07.09.1915
Efri deild: 54. fundur, 26. löggjafarþing.
Sjá dálk 145 í B-deild Alþingistíðinda. (55)
108. mál, fjárlög 1916 og 1917
Steingrímur Jónsson:
Jeg á hjer 2 brtt. Sú fyrri er á þgskj. 801, en henni hefir meðflytjandi minn, háttv. þm. Seyðf. (K. F.), gjört nógu glögga grein fyrir. Jeg þarf því ekki annað um hana að segja en þetta, að fjelagið, sem á heima á Akureyri, starfar fyrir alt Norðurland. Jeg hjelt fyrst, að það hjeti „Heimilisiðnaðarfjelag Akureyrar“, enda var það nefnt svo í frumv., en nú vona jeg, og skýt því til
hæstv. forseta, hvort ekki mætti breyta því í prentuninni, og kalla það „Heimilisiðnaðarfjelag Norðurlands“. Annars má líka laga það í Nd. Svo á jeg aðra brtt. á þgskj. 810. Henni er þannig varið, að eins og kunnugt er, var á þingi 1913, rætt um, að raflýsa Ísafjörð, en af sparnaðarástæðum var lán til þess þá ekki tekið upp í fjárlögin. Ef jeg man rjett, var kostnaðurinn við það áætlaður liðlega 60 þús. kr. Nú get jeg ekki, eins og sakir standa, greitt atkv. á móti þessari lánveitingu, því að þetta nauðsynjamál hefir verið lengi á döfinni. Hins vegar virðist mjer ekki ástæða til að lána alla upphæðina; einkum þar sem svo stendur á, að lánveitingin til Húsavíkur, til sams konar fyrirtækis, er eigi heldur fyrir öllum kostnaðinum. Jeg legg því til, að lán þetta verði minkað, því Ísafjarðarkaupstað er eins auðvelt að fá 15–16 þús. kr. lán annarsstaðar, eins og Húsavík að fá 5–6 þús. Jeg legg því til, að þessi lánveiting verði ekki höfð hærri en 45 þús. kr., því að þá býst jeg líka við, að meiri líkindi sjeu til, að báðir þessir kaupstaðir, Ísafjörður og Húsavík, fái eitthvað.
Jeg mun ekki tala um fleiri breytingartillögur að sinni, en sýni með atkvæði mínu afstöðu mína til þeirra. Jeg get þó varla látið hjá líða, að minnast á 11. brtt. háttv. fjárlaganefndar. Jeg get varla verið með því að lækka styrkinn til sandgræðslu úr 5000 kr. niður í 3000.
Þá vil jeg minnast á eitt enn. Það er þessi nýkomna brtt. frá háttv. þm. Vestm. (K. E.) á þgskj. 811. Jeg get þar vísað til alls þess, sem háttv. 5. kgk. (G. B.) sagði. Það er óráðlegt og talsvert óhyggilegt, undir þessum sjerstöku kringumstæðum, sem nú eru, að veita slíkan styrk, og hrein og bein niðurlæging, að veita hann útlendingi. Það á að vera Íslendingur, sem þenna starfa hefir með höndum, að þessum sænska manni alveg ólöstuðum. Ef tilgangurinn er aðallega sá, að þessi maður veiti leiðbeiningar í verslunarerindum, þá held jeg að bæði sje athugavert að veita fje til þess utanríkisborgara, og að ganga framhjá sumum Íslendingum. Auk þess kemur þessi brtt. algjörlega í bága við þá sparnaðarstefnu hjá háttv. fjárlaganefnd, sem hún á þakkir skilið fyrir. Það er ekki í samræmi við ýmsar tillögur hennar, að fara að binda landinu þenna 10000 kr. bagga.