið við það, að maðurinn neitaði að gjöra grein fyrir, hvar og hvernig hann hefði ölvaður orðið. Meiri hluta nefndarinnar þótti viðurhlutamikið, að færa sönnunarskylduna yfir á manninn.

Síðari málsgr. 2. greinar er orðuð um. 7. breytingartillagan er að eins orðamunur en ekki efnismunur.

Þá kemur 3. gr. frumvarpsins. Hún er orðin til fyrir það, að reynsla hefir sýnt, að menn vanrækja að skýra frá áfengisbyrgðum. Engin hegning er lögð við því í bannlögunum: Það er auðskilið mál, að allir skuli gefa þetta vottorð, og gefa það rjett. Í annan stað þótti nauðsynlegt að hafa ákvæði í lögum, er knýji menn til þess. Það er reynt að gjöra þetta með 3. gr. frumvarpsins, sem er í 2 málsgreinum. En svo þótti nefndinni nauðsyn að bæta 2. málsgreinum inn í þessa 3. gr. frumvarpsins. Fyrri málsgreinin hljóðar um það, að eyðublöð skuli vera alstaðar til undir vottorðin eða framtalið, sem á að vera greinilega sundurliðað. Síðari málsgreinin er aftur um það, að lögreglustjóra sje heimilt að skoða, eða láta umboðsmann sinn skoða vínbirgðirnar.

Tilgangurinn með því ákvæði er að knýja menn til að gefa rjett vottorð. 9. breytingartillagan hljóðar um að koma þessum 2 ákvæðum inn í 3. gr. frumvarpsins milli beggja málsgreinanna.

8. og 10. brtt. er um að lengja frestina úr 4 vikum í 12 vikur, og 14 dögum í 8 vikur. Þessa fresti miðaði nefndin við þörf manna, ekki í kaupstöðum, heldur þar sem ógreiðar samgöngur eru, en nauðsynlegt er, að allir viti þetta nógu snemma. Enginn getur þá heldur afsakað sig með að honum hafi verið ókunnugt um skyldu sína, eða hvað við liggur, ef út af er brugðið.

Þá kem jeg að 4. gr. frumvarpsins. Aðalbreytingin þar er, að bannað er að löggilda til lækninga í lyfjaskrá landsins þá áfengisvökva, er ætlaðir eru til neytslu. Orsökin er sú, er nú skal greina:

Það var svo í byrjun ársins 1914, að. hreyfing kom upp hjer í Reykjavík í þá átt, að læknar gætu gefið lyfseðil upp á alt áfengi. Frá þessu máli er skýrt í brjefi landlæknis til stjórnarráðsins. Fyrirsögn þess er: Um áfenga drykki til lækninga. Það er gott, að menn kynni sjer málið, og vil jeg því skýra lítið eitt frá því. Það byrjaði þannig.

Magnús dýralæknir Einarsson kvartaði undan því við stjórnarráðið, að hann gæti ekki fengið áfengt öl í lyfjabúðinni handa konunni sinni, sem læknir hafði ráðlagt áfengt öl til heilsubótar, og ljet fylgja álit frá Læknafjelagi Reykjavíkur, þess efnis, að sjálfsagt væri, að lyfsalar væru skyldir að hafa til alt það, er læknar vildu reyna til lækninga. Þetta álit var sent landlækni til umsagnar, og þá samdi hann umrætt brjef. Það er ekki tími til að fara út í það hjer, nema að örlitlu leyti. Jeg býst við, að þar sem landlæknir er þingmaður hjer í háttv. deild, muni hann ef til vill skýra frá því að nokkru leyti. Hann skýrir frá því í brjefi sínu, að hann mótmæli því, að nauðsynlegt sje fyrir lækna, að hafa vín eða áfengt öl til lækninga.

Landlæknir skýrir svo frá í erindi sínu til landstjórnarinnar, að hann hafi skoðað lyfjabúðir hjá 38 hjeraðslæknum. Af þessum hjeraðslæknum höfðu 29 alls engin vín, og kváðust ekki vanir að hafa það handa sjúklingum, og í 25 hjeruðum af þessum 29 var engin áfengisverslun. 9 af hjeraðslæknunum höfðu eitthvert vín, og þó flestir mjög lítið, nema helst einn þeirra, er hafði þrjár tegundir vína, vínum oporto, vinum xeres og vinum malaga. Hinir höfðu lítið af víni og þrír þeirra höfðu að eins vinum xeres, og það í því skyni, að leysa upp í því fáein eiturlyf.

Þar sem nú 29 af þessum 38 hjerðslæknum, sem voru í sveit, eigi hafa haft vín, þá hygg jeg að það geti ekki komið af öðru en því, að þeir telji ekki áfengi nauðsynlegt til lækninga, telji það ekki lyf, og úr því það er ekki nauðsynlegt í sveitunum, þá getur það heldur ekki verið nauðsynlegt í þessum sex kaupstöðum landsins.

Í þessu sama brjefi ritar landlæknirinn um öl, og farast honum svo orð um það: „Ölföngin eru að ýmsu leyti mjög frábrugðin öðrum áfengum drykkjum. Í mörgum góðum öltegundum eru auk áfengisins önnur markverð efni, þannig blönduð, að drykkurinn geti verið til hollustu; bæði fyrir heilbrigða og sjúka og áhættulaust að neyta hans, ef ekki er mjög mikið áfengi í honum. Nú er farið að brugga alls konar öl með tvennu móti, 1. Þannig, að í því verði allmikið af áfengi, svo og svo mörg %, upp í 7–8%; það er gamla lagið. 2. Hins vegar eru nú víða bruggaðar þær sömu öltegundir og áður, en með þeim mun, að í þeim er ávalt mjög lítið af áfengi, ekki yfir 2¼%. Þessar áfengislausu öltegundir ryðja sjer nú óðfluga til rúms í öðrum löndum og útrýma meir og meir gamla áfenga ölinu. Nú er alfrjáls hjer á landi aðflutningur og sala á öllum þessum nýju og ágætu, áfengislitlu öltegundum. Er enginn verulegur munur á þeim og gömlu ölföngunum annar en þessi áfengismunur. Það er síður en svo; að sjúklingar eigi erfitt með að afla sjer ölfanga til heilsubótar . . . Það er því öldungis ástæðulaust að kvarta undan ölskorti handa sjúklingum“.

Jeg get ekki stilt mig um að taka það fram, að mjer þykir hún stóreinkennileg, þessi ósk læknanna; að lyfjabúðirnar hafi alt, er þeir kunni að girnast, jafnt öl sem annað. Og mjer þykir það einkennilegt, að þessi ósk kemur ekki fyrst fram frá mannalækni, heldur frá dýralækni.

Hún kemur fram frá manni, er hefir verið og er harðvítugur og svæsinn andbaningur, frá manni, sem hjer um árið ritaði mjög óviturlega grein í Andvara um aðflutningsbannið, einhverja þá óviturlegustu grein, að mínum dómi, er komið hefir fram á móti því. Og hann þarf að fá ölið handa konu sinni. Svo ganga læknarnir í fjelagið, og þá er málinu hrundið af stað.

En hver fann nú upp púðrið? púðrið til að sprengja í loft upp bannlögin? Það gjörir sá maður, sem annars er

ekki kunnur að uppfundningum; það görði herra Magnús Einarsson.

Það er margt undarlegt í henni veröldu, og eitt af því er óneitanlega það, ef menn halda, að dýralæknir hafi meira vit á þessu en mannalæknar, og það sjálfur landlæknirin.

Og ekki batnar þetta neitt við það, þó einn eða fleiri mannalæknar verði svo óheppnir,— að villast inn í hjörð dýralæknisins og hjálpa honum til þess að halda áfram þessari rekistefnu.

Nú er þessari deilu haldið hjer áfram á Alþingi, og það gjöra þeir herrar, er flytja aðra breytingartillöguna á þingskj. 263. En tilgangur þeirra og tilgangur Magnúsar Einarssonar er ljós, svo ljós, að á honum villist enginn; hann er sá, að tortíma bannlögunum. Dýralæknirinn rak erindi andbanninga, og nú reka flutningsmennirnir að annari tillögunni á þingskj. 263 erindi þeirra. Jeg vil því mæla sterklega með því, að breytingartillaga þeirra á þingskj. 263 verði feld, en greinin samþykt svo, sem meiri hluti nefndarinnar óskar.

Ellefta breytingartillaga nefndarinnar er sjálfsögð, því málsgrein þessi er óþörf, og af þeirri breytingu leiðir aftur 12. breytingartillagan, sem þá líka er sjálfsögð.

Þrettánda breytingartillagan er um að orða síðustu málsgrein 4. greinar á annan veg. Þetta kemur til af því, að svo er ákveðið í 4. gr. aðflutningsbannlaganna, að gjöra skuli það áfengi óhæft til drykkjar, sem nota á til verklegra afnota. En við reynsluna hefir komið fram vafi á því, hvort hægt væri að gjöra áfengið óhæft til drykkjar, án þess að það missi notagildi sitt til þess, sem það er ætlað. Samkvæmt þessu virðist þá nauðsynlegt, að breyta orðalagi greinarinnar, og að því miðar 13. breytingartillaga nefndarinnar.

Fjórtánda breytingartillagan er um sektir fyrir brot gegn 1. gr. frumvarpsins, eða 2. gr., ef 1. breytingartillaga. verður samþykt, þær eigi að verða hinar sömu og við brot gegn 1. gr. bannlaganna. Með þessu verður lágmark sektanna eins, en við ítrekað brot verða þær nokkuð hærri eftir bannlögunum, og er því hjer ofurlítið hert á.

Þá er 15. brtt.; hún er um að afnema heimild þá, er sendiræðismönnum erlendra ríkja var veitt á Alþingi 1913, til þess að flytja inn vissan skamt af áfengi. Þessi heimild var þá sett í lög eftir beiðni frá stjórn Frakka. En nú hafa Frakkar lögleitt hjá sjer bann gegn tilbúningi og útflutningi á sumu áfengi, og sendiræðismaður þeirra kvað ekki ætla að nota heimildina í ár, og kærir sig ekki um hana. Það er því ástæða til þess, að nema þessa heimild úr lögum, og það því fremur, sem heimild þessi hefir verið óvinsæl hjer á landi, bæði af bannmönnum og andbanningum. Jeg vil taka það fram, að nefndin bar þetta atriði undir hæstv. ráðherra, og taldi hann, að af því mundu ekki stafa nein óþægindi.

Sextánda breytingartillagan er afleiðing af þeim fyrri, og því sjálfsögð, verði hinar samþyktar.

Og um 17. breytingartillöguna er það að segja, að hún er bein afleiðing af 15. brtt. nefndarinnar.

Jeg finn svo ekki ástæðu til að ræða málið frekar, fyrr en þeir þm. Strand. (M. P.) og þm. Vestm. (K. E.) hafa gjört grein fyrir breytingartillögum sínum, og jeg heyri röksemdir þeirra.