12.08.1915
Efri deild: 30. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 491 í B-deild Alþingistíðinda. (549)
64. mál, aðflutningsbann á áfengi
Karl Finnbogason:
Það er kominn svo mikill alvöruþungi í umræðurnar, að jeg get ekki þagað lengur en tel mjer skylt, að gjöra grein fyrir mínu atkvæði í þessu máli. Hjer hefir einkum verið deilt um þrjú aðalatriði, sem mjer virðast mestu máli skifta.
Fyrsta atriðið er það, hvort Alþingi geti sett lög um það, að innsigla skuli allar vínbirgðir allra skipa, sem sigla hjer við land (samkvæmt frumvarpinu), eða hvort Alþingi geti það ekki. Nú er það öllum vitanlegt, að skip, sem sigla hjer með ströndum fram, fara oft út fyrir landhelgina á leið milli hafna. Lögin yrðu því að ná út fyrir landhelgi landsins, og gilda þar — jafnvel fyrir útlend skip. Lögfræðingum kemur ekki saman um, hvort heimilt mundi að selja slík lög. Það er að vísu engin ný bóla, því lögfræðingum kemur aldrei saman um neitt. Jeg læt mjer því í ljettu rúmi liggja álit þeirra, en verð að fara eftir mínu höfði. Og mín niðurstaða verður sú, að vjer getum ekki sett slík lög. Að minsta kosti ekki framkvæmt þau.
Löggjafarsvið þingsins fæ jeg ekki sjeð nje skilið, að geti náð út fyrir landhelgina, að minsta kosti ekki að því er snertir útlend skip. Hver útlendur skipstjóri mundi fara sínu fram, utan landhelgi, hvað sem lögum vorum og innsiglum liði. Og vjer mundum engri ábyrgð geta komið fram á hendur neinum fyrir innsiglisrof utan landhelgi.
Jeg verð því á móti því, að ákvæði frv. um þetta efni verði að lögum.
Annað deiluatriðið er það, hvort Alþingi megi banna að löggilda eða leyfa áfengi til lækninga, þótt læknar telji það nauðsynlegt. Vísindamönnunum á því sviði, læknunum hjer í deildinni, fer eins og lögfræðingunum á sínu sviði. Þeim kemur ekki saman um þetta. Jeg verð því að fara minna ferða hjer, eins og í hinu. Og niðurstaða mín verður sú, að það sje mjög varhugavert, að banna nokkrum lækni, að nota nokkurt lyf, sem hann sjálfur telur sig eiga að nota. En þar fyrir er jeg ekki heldur ánægður með brtt. háttv. þm. Strandamanna. Hún felur líka í sjer bann, ætlast til að nokkrar ákveðnar víntegundir verði lögboðnar, en aðrar útilokaðar. Jeg álít hana því ónóga, og mun stuðla að því, að við 3. umræðu . málsins komi fram brtt., sem fari í líka átt og læknasamþyktin, sem lesin var upp hjer í deildinni í dag.
Þriðja atriðið; sem ágreiningi veldur, er það, hvort banna eigi fiskiskipum að flytja áfengi til landsins. Jeg álít rjettast, að láta þau sæta sömu lögum og önnur skip í þessu efni.
Áður en jeg setst niður, vil jeg taka það fram, að jeg hefi verið hlyntur bannlögunum og vonað að þau yrðu til góðs, enda þótt mjer þættu þau sett of snemma, með mikið oflítinn meiri hluta að baki sjer. En trú mín á þau dofnar stöðugt. Andófið gegn þeim er mjög öflugt og furðu alment, og verður að taka fult tillit til þess. Það verður aldrei sefað með því að beita ofbeldi ofan við þá, sem lögunum eru mótfallnir. Hitt er eina ráðið, að fara að öllu sem hóflegast og reyna að sætta menn við lögin með alúð og lempni. Ætti því heldur að lina þau en herða.
Þetta virðist mjer að ýmsir helstu vinir bannlaganna ekki taka til greina. Og því get jeg ekki orðið þeim samferða lengur. Og fari þeir hjer eftir eins geyst og hingað til, virðist mjer bersýnilegt, að framferði þeirra verði hinn hættulegasti ásteitingarsteinn laganna, þótt þeir auðvitað gjöri alt í bestu meiningu.